Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Page 19
Helgarblað 6.–9. nóvember 2015 Umræða 19 Gamli GluGGinn úr nýi GluGGinn í svo einfalt er það! súðarvoGur 3-5, reykjavík GluGGaGerdin@GluGGaGerdin.is s: 5666630 / GluGGaGerdin.is NíNa í Hollywood gekkst heimsfrægt fólk n Var ekki vel tekið á Íslandi er táknmynd hins goðsagnakennda hótels Waldorf Astoria á Manhattan. Hún vann opinbera keppni um lista- verk fyrir hótelið þar sem 400 aðrir listamenn tóku þátt og fjallað var um hana á forsíðum helstu dagblaða Bandaríkjanna. Sambúð í Hollywood Á Manhattan-árum sínum varð hún hluti af „gay“-senu bæjarins sem var einmitt sérlega lífleg á þessum tíma, til að mynda var hún góðvinkona einnar kunnustu lesbíu Bandaríkj- anna á þessum tíma, leikkonunnar, leikhússtjórans og leikstjórans Evu Le Galienne, en Nína gerði brjóst- mynd hennar sem afhjúpuð var með látum í þrítugsafmæli Evu á einu stórhótela New York 1929. Nína gerði brjóstmyndir af fleiri frægum konum, eins og hinni dáðu en ein- rænu stórstjörnu Gretu Garbo. Hún gerði einnig brjóstmynd af leikkon- unni Hedy Lamarr sem var á sín- um tíma talin fegursta kona í heimi. Hedy var einnig stórmerkilegur upp- finningamaður, þótt ekki kæmist sú iðja hennar í hámæli fyrr en rétt fyr- ir dauða hennar, en leikkonan þróaði meðal annars tækni sem var vísir að uppfinningum á borð við þráðlaust internet. Árið 1931 fluttist Nína til Los Ang- eles, eða raunar til Hollywood, og þar leigði hún hús með sambýlis- konu sinni, Polly James, þar sem þær bjuggu saman til ársins 1955. Polly var fastráðinn handritshöfundur hjá Universal Studios, en öfugt við það sem síðar varð var stór hluti hand- ritshöfunda í Hollywood konur um 1930. Polly vann meðal annars sem handritshöfundur fyrir Roy Rogers- myndirnar. Nína vann sjálf við kvikmynda- bransann og kynntist margs konar fólki, til að mynda tónskáldinu Cole Porter, sem var heimilisvinur þeirra Polly. Eftir Nínu liggja höggmyndir í Los Angeles og þar hóf hún líka að þróa stíl sinn í átt að list frumþjóða í Kyrrahafi og á vesturströnd Banda- ríkjanna. Ekki vel tekið á Íslandi Nína fór ekki aftur til Evrópu fyrr en árið 1947 þegar henni var boðið að koma til Íslands og hélt þá sýn- ingu í Reykjavík og þaðan hélt hún til Evrópulanda. Svo virðist sem hún hafi ekki ætlað sér að ílengjast á Ís- landi þegar hún kom þangað 1955 til að fylgja eftir sýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins, en úr varð að hún dvaldi áfram á Íslandi og fór aldrei til Bandaríkjanna framar. Henni var hins vegar ekki vel tekið á Íslandi. Það er undarlegt þegar haft er í huga að í um áratug var hún sá íslenski listamaður sem þekktastur var á alþjóðavísu, en kalda stríðið og hugmyndafræðileg átök ollu því að Nína passaði ekki vel í boxin. Vinstri mönnum fannst hún vera of hægri sinnuð, enda studdu áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum hana leynt og ljóst, og sú staðreynd að hún hafði búið í Hollywood var henni ekki til framdráttar. Hún þótti gamaldags og menn kveiktu ekki á nýjungum hennar, ekki síst vinnu hennar með fjölbreyttan efnivið. Nú á dögum sjáum við Nínu sem áhugaverðan art deco-listamann, en á þeim tíma var hún ekki talin hafa náð tökum á módernum stíl. Nína tók fljótt upp samband við konu, Sesselju, í Reykjavík þegar hún kom til Íslands og saman fóru þær til Flórens að vinna að því að steypa og móta Hafmeyjuna, en Thor Thors hafði verið aðalhvatamaður þess að hún yrði sett upp í Reykjavíkur- tjörn. Samband Nínu við Sesselju stuðaði borgarana og þótt aldrei hafi verið rannsakað hver spengdi Hafmeyjuna á gamlárskvöld 1959 bendir flest til þess að það hafi verið íhaldssamir Reykvíkingar, fremur en reiðir módernistar, þótt endanlega verði aldrei úr því skorið. Þetta hafði gríðarleg áhrif á Nínu og hún sagði sjálf að „eitthvað hefði dáið í sér“. Síðustu æviárin voru ekki ánægjuleg. Sesselja dó árið 1961 og Nína mun hafa drukkið um of. Hún lést árið 1965 úr krabbameini, 73 ára að aldri. n Nína með Evu Le Gallienne í New York árið 1929 Brjóstmynd Nínu var afhjúpuð í þrítugsafmæli Evu sem var risavaxið „decadent roaring twenties“ partí á Grand Hotel á Manhattan. Nína í Hollywood árið 1942 Nína er með fálkaorðuna á jakkaboðungnum og kærasta hennar Polly er í hvítri blússu á miðri mynd. Cole Porter stendur við hlið Nínu. „Vinstri mönnum fannst hún vera of hægri sinnuð, enda studdu áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum hana leynt og ljóst, og sú staðreynd að hún hafði búið í Hollywood var henni ekki til framdráttar. Hún þótti gamaldags og menn kveiktu ekki á nýjungum hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.