Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Síða 24
Helgarblað 6.–9. nóvember 201524 Fólk Viðtal Erfði kraftinn frá pabba Þ etta er alltaf jafn gaman og það langskemmtilegasta er návígið við viðskipta- vininn á gólfinu. Þangað fer ég reglulega, sér í lagi þegar eitthvað sérstakt er um að vera. Eftir alla mína reynslu er ég aðeins smá stund að lesa í aðstæð- ur, kúnnana, hvað verið er að tala um, hvað sé ábótavant, tísku, þjón- ustu og útlit verslunar. Ég elska þetta allt saman og er alltaf að gera mér grein fyrir því hvað ég er hepp- in að vinna við það sem mér þykir skemmtilegast,“ segir athafnakon- an Svava Johansen, eigandi tísku- veldisins NTC. Túristar versla meira Svava hefur staðið í verslunar- rekstri í rúm 30 ár en er langt frá því að vera komin með leiða. „Starfið hefur breyst mikið síðan við vor- um með eina verslun upp í allar þessar ólíku verslanir. Tímabilin eru líka margþætt, bæði er varð- ar tísku og efnahagssveiflur. Það hefur aldrei komið tímabil sem ég velti fyrir mér að snúa mér að ein- hverju öðru. Þetta er svo fjölbreytt. Við erum sífellt að fara á nýja staði, finna ný merki, gera nýja samninga, opna nýjar verslanir og svo breytist tískan svo ört. Nú er túrisminn kominn til landsins sem er mjög áhugavert. Ferðamenn eru farnir að versla hér meira og finn- um við fyrir því. Þeim finnst gam- an að versla sér tískuvörur frá Skandinavíu og þá skiptir ekki máli hvort það er á Íslandi, Danmörku eða í Svíþjóð, og þá reynum við auðvitað að ota okkar framleiðslu fremst en ein best seldu merkin okkar eru okkar framleiðsla, kven- fatamerkið MOSS og herramerkið MAO.“ Stolt af föður sínum Kaupmennska er Svövu í blóð bor- in en faðir hennar, Rolf Johan- sen, stofnaði innflutningsfyrirtæk- ið Rolf Johansen & Company árið 1957. „Ég hef alltaf verið svo stolt af pabba. Hann byggði sinn auð úr engu, kom ungur fátækur maður frá Reyðarfirði, eins og hann lýsti sér sjálfur, sem varð hæsti skatt- greiðandinn í mörg ár. Krafturinn í honum var ótrúlegur og ég held að ég hafi erft athafnaþrána og ork- una frá honum. Pabbi var alltaf að finna eitthvað nýtt, fá ný umboð, bæta við og prófa. Hann hafði svo sannarlega mikla athafnaþrá – þá sömu og ég finn renna í mínum æðum. Honum fannst ekkert eins skemmtilegt og ræða um viðskipti og vildi alltaf spjalla um bisness þegar við hittumst,“ segir Svava en Rolf lést árið 2007, 74 ára að aldri. Hávær en hjartagóður Svava ólst upp á Laugarásnum, þriðja í hópi sex systkina. „Það voru ákveðin forréttindi að vera miðjubarn ásamt Lindu systur við Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Svava Johansen hefur verið ein mest áber- andi kona íslensks viðskiptalífs um áraraðir en Svava hefur staðið í verslunarrekstri í rúm 30 ár og er langt frá því að vera komin með leiða. Indíana Ása Hreins- dóttir ræddi við Svövu um æskuna, fjölskylduna, föðurmissinn, viðskiptin, einkasoninn og ástina sem hún elskar að vinna og hlæja með. „Ég hef aldrei verið gift og hef aldrei prófað hvíta kjólinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.