Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Side 8
Helgarblað 6.–9. nóvember 20158 Fréttir Þrjár milljónir fyrir ferð á loftlagsráðstefnu n Tólf manns frá Reykjavíkurborg verða í París n Borgarfulltrúi segir forgangsröðunar þörf R eykjavíkurborg mun senda tólf manna hóp til að sækja loftslagsráðstefnu sem haldin verður í París í byrj- un desember. Kostnaðurinn við að senda hópinn nemur þremur milljónum króna og hefur ákvörðun- in um að senda svo fjölmennan hóp verið harðlega gagnrýnd, meðal annars á samfélagsmiðlum. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, sem verður í föru- neytinu, ber því við, í samtali við Eyj- una, að hafa ekki vitað hversu illa borgin stæði fjárhagslega. Þó hef- ur flokkurinn undanfarið gagnrýnt reksturinn harðlega. Hann segir að hann hefði ekki farið ef hann hefði vitað hve illa borgin stæði. Mánuður er síðan hann samþykkti að fara með til Parísar. Allir oddvitarnir fara Í frétt Eyjunnar um málið segir að ráðstefnan sé haldin 2. til 6. desem- ber næstkomandi og munu allir odd- vitar borgarstjórnarflokkanna sækja hana. Samkvæmt þeirri frétt er áætl- aður kostnaður vegna ferðarinnar rúmar þrjár milljónir króna, eða um 260 þúsund á hvern einstakling í sendinefndinni. Bregðast við loftslagsbreytingum Þau hjá borginni segja að tilgangur ferðarinnar sé að taka þátt í loftslags- ráðstefnunni, en þar eigi að reyna að samræma vinnubrögð og við- brögð til að bregðast við loftslags- breytingum af mannavöldum. „Þar gegni borgir lykilhlutverki í að draga úr mengun og losun gróðurhúsaloft- tegunda.“ Fram kemur að samkvæmt heim- ildum Eyjunnar hafa verið sett spurningarmerki innan borgarkerf- isins við kostnaðinn og hvort að þörf sé á að svo stór hópur sæki ráðstefn- una á vegum borgarinnar. Á meðal þeirra sem gagnrýnt hafa kostnaðinn á samfélagsmiðlum er Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, en hann birti færslu um málið á Facebook-síðu sinni. Þar segir Hannes meðal að kostn- aðurinn við að senda hópinn til Par- ísar ætti að vera rúmlega helmingi lægri eða um eina og hálfa milljón króna. Hannes spyr: „Hvar eru allir vandlætararnir?“ Við færslu Hann- esar hafa svo birst athugasemdir þar sem málið er rætt enn frekar. Þar er meðal annars minnst á að Hannes hafi gleymt að reikna út dagpeninga fyrir þá sem eru í sendinefndinni. Þörf á að elta jólatré? Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, er á meðal þeirra sem fer í ferðina. Hann segir við Eyjuna að hann hafi sagt já við því að fara því um væri að ræða mjög mikilvægt málefni. „En ég hefði væntanlega hugsað mig um aftur hefði mig grun- að það hvaða niðurstaða væri að fara að birtast úr rekstri borgarinnar.“ Sjálfstæðismenn hafa haldið uppi harðri gagnrýni á meirihlutann í borginni fyrir óstjórn í fjármálum. Halldór segir að það orki tvímælis hve stór hópur fari út. Of seint sé þó að hætta við nú. Á næsta ári þurfi að taka hraustlega til í þessum mál- um og forgangsraða. „Þurfum við til dæmis að elta jólatré út um allt? Þurfum við að ná í jólatré til Noregs, eins og borgarstjóri er nú að gera? Þurfum við að fylgja jólatré sem við sendum út til Færeyja? Við þurfum að fara í gegnum þetta.“ n Sendinefnd borgarinnar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri; Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar; S. Björn Blöndal, oddviti Bjartrar fram­ tíðar; Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata; Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins og Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, starfandi oddviti Framsóknar og flugvallarvina. Auk borgarfulltrúanna sex fara einnig þau Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Hildur Sverris­ dóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðis­ flokksins, út á vegum umhverfis­ og skipulagsráðs borgarinnar. Einnig fara þau Ellý Katrín Guð­ mundsdóttir, borgarritari, Ólöf Örvarsdóttir, sviðstjóri umhverfis­ og skipulagssviðs, Hrönn Hrafnsdóttir, sérfræðingur í loftslagsmálum og Pétur Ólafsson, aðstoðarmaður borgarstjóra. „En ég hefði vænt- anlega hugsað mig um aftur hefði mig grunað það hvaða niður- staða væri að fara að birtast úr rekstri borgar- innar. Baldur Guðmundsson Johann Skúli Björnsson baldur@dv.is / johannskuli@dv.is Dagur B. Eggertsson. Hann mun fara ásamt ellefu öðrum til Parísar í byrjun desember. MynD SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.