Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Side 24
Áramótablað 29. desember 201524 Fréttir Innlendur fréttaannáll
12. ágúst
Jáeindaskanni frá Ís-
lenskri erfðagreiningu
Íslensk erfðagreining afhendir heil
brigðisráðherra 725 milljónir króna
að gjöf. Gjöfin er ætluð til kaupa á
jáeindaskanna. Um er að ræða lykil
tæki við umönnun krabbameins
sjúkra. Í kjölfarið berast fréttir um
að læknar telji fýsilegra að starfa
hérlendis þegar bætt er úr tækja
kosti með þessum hætti.
19. ágúst
Byrjendalæsi gagn-
rýnt
Samantekt Menntamálastofnunar
leiðir í ljós að Byrjendalæsi, aðferð
sem er þróuð hjá Háskólanum á Ak
ureyri og kennd í 80 grunnskólum,
leiðir til lakari einkunna nemenda
en þeirra sem læra að lesa sam
kvæmt hefðbundnari aðferðum.
Höfundar aðferðarinnar eru ósáttir
við einfaldaða framsetningu upplýs
inganna.
30. ágúst
Valtý Birni
misþyrmt á
heimili sínu
Tveir menn banka
upp á á heimili
íþróttafréttamanns
ins Valtýs Björns um
miðja nótt og ráðast
á hann með höggum
og spörkum. Barsmíðarn
ar eru svo hrottalegar að Valtýr
Björn missir meðvitund í tvígang.
31. ágúst
Icehot1
Eiginkona fjármála
ráðherra, Þóra Mar
grét Baldvinsdóttir,
stígur fram og opinber
ar að hún og eiginmað
ur hennar hafi fyrir forvitni
sakir stofnað saman reikning
á vefsíðunni Ashley Madison árið
2008. Vefsíðan markaðssetti sig sem
hið fullkomna tæki til þess að stunda
framhjáhald. Notendanafn þeirra
hjóna, Icehot1, slær í gegn á sam
félagsmiðlum.
31. ágúst
Kæra Eygló Harðar
Tugþúsundir Íslendinga skrá
sig á Facebookhópinn „Kæra
Eygló Harðar – Sýrland kallar“
enda ríkir mikil reiði í samfélaginu
í ljósi þeirra frétta
að Ísland ætli
aðeins að taka
við fimmtíu
flóttamönn
um. Lands
menn kepp
ast við að
bjóða fram
dvalarstað, föt
og aðra aðstoð.
SEPTEMBER
10. september
Ráðist á Gilbert
„Sober“
Fimm manns ganga í skrokk á Gil
bert um hábjartan dag við Smára
land. Árásarmennirnir beita meðal
annars kúbeini og hafnaboltakylfu.
Gilbert hlýtur slæma áverka og lýsir
því yfir að Hilmar Leifsson sé á bak
við árásina. „Ég er sextugur, ég er
ekkert í þessu,“ segir Hilmar og neit
ar staðfastlega að tengjast árásinni.
Hann segir að öryggismyndavélar
sýni að Gilbert eigi upptökin.
10. september
Mótmælt í mötuneyti
Yfir hundrað Starfsmenn í Borgar
túni 21 sniðganga mötuneytið í
húsinu til þess að sýna samstöðu
með tveimur konum sem störf
uðu í mötuneytinu og var sagt upp.
Ástæðan var sú að konurnar sættu
sig ekki við launalækkun upp á tugi
þúsunda. Mótmælin báru árangur
og konurnar eru endurráðnar á kjör
um sem þær eru sáttar við.
15. september
Reykjavíkurborg
leggur viðskiptabann
á Ísrael
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykk
ir að fela skrifstofu borgarstjóra, í
samvinnu við innkaupadeild, að
undirbúa og útfæra sniðgöngu
Reykjavíkurborgar á ísraelskum
vörum meðan hernám Ísraelsríkis