Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 85
Fólk 57Áramótablað 29. desember 2015
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
2
51
11
5
Stærð: 90x200cm
Verð: 83.709 kr.-
Tilboð: 66.967 kr.
Stærð: 120x200cm
Verð: 98.036 kr.
Tilboð: 78.429 kr.
Stærð: 153x200cm
Verð: 124.620 kr.
Tilboð: 99.696 kr.
ROYAL CORINNA
ÞAÐ LÍÐUR AÐ JÓLUM
Þægileg millistíf dýna með fimm-svæðaskiptu poka-gorma kerfi og góðann mjúkan topp
ásamt hörðum PU-leðurklæddum botni á stál löppum
Platan rauk út Rapparinn Gísli Pálmi lét að sér kveða á árinu en fyrsta
plata hans fór í sölu í apríl. Hún rauk út og hefur verið valin ein af bestu plötum ársins.
Á meðal þeirra bestu Björgvin Karl Guðmundsson stimplaði sig
ærlega inn í crossfit-heiminn með því að hirða bronsið á heimsleikunum í júlí. Stórstjörnurnar
Dan Bailey og Mathew Fraser voru í fyrsta og öðru sætinu.
Stal senunni Almar Atlason
stal senunni þegar hann dvaldi í glerkassa í
heila viku í Listaháskóla Íslands. Gjörningur-
inn vakti gríðarlega athygli.
Sakaður um mannréttindabrot Sævari Helga Bragasyni,
formanni Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, skaut fram í sviðsljósið í tengslum við
sólmyrkvann í vor. Sævar Helgi stóð fyrir því að öll grunnskólabörn landsins fengu sérstök
sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með sólmyrkvanum sem var sá mesti hérlendis í sextíu ár.
Ekki fór þó betur en svo að Sævar Helgi var sakaður um mannréttindabrot þar sem
leikskólabörn fengu ekki gleraugu líka.
Upphafskona
byltingar Rithöfundurinn Bryndís
Björgvinsdóttir opnaði Facebook-síðuna
Kæra Eygló – Sýrland kallar. Á síðunni buðu
tíu þúsund Íslendingar flóttafólki aðstoð
sína. Uppátækið vakti alþjóðlega athygli.
Glowie glóir Söngkonan Glowie söng eitt vinsælasta lag ársins, No More eftir
StopWaitGo. Glowie, sem heitir Sara Pétursdóttir, sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna í
fyrra. Við eigum eflaust eftir að heyra mun meira í þessari flottu stelpu.
Tvöfaldur heimsmeistari Handboltaþjálfarinn Þórir Hergeirsson
varð heimsmeistari í annað sinn í desember þegar hann og norska kvennalandsliðið í
handbolta tryggðu sér sigur á Hollandi í úrslitaleik mótsins í Danmörku. Norsku stelpurnar
urðu líka heimsmeistarar undir stjórn Þóris árið 2011. Ótrúlegur árangur.
Umdeild Vigdís Vigdís Hauksdóttir
var mikið í umræðunni á árinu bæði sem formaður
fjárlaganefndar og með hinum ýmsu stöðuupp-
færslum og ummælum.
Fjölhæf Ágústa Eva
Árið 2015 var að mörgu leyti árið hennar
Ágústu Evu. Söng- og leikkonan fékk að
sanna sig og lék meðal annars aðalhlut-
verkið í Línu langsokk sem sett var upp í
Borgarleikhúsinu, lék í kvikmyndinni Bakk
og var á meðal dómara í Ísland Got Talent.
Þar að auki hefur Ágústa verið að jafna sig
eftir alvarlegt slys á bílaþvottastöð.
Ljónsterk
Fanney Hin
unga en ljónsterka
Fanney Hauksdóttir
sigraði á heims-
meistaramóti í
bekkpressu sem fram
fór í Svíþjóð í maí og
varð stigahæst allra á
mótinu. Fanney á
heimsmetið í
greininni í sínum
flokki.