Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Qupperneq 30
Helgarblað 6.–9. nóvember 201530 Sport
ÚRVAL
FÆÐUBÓTAREFNA
Glæsibæ & Holtagörðum
Netverslun: www.sportlif.is
Sterkustu
brennslu-
töflur í
Evrópu
Gefum Guttunum séns
n Einn ungur leikmaður í landsliðinu n Baráttan um eitt sæti í byrjunarliðinu
Í
slenska landsliðið í knattspyrnu
mætir Pólverjum og Slóvakíu í
vináttulandsleikjum í næstu og
þar næstu viku. Leikirnir gefa
Lars Lagerbäck og Heimi Hall-
grímssyni kjörið tækifæri til að fá
nýja menn inn í hópinn og sjá hvar
þeir standa. Fyrri leikurinn fer fram í
Varsjá í Póllandi á föstudag eftir viku
og sá seinni fjörum dögum seinna í
Zilina, Slóvakíu.
Síðustu þrír leikir slakir
Eftir að landsliðið vann sinn frækn-
asta sigur í sögunni gegn Hol-
lendingum í Amsterdam tóku við
þrír heldur slakir leikir. Fyrst marka-
laust jafntefli gegn Kasökum sem lit-
aðist reyndar af þeirri staðreynd að
okkur nægði jafntefli til að tryggja
farseðilinn til Frakklands. Svo komu
heldur slakir leikir gegn Lettum og
Tyrkjum þar sem uppskeran var að-
eins eitt stig.
Einn leikmaður undir 25 ára
Lars og Heimir verða eiginlega að
velja unga leikmenn í þennan hóp
því ef litið er til síðasta landsliðshóps
er Jón Daði Böðvarsson eini leik-
maðurinn í hópnum sem er yngri
en 25 ára. Nú er komið að því að sjá
Arnór Ingva Traustason, Sverri Inga
Ingason og Hauk Heiðar Hauksson
fá tækifæri til að vera með hópnum.
Eitt laust sæti í byrjunarliðið
Ef EM myndi hefjast í dag myndu
flestir geta tippað á hvaða lið þeir Lars
og Heimir myndu stilla upp. Baráttan
í dag snýst um þessa einu framherja-
stöðu með Kolbeini Sigþórssyni.
Staða sem Jón Daði hefur nánast
eignað sér en Alfreð Finnbogason og
Eiður Smári hafa gert tilkall til. En þá
hafa landsliðsþjálfararnir einnig sett
Jóhann Berg þangað og þá sett Emil
Hallfreðsson á vænginn. n
Hjörvars Hafliðasonar
Hápressa
P
aul Scholes, fyrrver-
andi leikmaður
Manchester United,
fer nú mikinn í fjöl-
miðlum í Englandi. Hann
hefur gagnrýnt Louis van
Gaal, knattspyrnustjóra
United, harkalega og sagt
hann spila leiðinlegan fót-
bolta og að hann sjálf-
ur hefði aldrei vilja spila
fyrir mann eins og van
Gaal sem vill spila svona
fótbolta.
Scholes virðist gleyma
því að þegar van Gaal tók
við þá var liðið í molum.
Endaði í sjöunda sæti úr-
valsdeildarinnar sem var
langversti árangur United
frá stofnum úrvalsdeildar.
Strax á fysta ári fór hann með
liðið aftur í Meistaradeild
Evrópu og er nú á öðru
ári með liðið aðeins fjór-
um stigum frá toppnum
og í efsta sæti í sinum riðli
í Meistaradeild Evrópu.
Ágætis viðsnúningur það.
En Scholes kýs að horfa
framhjá því og gerir allt
sem hann getur til að
koma félaga sínum af „92
kynslóðinni“, eins og hún er
kölluð, Ryan Giggs til varn-
ar. En Giggs er ekki öruggur
með starfið þegar van Gaal
fer frá félaginu. Því nú er
sagt frá því að Pep Gu-
ardiola hafi áhuga á starf-
inu, meðal annarra. n
Slakaðu á ScholesGagnrýnir van Gaal Paul Scholes fagnar einu marka sinna með
Manchester United.
„Ef litið er til
síðasta lands-
liðshóps er Jón Daði
Böðvarsson eini leik-
maðurinn í hópnum
sem er yngri en 25 ára
Fær hann tækifærið? Sverrir
Ingi Ingason ætti að fá tækifæri með
landsliðinu. Hér er hann í baráttu við
Andreas Cornelius, leikmann U21-liðs
Danmerkur, í viðureign Íslands og Dan-
merkur í undankeppni Evrópumóts
U21 2015. Orri Sigurður Ómarsson
fylgist með. Mynd EPA
Casillas
(Porto)
Spænska sprengjan
F
yrir tíu árum voru innan við
30 spænskir leikmenn skráð-
ir sem atvinnumenn utan
Spánar. Nú, 10 árum seinna,
eru þeir tæplega 500. Nærri læt-
ur að Spánverjar spili í öllum
deildum heims, sama hvort um
er að ræða Katar, Kína, Ísrael eða
í neðri deildum á Íslandi. En ein-
göngu Brasilíu menn og Argentínu-
menn eiga fleiri atvinnumenn utan
heimalandsins en Spánverjar.
Ástæðan er líklega einföld.
Knattspyrnan á Spáni hefur fundið
fyrir því erfiða efnahagsumhverfi
sem þar hefur ríkt á undanförnum
árum og félög hafa átt erfið með að
borga sömu laun og í deildunum í
kringum þau. Að undanskildum að
sjálfsögðu bestu liðum Spánar. n
Úrvalslið Spánar með
leikmönnum sem leika utan Spánar
Bekkur: De Gea (Man Utd) Morata
(Juventus) Pedro (Chelsea) Herrera (Man
Utd) Tello (Porto) Cazorla (Arsenal) Javi
Garcia (Zenit)
Azpilcueta
(Chelsea)
Martinez
(FC Bayern)
Albiol
(Napoli)
Bernat
(FC Bayern)
Fabregas
(Chelsea)
Alonso
(Bayern)
Mata
(Man Utd)
Alcantara
(FC Bayern)
Silva
(Man City)
Costa
(Chelsa)