Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Qupperneq 34
Helgarblað 6.–9. nóvember 201534 Lífsstíll
Perlueyrnalokka-
kúrinn virkar ekki
n Ólafur sendir frá sér bókina Lífsþróttur n Bendir á gagnsleysi margra megrunarkúra
N
æringarfræðingurinn
Ólafur Gunnar Sæmunds-
son sendi nýlega frá sér
bókina Lífsþróttur – nær-
ingarfræði fróðleiksfúsra,
þar sem hann tekur fyrir marga
mikilvæga þætti næringarfræðinn-
ar. Meðal þess sem Ólafur tekur
fyrir í bókinni eru óhefðbundnir
megrunarkúrar. Einhverjir þeirra
hafa notið mikilla vinsælda hér á
landi og fjöldi fólks telur þá hafa
gert gagn. Aðrir hins vegar hljóma
alveg galnir og það er hálf ótrúlegt
að hugsa til þess að einhverjir hafi
látið ginnast af þeim. Hér eru nokk-
ur dæmi um óhefðbundna kúra
sem náð hafa vinsældum.
Atkins-kúrinn
Atkins-kúrinn mun vera vinsælasti
megrunarkúr allra tíma, en hann
snýst um að lágmarka kolvetni í
mataræðinu og borða mikið af fitu.
Í bók sinni bendir Ólafur á að Atk-
ins-kúrinn brjóti nær allar mann-
eldisráðleggingar sem til eru og að
það séu engir töfrar sem búi að baki
þeim árangri sem næst með hon-
um. Vinsældir kúrsins benda þó
til þess að margir hafi náð sýnileg-
um árangri í baráttu við offitu með
því að fara á hann. Þyngdartap-
ið sem af honum hlýst er fyrst og
fremst tengt hita einingafjöldanum;
því færri hita einingar því meira
þyngdartap.
Blóðflokkamataræði
Bókin „Rétt mataræði fyrir þinn
blóðflokk“ kom út á Íslandi árið
1999 og náði strax miklum vinsæld-
um. Blóðflokkamataræði gengur út
á að fólk í tilteknum blóðflokki til-
einki sér mataræði á þeim tíma sem
blóðflokkurinn kom fram á sjón-
arsviðið og þá mun líkamsbruninn
aukast. En höfundur bókarinnar
fullyrðir til dæmis að O-blóðflokk-
urinn hafi komið fram um 50.000
árum fyrir Krist. Miðað við það ættu
einstaklingar í þeim blóðflokki helst
að neyta fæðu sem er rík af prótein-
um og forðast kolvetni. Ólafur seg-
ir hugmyndir um slíkt mataræði
ekki byggðar á neinum vísindaleg-
um rannsóknum. Honum tókst ekki
að finna nein lofsamleg ummæli
þekktra lækna og vísindamanna
um blóðflokkamataræði. Þvert á
móti fann hann margar umsagnir
fræðimanna á blóðflokkatilgátunni
þar sem komist var að þeirri niður-
stöðu að um væri að ræða illskilj-
anlega hugmyndafræði sem hefði
ekkert með vísindalegar staðreynd-
ir að gera.
Fastað tvisvar í viku
5:2 mataræðið hefur náð nokkrum
vinsældum á Íslandi en hugmynda-
fræði kúrsins byggist á því að fólk
fasti tvo daga í viku og borði eðlilega
hina fimm. Ólafur segir það vissu-
lega ekki koma á óvart að fólk sem
svelti sig tvo daga í viku léttist. Að
léttast getur auðvitað haft áhrif til
góða, sama með hvaða hætti það er
gert. Til dæmis til lækkunar á blóð-
þrýstingi og kólesteróli, þeir kvillar
tengjast gjarnan aukakílóum og þá
sér í lagi kviðfitu. Ólafur bendir á að
höfundur kúrsins megi eiga það að
hann varar marga við að fara á kúr-
inn, til dæmis þá sem þjást af sykur-
sýki 2, barnshafandi konur, börn og
þá sem þykja grannir. Að sögn Ólafs
eru ókostir kúrsins nokkuð margir.
Sem dæmi telur hann ólíklegt að fólk
geti tamið sér þessar neysluvenjur til
langs tíma. Þá er hætt við ofneyslu á
þeim dögum sem ekki er fastað. Kúr-
inn hefur verið gagnrýndur af fjölda
sérfræðinga í næringar- og læknis-
fræði og bent á að skortur sé á vís-
indarannsóknum sem styðji heilsu-
fullyrðingar og sanni að mataræðið
sé í lagi þegar til lengri tíma er litið.
Steinaldarfæði
Steinaldarmataræðið eða Paleo-
mataræði snýst um að borða eins
og talið er að steinaldarmenn gerðu.
Þeir sem fara á kúrinn leggja sér til
munns kjöt, fiskmeti, egg, grænmeti,
ávexti, hnetur fræ og ber, en sneiða
algjörlega hjá kornmeti, mjólkur-
afurðum, baunum og verksmiðju-
unnum mat. Í bókinni segir Ólafur:
„Tvær fullyrðingar heyrast nokkuð oft
þegar verið er að mæla með „steina-
ldarmataræðinu“. Fyrri fullyrðingin
snýst um aukið heilbrigði og sú
seinni um að rót offituvandans megi
fyrst og síðast rekja til kolvetnaneyslu
en ekki neyslu á fitu og prótein-
um. Áhugaverðar fullyrðingar sem
reyndar standast ekki skoðun enda
er ekkert sem á hönd er festandi sem
segir að steinaldarmaðurinn hafi
verið ímynd heilsu og heilbrigði eða
óvenju langlífur eða að einstaklingar
sem neyta hlutfallslega meira af kol-
vetnum verði frekar feitir.“
Megrunarduft
Fjölmargir megrunarduftskúrar hafa
náð vinsældum en ætli Herbalife sé
ekki einn sá vinsælasti. Fyrsta afurð
fyrirtækisins var próteinhristingur
en vöruframboðið hefur aukist jafnt
og þétt í gegnum tíðina. Margar af
þeim afurðum sem settar hafa verið
á markað hafa þó lítið með heilbrigði
að gera, að sögn Ólafs. Lyfjaeftirlit
ríkisins lagði bann við sölu um þriðj-
ungs vörutegunda Herbalife hér á
landi árið 1999, meðal annars vegna
þess að þær innihéldu ólögleg efni
líkt og efedrín.
Nupo létt megrunarduftið sló líka
í gegn hér á landi en kúrinn snýst
um að innbyrða um 700 hitaeiningar
á dag í formi hristinga. Það kann
engan að undra að fólk léttist hratt
á kúrnum, enda ástæðan frekar aug-
ljós.
Dr. Metz-skóinnlegg
Það eru eflaust einhverjir sem muna
eftir Dr. Metz heilsuskóinnleggj-
unum sem fengust í Sjónvarpskr-
inglunni fyrir einhverjum árum. Á
annarri hlið innleggjanna voru upp-
hleyptar gúmmítotur sem mynduðu
mynstur. Fullyrt var að toturnar virk-
uðu jákvætt á ýmsa líkamsstarfsemi,
líkt og að örva meltingu og auka
brennslu. Ýjað var að því að toturn-
ar virkuðu eins og kínverskt svæða-
nudd. Ólafur segir að eina ástæð-
an fyrir því að Metz-innleggin kunni
að hafa virkað fyrir einhverja sé sú
að þeir sömu hafi farið að hreyfa sig
meira til að ganga á innleggjunum.
Perlueyrnalokkar
Acu-perlueyrnalokkar voru seld-
ir í Sjónvarpsmarkaðnum um tíma.
Áttu þeir að vera segulmagnaðir og
búa yfir þeim eiginleikum að þegar
þeir þrýstu á eyrnasneplana átti
að draga úr matarlöngun. „Ástæða
þyngdartaps þeirra sem setja á sig
eyrnalokkana er augljós þar sem því
er lætt inn í auglýsinguna að jafn-
hliða því að notast við eyrnalokk-
ana sé reyndar nauðsynlegt að draga
úr neyslu og auka hreyfingu,“ segir
Ólafur. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Næringarfræðingur
Ólafur hrekur margar
mýtur í bók sinni um
næringarfræði.
Lífsþróttur Bókin tekur á mörgum þátt-
um næringarfræðinnar.