Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Blaðsíða 6
Helgarblað 6.–9. nóvember 20156 Fréttir FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ ekki gera upp a mil li, al lir eiga skilid Baby Foot! , FÆST Í V E RS LUNUM UM LAND A L LT Rannsóknin hófst á útboðsdegi Símans Samkeppniseftirlitið skoðar ágreining Símans og Vodafone vegna Skjás Eins S tjórnendur Símans upp­ lýstu ekki um ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að hefja rannsókn á samn­ ingi fyrirtækisins við Voda­ fone á Íslandi fyrr en þremur vikum eftir að hún lá fyrir. Ákvörðunin var tekin sama dag og almennu hluta­ fjárútboði fyrirtækisins lauk en Vodafone kvartaði til Samkeppnis­ eftirlitsins daginn áður. Niðurstaða rannsóknarinnar gæti haft áhrif á rekstur og efnahag Símans og þar með virði hlutabréfa þeirra fjárfesta sem tóku þátt í útboðinu. „Ágreiningsmál sem þessi eru einn áhættuþátta í rekstri Símans, eins og greint var frá í lýsingu fyrir­ tækisins. Síminn taldi því ekki ástæðu eða forsendur til að upplýsa um kvörtunina á þessu stigi málsins, þar sem óljóst er til hvers hún muni leiða,“ segir í svari Símans við fyrir­ spurn DV. 10% af veltu Ágreiningur Símans og Vodafone (Fjarskipta hf.) varðar túlkun á samn­ ingi fyrirtækjanna um dreifingu á Skjá Einum. Samkvæmt afkomut­ ilkynningu Símans fyrir þriðja árs­ fjórðung 2015, sem fyrirtækið birti 29. október, kom hann upp í októberbyrjun þegar Síminn hóf að senda efni sjónvarpsstöðvarinnar út í opinni línulegri dagskrá. Í árshluta­ tilkynningu Vodafone, sem var kynnt daginn áður, segir fyrirtækið að ákvörðun Símans feli í sér misnotk­ un á markaðsráðandi stöðu sem hafi leitt til þess það geti ekki boðið við­ skiptavinum sínum efni Skjás Eins í ólínulegri dagskrá. Vodafone hafi því krafist hæstu lögleyfðra stjórnvalds­ sekta á Símann og Samkeppnis­ eftirlitið ákveðið að hefja rannsókn eftir að kvörtunin barst. Viðurlög við misnotkun á markaðsráðandi stöðu séu í formi sekta sem numið geti allt að 10% af ársveltu fyrirtækja. „Það eru ekki verðmótandi upp­ lýsingar að Samkeppniseftirlitið ákveði að taka málið til rannsóknar og því er ekki um tilkynningar skyldar upplýsingar að ræða. Upplýsingar sem komu fram í tilkynningu Sím­ ans 29. október síðastliðinn eru um­ fram skyldu og settar fram á þessum tímapunkti þar sem sá sem kvartaði greindi frá málinu,“ segir í svari Sím­ ans. „Fjöldi kvartana og gagnkvartana er gerður á fjarskiptamarkaðnum. Þær leiða ekki allar til ákvarðana eftirlitsstofnana. Síminn tilkynnir markaðnum nánar um málið um leið og hann hefur forsendur til og ef hann telur líklegt að kvörtunin, eða mögulegar aðgerðir í kjölfar hennar, hafi áhrif á fjárhagsstöðu félagsins.“ Kvartaði líka Síminn sendi Samkeppniseftirlitinu gagnkvörtun þann 13. október eða tveimur dögum áður en hluta­ bréf fyrirtækisins voru tekin til við­ skipta í Kauphöll Íslands. Í árs­ hlutareikningi Vodafone segir að Síminn krefjist einnig að hæsta lög­ leyfða stjórnvaldssekt verði lögð á samkeppnisaðilann og ástæðan sé misnotkun hans á markaðsráðandi stöðu. Síminn hafi einnig kvartað til Póst­ og fjarskiptastofnunar (PFS) og farið þess á leit að hún banni Voda­ fone að nota ólínulegu dagskrárleið­ irnar Tímavél og Frelsi til að dreifa efni Skjás Eins. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir í samtali við DV að Samkeppnis­ eftirlitið hafi ekki tekið ákvörðun um hvort kvörtun fyrirtækisins muni leiða til rannsóknar. n Haraldur Guðmundsson Hörður Ægisson haraldur@dv.is / hordur@dv.is „Ágreiningsmál sem þessi eru einn áhættuþátta í rekstri Símans. Upplýsingafulltrúinn Gunnhildur Arna segir ekki ljóst hvort kvörtun Símans muni leiða til rannsóknar. Mynd sr-pHotos.coM Forstjórinn Orri Hauksson er forstjóri Símans. P áll Biering, dósent í geðhjúkrun við Háskóla Ís­ lands, er nú í sex vikna sendi­ för í Grikklandi á vegum Rauða krossins á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Rauði krossinn á Íslandi sendir sendifulltrúa til Grikklands og enn frem­ ur í fyrsta sinn síðan stríð geisaði á Balkanskaga sem sendifulltrúi er sendur til lands innan Evrópu. Rauði krossinn er að svara kalli Alþjóðasambands landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) um að bregðast við neyðará­ standi vegna mikils straums flótta­ fólks sem leitar að alþjóðlegri vernd í Evrópu. Straumur flóttamanna eykst dag frá degi og eru aðstæður í Grikk­ landi sérstaklega bágbornar. Páll starfar í flóttamannabúðum norska Rauða krossins í Idomeni, smábæ við landamæri Makedóníu. Helstu verkefni hans eru að veita flóttafólki sem fer um búðirnar sál­ félagslegan stuðning, sem er mikilvægur fólki sem hefur gengið í gegnum mikla erf­ iðleika líkt og flóttafólkið hefur og glímir við mikla streitu í kjölfar þeirra. Auk þess er honum ætlað að þjálfa sjálfboðaliða gríska Rauða krossins í að veita sál­ félagslegan stuðning. Páll verður við störf fram til 6. desember næst­ komandi. Mikið álag hefur verið á starfsfólki og sjálfboðaliðum Rauða krossins við landamæri Grikklands og Makedóníu á undanförnum vik­ um þar sem þúsundir flóttamanna hafa fengið aðhlynningu og neyðar­ gögn. n Páll hjálpar í Grikklandi Fer fyrir Rauða krossinn til að aðstoða flóttamenn Gunnar til Odda Gunnar H. Sverrisson hefur verið ráðinn forstjóri Odda. Hann tekur við starfinu af Þorgeiri Baldurs­ syni, sem verið hefur forstjóri Odda og tengdra félaga frá árinu 1983 og starfað hjá fyrirtækinu síðan 1960. Gunnar var áður með­ al annars forstjóri Íslenskra aðal verktaka (ÍAV). Eiginkona Gunnars er Sigríður Hrólfsdóttir rekstrarhagfræðingur og eiga þau þrjú börn. Oddi er stærsti framleiðandi landsins á sviði umbúða úr papp­ ír og plasti. 240 manns vinna hjá Odda á fjórum stöðum í Reykja­ vík. Velta fyrirtækisins er liðlega 5 milljarðar króna. Enginn halli Ekki stendur til að reka RÚV ofh. með halla á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn RÚV sem segir að fréttir mbl.is og Morgunblaðsins um málið séu rangar. Stjórnin ger­ ir ráð fyrir rekstrarafgangi á yfir­ standandi rekstrarári og segir að nýlegt uppgjör RÚV, sem birtist í Kauphöll í október, sýni að rekstur RÚV hafi verið hallalaus síðast­ liðið ár. „Væntingar stjórnar byggj­ ast, líkt og margoft hefur komið fram, á því að útvarpsgjald lækki ekki frekar á næsta ári sem er í samræmi við það sem mennta­ málaráðherra hefur gefið fyrirheit um.“ Að öðrum kosti blasi niður­ skurður við. „Því er rangt sem seg­ ir í fyrirsögn Morgunblaðsins og mbl.is „Spá miklum halla á RÚV“. Stjórn RÚV harmar ónákvæman fréttaflutning af málinu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.