Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Síða 18
Helgarblað 28.–31. ágúst 201518 Umræða PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET... ÚTSALA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Revestimiento Ace Negro 33,3x100 cm Ace Blanco 33,3x100 cm Pavimento Crystal Floor White 33,3x33,3 cm Crystal Floor Dark 33,3x33,3 cm Verðdæmi: Harðparket eykarplanki 8mm kr. 1990.- m2 Tarkett viðarparket eik 3 stafa kr. 3990.- m2 Teppi og dúkar 25-70% afsláttur Gólfflísar 30 x 60 frá kr. 1990.- m2 Þúsundir fermetra af flísum með 20%-70% afslætti Reknir í faðm Rússa n Upphaf austurviðskiptanna n Samfelld verslun frá árinu 1953 U m fátt hefur verið meira rætt á undanförnu en bann Rússa við innflutningi mat- væla frá Íslandi. Austurvið- skiptin eiga sér samfellda sögu allt frá árinu 1953, en aðdrag- andi þeirra var allsérstakur. Landhelgin færð út Alþingi samþykkti lög um vísinda- lega verndun fiskimiða landgrunns- ins árið 1948. Á grundvelli þeirra var sett reglugerð um útfærslu land- helginnar úr þremur mílum í fjórar vorið 1952. Þegar reglugerðin var kynnt sagði í fréttatilkynningu að í reynd væru það fiskveiðarnar sem gerðu landið byggilegt. Ofveiði og minnkandi afli væru ógn við af- komu landsmanna, en 95% útflutn- ingstekna kæmu af sölu sjávar- afurða. Hálfum mánuði áður en reglu- gerðin átti að taka gildi gekk sendi- herra Breta á Íslandi á fund Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra og afhenti honum harðorða til- kynningu frá bresku stjórninni um málið. Viðbrögð Breta vöktu reiði hér heima. Þjóðviljinn sagði Breta hafa í hótunum og að þeir vefengdu rétt Íslendinga til fiskimiðanna. Ríkisstjórnir Vestur-Þýskalands, Frakklands, Hollands og Belgíu mótmæltu einnig stækkun land- helginnar. Löndunarbann Íslendingar svöruðu orðsendingu bresku stjórnarinnar af fullum þunga. Útfærsla landhelginnar væri í fullu samræmi við alþjóðalög og var vísað til fordæmis Norðmanna í því sam- hengi. Spennan magnaðist og í sept- ember 1952 ákváðu félög útgerðar- manna í Grimsby og Hull að banna löndun úr íslenskum skipum. Full- trúar íslenskra stjórnvalda héldu til Lundúna og funduðu með þarlend- um ráðamönnum, en viðræður skil- uðu engum árangri. Yfir 80% ísfisksaflans fór á Bret- landsmarkað fyrstu átta mánuði ársins 1952, svo gríðarlegir hagsmun- ir voru í húfi fyrir þjóðarbúið. Gerð- ar voru ýmsar tilraunir til að rjúfa löndunarbannið en þær báru ekki ár- angur. Framleiðsla á skreið, frystum fiski og saltfiski jókst til muna í kjöl- far bannsins, en sala afurðanna var erfiðleikum háð. Nú voru góð ráð dýr. Leita þyrfti nýrra markaða. Moskwitch og Rússajeppar Kjartan Thors, formaður Félags ís- lenskra botnvörpuskipaeigenda, sagði aðspurður um þessi mál að Rússar hefðu „lengi viljað fiskinn okk- ar en við höfum ekki verið neitt sér- lega æstir í viðskipti. Það er hins vegar verið að reka okkur í faðm þeirra með þessu banni. Það er visst gjald sem allar smáþjóðir sem eiga viðskipti við Rússa þurfa að borga. Það er verð sem ég vona að við verðum ekki að borga.“ Úr varð að Íslendingar leituðu til Sovétmanna, en nokkur viðskipti höfðu verið milli landanna á árum nýsköpunarstjórnarinnar. Jósef Stalín lést vorið 1953 og í kjölfarið jókst áhugi þar eystra á viðskiptum við ríki vestan járntjalds. Um sumarið þetta sama ár hófust viðræður milli landanna um vöruskipti og samningur var undirrit- aður hinn 1. ágúst. Sovétmenn féllust á að kaupa stóran hluta íslenskra sjáv- arafurða, síld og frosinn fisk, en á móti keyptu Íslendingar af þeim ýmsar vör- ur, sér í lagi olíu og annað eldsneyti og um nokkurt skeið var allt innflutt eldsneyti frá Sovétríkjunum (hvort sem það var selt undir vörumerkinu Shell, Esso eða BP). Einnig fengu Ís- lendingar mikið af steypustyrktar- járni, timbri og annarri byggingarvöru að austan. Þá var keypt hveitiklíð af Rússum, einnig rúgmjöl og kartöflu- mjöl. Samið var kaup á sem svaraði ársþörf landsmanna af þessum vör- um. Að auki keyptu Íslendingar sové- skar bifreiðar, sem urðu algeng sjón á vegum landsins á næstu árum. Fyrst kom Pobeda, síðan Moskwitch, Volga og GAZ 69, sem var aldrei kallaður annað en Rússajeppi hér, og var mik- ið notaður víðs vegar um land. Sov- étmenn keyptu þó ekki einungis fisk héðan, heldur einnig niðursuðuvörur og ullarafurðir. Útflutningur til Sovét- ríkjanna nam 12,6% af heildarútflutn- ingi árið 1953 og fór upp í 15,2% árið eftir. Austurviðskiptin skiptu sköpum fyrir þjóðarbúið þessi ár. Skreið til Ítalíu Þjóðviljinn fagnaði samningunum ákaft og sagði Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra þar með hafa „ját- að í verki að marsjallstefnan í afurða- sölumálum hafi beðið algert skip- brot“. Morgunblaðið lýsti einnig ánægju sinni en vitaskuld með öðr- um hætti. Blaðið vísaði til ræðu ut- anríkisráðherra sem sagði enga þjóð vera jafn háða utanríkisverslun og Ís- lendinga. Þetta væru því mikil tíðindi og góð. Bjarni nefndi að fyrir land sem byggi við jafn einhæfa framleiðslu og Ísland væri nauðsynlegt að tryggja markaði sem víðast svo það yrði eng- um einum aðila háð í viðskiptum. Í lok ræðu sinnar sagði Bjarni: „Er það von mín, að þessi nýja afstaða Sovét- ríkjanna sé fyrirboði um bætta sam- búð, ekki aðeins í viðskiptamálum heldur einnig um önnur alþjóðamál.“ Um líkt leyti opnuðustu fleiri mark- aðir, til að mynda fyrir skreið til Ítalíu og Nígeríu. Og þá tókust viðskipta- samningar á næstu árum við Austur- Þýskaland, Pólland, Tékkóslóvakíu og Ísrael. Útflutningur til Bandaríkjanna jókst einnig. Markaðir fundust fyrir allar íslenskar afurðir og mikil upp- bygging varð á næstu árum í frysti- iðnaði og ný fiskiðjuver risu. Til langs tíma litið styrktist staða Íslendinga í kjölfar löndunarbanns Breta. Ís- lendingar sneru erfiðri stöðu sér í hag og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinn- ar var treyst í sessi. Bandalagsþjóð eða óvinaríki? Rússaviðskiptin ollu áhyggjum inn- an Atlantshafsbandalagsins. Sumir töldu jafnvel að Ísland væri að falla í faðm Sovétmanna og voru Bretar gagnrýndir fyrir hörku gagnvart Ís- lendingum. Fáum duldist að pólitísk markmið bjuggu að baki viðskipt- unum af hálfu Rússa. Þeir vonuð- ust til þess að unnt yrði að hafa áhrif á stefnu Íslendinga í varnarmálum síðar meir og að vinsældir þeirra og sósíalista myndu aukast hér innan- lands. Ólafur Thors tók við embætti forsætisráðherra í september 1953. Hann mun eitt sinn hafa sagt að hann hefði þá reglu að ætla mönnum aldrei illt nema hann reyndi þá að því. Aldrei létu Íslendingar aðstoð Rússa hafa áhrif á utanríkisstefnu landsins og víst er að hinar íslensku afurðir nutu mikillar hylli í Austurvegi. Kalda stríðið var í algleymi á þess- um árum, en sú einkennilega staða var komin upp að helstu óvinir ís- lenskra viðskiptahagsmuna áttu að heita bandalagsþjóð Íslendinga í vestrænni varnarsamvinnu. Banda- ríkjamönnum ofbauð framferði Breta, sem hefðu að þeirra mati látið frekju nokkurra útgerðarmanna í Grimsby og Hull ógna öryggishags- munum Vesturveldanna. Dwight Eisenhower Bandaríkja forseti stakk meira að segja upp á því árið 1955 að aðilar vestanhafs yfirbyðu Sovét- menn og keyptu allan afla Íslendinga! Deila Breta og Íslendinga leystist ekki fyrr en síðla árs 1956, en þá var þess skammt að bíða að frekari átök yrðu milli þjóðanna vegna útfærslu landhelginnar í 12 mílur. Háttsettur breskur embættismaður í utanríkis- ráðuneytinu í Lundúnum skrifaði af því tilefni: „Það veldur vonbrigðum að þurfa enn einu sinni að horfa upp á það að á alþjóðavettvangi geta ófyr- irleitin smáríki leyft sér að segja okk- ur fyrir verkum og svokallaðir vinir og bandamenn ætlast til þess að við sýnum háttsemi og vægjum fyrir lítil- magnanum.“ Hroki hins gamla heimsveldis gagnvart smáríkinu leyndi sér ekki. Óslitin viðskipti í 62 ár Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðing- ur telur að „vald hinna veiku“ hafi stóraukið mátt litla Íslands. Hann vísar þar til orða járnkanslarans Ott- os von Bismarck sem eitt sinn benti á að lítil ríki gætu notið samúðar vegna smæðar sinnar, en þau væru oft einnig nauðsynlegur bandamaður stærri ríkja. Hvort tveggja hafi átt við í landhelgisdeilunni. Bresku útgerðarfélögin óskuðu á þessum árum ítrekað eftir því að floti hennar hátignar yrði látinn skerast í leikinn. Þær óskir náðu ekki fram að ganga á þeim tíma. Ekki gátu Bretar farið að berja á bandalagsþjóð í vest- rænni varnarsamvinnu á sama tíma og yfirgangur Sovétmanna víðs vegar væri látinn óátalinn. Átök Íslendinga og Breta áttu eft- ir að harðna mjög við útfærslu land- helginnar í 12 mílur 1958 og aftur þegar komið var fram á áttunda ára- tuginn, en viðskiptin við Rússa hafa haldist óslitið í 62 ár. Allt þar til nú. Heimildir: Þorskastríðin. Fisk- veiðideilur Íslendinga við erlendar þjóðir. Ritgerðasafn. – Bók Guðna Th. Jóhannessonar: Þorskastríðin þrjú. – Fréttir blaðanna á sínum tíma. n „Fáum duldist að pólitísk markmið bjuggu að baki viðskipt- unum af hálfu Rússa. Bjarni Benediktsson Sagði enga þjóð jafn háða utanríkisverslun og Íslendinga. Forsíða Þjóðviljans Þjóðviljinn fagnaði ákaft samningunum við Sovétríkin. Jósef Stalín var þá nýlátinn. GAZ 69, sem var aldrei kallaður ann- að en Rússajeppi hér Þessi er kominn til ára sinna og er í eigu Ómars Ragnarssonar. Björn Jón Bragason bjornjon@dv.is Fréttir úr fortíð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.