Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Page 10
Áramótablað 29. desember 201510 Fréttir Innlendur fréttaannáll
JANÚAR
2. janúar
Gekk nakinn hálfan
kílómetra
RÚV greinir frá því að Vífill Valgeirs
son hafi gengið, allsnakinn, um
fimm hundruð metra leið eftir hjálp
í kjölfar þess að eldur kom upp í
húsi hans á Bjargi í Eyjafjarðarsveit.
Eiginkonu hans og tengdamóður var
korteri síðar bjargað úr brennandi
húsinu – á elleftu stundu.
3. janúar
Allir sammála í
Reykjanesbæ
Þau tímamót verða
í Reykjanesbæ
að allir bæjar
fulltrúar greiða
atkvæði með
þriggja ára fjár
hagsáætlun
Reykjanesbæjar.
Það hefur aldrei gerst
áður í sögu bæjarins.
„Þetta er því afar ánægjuleg niður
staða sem styrkir okkur í þeirri
vinnu sem framundan er,“ var
haft eftir bæjarstjóranum.
7. janúar
Ráðist á
Charlie Hebdo
Ellefu eru myrtir og jafn
margir særðir í hryðju
verkaárás í miðborg Parísar
í Frakklandi. Íslendingar láta
ekki sitt eftir liggja og flykkjast að
baki fjölmiðlinum og aðstandend
um hans með myllumerkinu #Je
SuisCharlie,
8. janúar
Einhverfur skilinn
eftir
Faðir tveggja fatlaðra drengja, sem
reiða sig á ferðaþjónustu fatlaðra
hjá Strætó, greinir frá því að annar
sonurinn hafi verið skilinn eftir að
kvöldi til. Sá sem átti að sækja ann
an drenginn, sem bæði glímir við
fötlun og einhverfu, birt
ist aldrei. Þetta upp
götvaðist þegar
aðeins annar
þeirra skilaði
sér í matarboð
og reyndist
þetta drengn
um þungbært.
Frásagnir af
brotalömum á
þjónustunni rata
ítrekað í fjölmiðla en
Strætó lofar bót og betrun.
12. janúar
Fyrstur til að vinna
Golden Globe
Jóhann Jóhannsson hlýtur Golden
Globeverðlaunin, fyrstur Ís
lendinga. Hann samdi tónlist fyrir
kvikmyndina The Theory of Every
thing, sem fjallar um ævi vísinda
mannsins Stephens Hawking.
13. janúar
Múslimar á
Íslandi
rannsakaðir?
Framsóknarmaðurinn Ás
mundur Friðriksson gerir allt
vitlaust þegar hann spyr í blogg
færslu hvort búið sé að rannsaka
bakgrunn þeirra 1.500 múslima sem
búa á Íslandi. Tilefnið er hryðjuverk
in í París. Formaður Ungra jafnaðar
manna í Hafnarfirði leggur orð í belg
og spyr: „Á hvaða vegferð erum við
þegar þingmaður stærsta stjórn
málaafls landsins hvetur lögreglu til
ofsókna gegn minnihlutahópum?“
14. janúar
Man enn sviðann
DV greinir fyrstur fjölmiðla frá stofn
fundi samtakanna Bjarmans í Vest
mannaeyjum, en markmið þeirra er
að gefa þolendum kynferðisofbeld
is vettvang til að koma saman og
tala. „Ég man enn í dag sviðann sem
þessu fylgdi,“ segir Inga Guðgeirs
dóttir um kynferðisofbeldi sem hún
varð ítrekað fyrir þegar sjómaður
kom í land, með saltar hendur, og
misnotaði hana.
Mótmæli, verkföll
og fangelsisdómar
n Ár samfélagsmiðlabyltinga n Sorglega mörg banaslys n Deilur um bólusetningar
KR flugeldaR
KR Heimilinu Frostaskjóli
Opið til kl.22 í dag
Og til kl.16 á gamlársdag