Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Side 16
Helgarblað 6.–9. nóvember 201516 Skrýtið
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18
Lengri og breiðari
parketpLankar
Fína fólkið fór í bátsferðir
um holræsakerfi Parísar
n Parísarbúar voru stoltir af holræsunum sínum n Var vinsælt meðal ferðamanna
Þ
egar talað er um bátsferðir
í fallegum borgum ímynda
margir sér ferðir á gondól-
um um Feneyjar eða því
um líkt. Á seinni hluta
nítjándu aldar og byrjun þeirrar
tuttugustu voru slíkar ferðir ekki
efstar á vinsældalista ferðamanna
sem heimsóttu heimsborgina Par-
ís í Frakklandi. Þar voru ferðir um
holræsakerfi borgarinnar það vin-
sælasta. Nokkrar heimildir eru til
um þessar ferðir, meðal annars í
ferðabæklingi frá árinu 1869 sem
ætlaður var „enskum og amerískum
ferðalöngum“. Í honum er talað um
borgin státi af mörgum fallegum
kirkjum og söfnum en hin sönnu
undur borgarinnar séu neðanjarð-
ar, er þá átt við hið undursamlega
holræsakerfi borgarinnar.
Fullkomið kerfi
Það þarf vart að taka fram að Par-
ísarbúar voru stoltir af holræsa-
kerfi borgarinnar. Samhliða mikilli
fólksfjölgun þurfti að gera endur-
bætur á losun skólps í borginni sem
hafði raunar runnið eftir götum
borgarinnar áður en holræsakerfið
var tekið í notkun. Lækjarsprænur
og ár höfðu því hlutverki að gegna
að skila skólpinu sína leið. Á árun-
um frá fimmta áratug nítjándu ald-
ar og fram til loka nítjándu aldar
var ráðist í miklar framkvæmdir og
áður en yfir lauk var stórt og flók-
ið holræsakerfi, sem var rúmir 500
kílómetrar á lengd þegar allt var
tekið til, tilbúið.
Um þetta leyti, eða við lok 19.
aldar, bjó París yfir einu fullkomn-
asta holræsakerfi heims og árið
1930 var búið að tengja kerfið í all-
ar götur borgarinnar. Kerfið var
því stolt borgarinnar og yfirvöld í
borginni hugsuðu með sér að best
væri að leyfa sem flestum að njóta
holræsakerfisins, í orðsins fyllstu
merkingu.
Fínar frúr með bros á vör
Nokkur fjöldi fólks hafði vinnu af
því að þjónusta ferðamenn í hol-
ræsakerfunum. Þessir starfsmenn
voru einfaldlega kallaðir holræsa-
menn og leiddu þeir
ferðamenn í gegnum
það hvernig kerfið
virkaði. Farið var í báta
sem sigldu í gegnum
holræsin við mikla
hrifningu farþega. Á
myndum má meðal
annars sjá fínar frúr
í sínu flottasta pússi
sitja prúðbúnar með
bros á vör líkt og um
barn í Disneylandi
væri að ræða.
Enn þann dag í
dag er boðið upp á ferðir um þessi
gömlu og fullkomnu holræsi. Þó að
búið sé að leggja bátunum og ferða-
menn þurfi ekki að hafa áhyggjur
af vondri lykt þykir það tilkomu-
mikil upplifun að heimsækja kerf-
ið sem aðgengilegt er frá safninu Le
Musée des Égouts de Paris. Safnið
sem um ræðir er skammt frá Eiffel-
turninum. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Ferð um holræsin Þykir tilkomumikil upplifun.