Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Side 11
Fréttir 11Helgarblað 6.–9. nóvember 2015
Jóla
skreytingar
fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki
Skoðum og gerum tilboð
endurgjaldslaust
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Fundu bílinn
Hvorki þýfið né þjófarnir fundnir
Brún Hundai i30-bifreið sem stolið
var frá ungu pari í Fossvoginum
eftir innbrot í íbúð þeirra er nú
fundin. Bifreiðin fannst yfirgefin á
víðavangi og búið að róta í henni.
Ekki er enn vitað hver var að verki
og verðmæti sem stolið var úr íbúð
parsins eru enn ófundin.
DV greindi fyrst frá málinu um
liðna helgi, en brotist var inn hjá
þeim Guðna G. Kristjánssyni og
Ásu Sigurjónu Þorsteinsdóttur.
Meðal þess sem þjófarnir hirtu
voru varalykill að bíl parsins og
óku þeir burt á honum. Bíllinn er
nú fundinn en ekki annað þýfi og
þjófarnir ganga enn lausir.
Í stuttu samtali við DV sagð-
ist Guðni vissulega vera feginn
að bíllinn sé kominn í leitirnar en
hann vonast til þess að þýfið verði
endurheimt líka en þar á meðal var
tölva parsins með ómetanlegum
gögnum. „Það var bara allt tekið.
Það var búið að rústa öllu. Tölvan
mín með BS-ritgerð sem ég þarf að
skila eftir viku er horfin, öll gögnin
farin, allar myndirnar, ég á fjögurra
mánaða stelpu og allar myndirnar
frá fæðingu eru í tölvunni.“
Þeir sem gætu haft upplýsingar
um þetta innbrot eru beðnir um að
hafa samband við lögreglu í síma
444-1000 eða senda ábendingu á
netfangið ritstjorn@dv.is
V
ið tökum mjög hart á
þessu og köllum eftir
öllum ábendingum um
það ef leigjendur okkar
eru að framleigja íbúðirnar,“ segir
Auðunn Freyr Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða, að-
spurður hvernig brugðist sé við því
að einstaklingar framleigi íbúðir í
eigu Félagsbústaða til annarra að-
ila, svo sem ferðamanna. DV fékk
ábendingu um að íbúð á vegum
Félagsbústaða væri í útleigu til
ferðamanna í gegnum síðuna Air-
bnb.
Á síðunni er hægt að skrá íbúðir
sínar og framleigja til ferðamanna
eða annarra sem vantar nætur-
gistingu til lengri og skemmri tíma.
Talsvert er um að íbúðir, sérstak-
lega á miðborgarsvæði Reykjavík-
ur, séu til leigu þannig. Hefur ríkis-
skattstjóri meðal annars gefið það
út að hann fylgist með síðunni til
að kanna hvort greidd séu tilhlýði-
leg gjöld af leigugjaldinu.
Þá hefur lögreglan einnig fylgist
með slíkri útleigu til að kanna hvort
gististaðirnir hafi öll þau leyfi sem
þarf til að vera starfandi samkvæmt
lögum. Félagsbústaðir hafa fá úr-
ræði til að fylgjast með nema að fá
ábendingar um slíkt. Auðunn segir
að þó hafi komið upp að einstak-
lingar sem leigi íbúðir hjá Félags-
bústöðum hafi framleigt íbúðina,
eða herbergi. „Það hafa komið upp
mál hjá okkur þar sem nágrannar
gera athugasemdir við það að íbúð-
ir séu í framleigu. Við höfum þá
gengið í málið enda er þetta með
öllu óheimilt og brot á leigusamn-
ingi,“ segir Auðunn. „Þetta eru þó
ekki mörg mál. Líklega er þetta um
það bil eitt mál á ári, en við erum
með rúmlega tvö þúsund eignir.
Ef svona gerist höfum við öll ráð í
hendi okkar, viðkomandi fær við-
vörun og ef þetta gerist aftur þarf
að grípa til frekari ráðstafana,“ segir
hann. n astasigrun@dv.is
Framleigja félagsbústaði
Nágrannar hafa kvartað undan því að félagslegar íbúðir séu framleigðar til túrista
Ekki mörg mál Þetta
eru þó ekki mörg mál,
segir Auðunn og telur að
það sé eitt mál á ári.
Mynd StEfán KarlSSon
Fundu kókaín
í dagatölum
Tollverðir stöðvuðu sendingu til
landsins sem innihélt pappírsdaga-
töl en í sendingunni reyndist einnig
vera töluvert magn af kókaíni.
Um bögglapóstsendingu var
að ræða þar sem 34 pappírsdaga-
töl voru heftuð á pappaspjöld.
Sendingin kom frá Brasilíu og var
móttakandi hennar Íslendingur.
Í fréttatilkynningu frá embætti
tollstjóra segir að tollverðir hafi
stöðvað sendinguna og við skoðun á
dagatölunum vaknað grunur um að í
þeim leyndust fíkniefni.
Sá grunur reyndist á rökum
reistur því við efnagreiningu á efni
sem fannst í þeim reyndust þau inni-
halda samtals allt að 100 grömm-
um af kókaíni. Kókaíninu hafði ver-
ið komið fyrir í dagatölunum meðal
annars með því að bleyta pappann
með upplausn sem innihélt efnið.