Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Page 26
Helgarblað 6.–9. nóvember 201526 Fólk Viðtal
nema að hann komi inn í rekstur
inn með okkur seinna, það væri
draumur því það rennur kaup
mannsblóð báðum megin hjá hon
um aftur um þrjá ættliði. Hver veit?
Hann er með mikið keppnisskap
og myndi eflaust stýra þessu vel.“
Svava viðurkennir að hafa fús
viljað eignast fleiri börn en því
miður hafi sú ekki orðið raunin.
„Við Bjössi misstum fóstur þegar
við höfðum verið saman í rúm
þrjú ár. Við vorum nýbúin að fá
mynd úr sónar þegar það gerðist.
Það hefði verið yndislegt að eign
ast það barn. Ég var orðin 44 ára og
það kom mjög á óvart að ég væri
ófrísk. Það var ekkert planað. Það
var í rauninni ákveðið áfall en við
vorum orðin mjög spennt og farin
að plana og pæla og hlakka mikið
til. Við höfum fengið margt annað í
staðinn og þar á meðal góðan tíma
saman, við erum mjög frjáls. Auk
barnanna eigum við Lucas, svartan
labrador, sem telur sig bróður Ás
geirs Frank. Hann er mikill gleði
gjafi. Ég væri alveg til í að eiga fleiri
hunda.
Ég hef verið heppin. Ég á besta
mann í heimi, dásamlega fyndinn
og skemmtilegan son og æðislega
ljúfan labrador. Ég er eina stelp
an á heimilinu og fæ því alveg sér
staka meðferð.“
Staldrar ekki við það slæma
Svava pælir mikið í stjörnumerkj
unum en sjálf er hún jákvæð, sterk
og kröftug steingeit. Þrátt fyr
ir kraftinn hefur hún þó átt sínar
erfiðu stundir. „Ég óttast ekkert í
dag en eins og aðrir foreldrar ótt
ast maður alltaf um börnin sín. Ég
reyni að láta óttann ekki ná tökum
á mér eins og þegar ég var yngri.
Ég hef alltaf borðað hollan mat
og hugsað vel um heilsuna. Þegar
ég var tvítug bjó ég fyrir ofan 17 á
Laugaveginum og fór reglulega á
grænmetisstaðinn Á næstu grös
um en þar í dag er einmitt Gló,
uppáhaldsstaðurinn minn. Ég hef
einnig verið hjá vinkonu minni
Lóló í World Class í mörg ár og
segi alltaf að hún æfi ekki bara lík
amann heldur nærir hún einnig
sálina. Örn Jónsson, svæðanuddari
og heilari, er svo galdralæknirinn
minn, einstakur maður, enda hef
ég sent fullt af fólki til hans. Hann
er galdramaður, hjálpar manni
að tengja og vinna úr. Það er svo
yndislegt að vera laus við stress
eða kvíða.
Þegar allt gekk yfir, hrunið skall
á og ég vissi hvorki hvort við ætt
um ennþá fyrirtækið og húsið okk
ar, sem við höfðum nýlega fest
kaup á í erlendri mynt, lét ég það
ekki ná tökum á mér. Ég vissi að
svo lengi sem maður hefur heilsu
og fjölskyldan og vinir eru heilsu
hraust, þá líður manni vel og er
hamingjusamur og það er aðal
málið. Ég staldra aldrei við það
slæma. Ef eitthvað erfitt gerist hefst
ég strax handa við að vinna mig út
úr hlutunum. Það er svo vont að
festast í einhverju. Lífið snýst um
að vera í góðu jafnvægi. Ef mér líð
ur illa reyni ég ekki að velta mér
upp úr vandamálunum en finn
mér eitthvað skemmtilegt að gera,
horfi heldur til dæmis á grínmynd
með öllum strákunum mínum eða
kveiki á skemmtilegum sjónvarps
þætti, eitthvað sem ég veit að er
skemmtilegt og drepfyndið. Ég
finn mér leið til þess að ná mér í
ljós og gleði.“
Fyrst og fremst jafnréttissinni
Svava hefur verið ein af mest áber
andi konum íslensks viðskipta
lífs um langan tíma. Hún segir
landslagið gjörólíkt í dag og þegar
hún var ung að koma sér áfram í
karlaheimi. „Ég var oft eina kon
an í stjórnum en í dag skiptir kynið
ekki jafn miklu máli. Ég hef alltaf
verið hlynnt því að hæfasti einstak
lingurinn sé valinn en þar sem við
konur vorum svo aftarlega á mer
inni, bæði þegar kemur að stjórn
arsetum og pólitík, urðum við að
fara þessa einkennilegu leið og
taka upp kynjakvóta. Mér finnst
þessi leið ekki að mínu skapi en
miðað við hvar við vorum var þetta
sennilega nauðsynlegt. Allavega
hefur þessi leið virkað ágætlega.
Ég er fyrst og fremst jafnréttis
sinni og finnst stundum jafnvel
hallað á karlana. Í dag snýst allt um
konur. Við þurfum sums staðar að
eins að slaka á og númer eitt þarf
að vera sanngirni fyrir alla. Fyr
ir 20–30 árum og til dagsins í dag
þurftum við svo sannarlega að láta
í okkur heyra og það voru hörku
konur sem börðust fyrir því hvern
ig hlutirnir eru í dag. Útlitið hef
ur nú gjörbreyst og mér finnst við
þurfa að staldra við svo við yfir
gnæfum ekki karlpeninginn. Það
á ekki að skipta máli hvort maður
er karl eða kona. Ég á son sem ég
vil ekki að verði kaffærður af kon
um, ekkert síður en ég myndi vilja
að dóttur minni yrði kaffært af
körlum. Kynjakvóti hafði áhrif, hér
hefur orðið hugarfarsbreyting, og
vonandi fljótlega getum við tekið
hann af,“ segir Svava ákveðin.
Gamlárskvöld fallegast
Jólavertíðin nálgast og því er mik
il vinna fram undan hjá Svövu sem
hlakkar til komandi átaka. „Ég hef
alltaf gaman af aðventunni og hér
áður fyrr gaf ég mig alla í jólaver
tíðina og var því oft næstum sofn
uð ofan í forréttinn á aðfangadag.
Í dag er það breytt. Nú nýt ég að
ventunnar. Við Bjössi eigum mik
ið af góðum vinum og förum í að
ventuboð hér og þar. Jólin eru samt
alveg frábær fyrir verslunarmenn.
Glatt fólk og jólastemning í búð
um er eins og vítamínsprauta fyr
ir fólk eins og mig; brjálað að gera
alla daga og maður upplifir alla
vinnu ársins skila sér. Gamlárs
kvöld er þó fallegasta kvöld ársins,
við öll systkinin saman, makar og
börn hjá mömmu í glæsilegum
kvöldverði en mamma býr til svo
góðan mat enda eru allir tengda
synirnir með matarást á henni.
Mamma býr enn á Laugarásnum
þar sem við ólumst upp og við
erum stór hópurinn hennar, eða 29
manns.“
Hamingjusömust í golfi
„Mér finnst endalaust svo gam
an að byggja eitthvað upp og ef ég
er með eitthvert verkefni í gangi
stoppar mig ekkert og þar vinnum
við Bjössi svo vel saman – hann er
nefnilega naut og þau eru svo sterk
og vinnusöm og vilja byggja upp –
eins og steingeiturnar,“ segir Svava
og bætir aðspurð við að hún sé
drifin áfram af áhugaverðum verk
efnum í vinnunni og fólkinu sem
skiptir hana mestu máli. „Ég er
hamingjusömust úti á golfvellinum
með manninum mínum og syni.
Við erum heppin. Við eigum marga
yndislega vini og svo líður okk
ur líka afskaplega vel í bústaðnum
okkar í Öndverðarnesi. Það er fátt
betra en að taka góðan golfhring og
henda sér svo í pottinn á eftir. Fólk
ið mitt, vinir, fjölskyldan og Ísland.
Það er ekkert sem toppar það.“ n
„Það hefði verið
yndislegt að
eignast það barn
Glæsileg Svava tók
lífsstílinn í gegn fyrir fer-
tugsafmælið og svo aftur
fyrir fimmtugsafmælið.