Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Side 24
Helgarblað 28.–31. ágúst 201524 Fólk Viðtal Sitjum eftir í gamla tímanum Í lok mars 2009 var Bjarni Bene- diktsson kosinn formaður Sjálf- stæðisflokksins á landsfundi flokksins. Bjarni varð þar með ní- undi formaður Sjálfstæðisflokks- ins og hlaut hann nokkuð afgerandi kosningu. Hann hefur gegnt embætti í rúm sex ár og leitt flokkinn á erfið- um tímum í ólgusjó eftirhrunsár- anna. Formaðurinn viðurkennir fús- lega að hann er ekki sáttur við hvernig flokkurinn mælist núna. „Hins vegar komst flokkurinn mjög vel frá sveit- arstjórnarskosningum í fyrra. Það má segja að Reykjavík hafi verið eini stað- urinn sem olli okkur vonbrigðum. Ég er hins vegar ekkert feiminn við að benda á það að líklega hefur flokk- urinn ekki gengið í gegnum jafn langt tímabil með svo slæma mælingu í kosningum og skoðanakönnunum eins og undanfarin ár.“ Hvað veld- ur þessari lægð sem flokkurinn er að ganga í gegnum? Ef þú vilt breyta færðu áheyrn Formaðurinn, snyrtilegur og spengi- legur, hagræðir sér í leðurstólnum og lagar bindið. Hann lítur upp. „Ég byrja nú iðulega á að líta í spegil og spyr mig hvort hluti af því sem við erum að gera sé ekki að ná til kjós- enda.“ Hann heldur áfram og segir að auðvitað hljóti það að vera hluti af skýringunni. „Auðvitað er líka rétt að benda á að við erum að lifa mjög undarlega tíma í stjórnmálunum. Það virðist hafa orðið mikið rof milli kjósenda og stjórnmálaflokkanna. Sérstaklega þegar horft er til þessara rótgrónu flokka. Þetta birtist meðal annars í því að nýir flokkar virðast eiga sérstaklega upp á pallborðið um þessar mundir. Við sáum nýtt stjórn- málaafl komast inn á þing í kosn- ingunum 2009. Sama gerðist í síðustu kosningum, þegar Píratar rétt slef- uðu inn á þing. En það komu líka ný öfl eins og Björt framtíð og samanlagt voru þessir tveir flokkar með þokka- legt fylgi. Og það ber að skoða fylgis- tölur í því ljósi að þetta er að dreifast á fleiri flokka en áður. Andrúmsloft- ið sem skapaðist eftir hrun gerði það að verkum að nýjum öflum reyndist auðveldara að fá áheyrn. Ég hef til- hneigingu til að segja að um þessar mundir færðu áheyrn ef þú segist vilja breyta, óháð því hverju þú vilt breyta. Svo hjálpar mikið til ef þú hefur enga pólitíska fortíð.“ Bjarni veltir því fyrir sér hvort hann sé búinn að svara spurningunni. Hann bendir á að þetta sé flókin staða og erfitt að útskýra með einföldum hætti. „Hitt veit ég,“ segir hann for- mannslega. „Það er bara ein leið út úr stöðunni og það er að standa sig í því sem maður er að gera. Sýna fólki að maður sé traustsins verður og geti náð árangri í því að bæta lífskjör- in í landinu. Það hlýtur alltaf að vera svarið, hver svo sem ástæðan fyrir krísunni kann að vera.“ En er þetta bil eða rof brúanlegt í náinni framtíð? Milli kjósenda og stjórnmálaflokka? „Já. Það tel ég vera. Það hafa orðið valdaskipti hér frá hruni. Ef við horf- um aftur til 2007, þá hafa Vinstri grænir, Samfylking, Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn komið að stjórn landsins í mismunandi mynstr- um, þannig að menn hafa fengið útrás í gegnum lýðræðislegar kosn- ingar til að gera breytingar. Og ég tel að þær hafi verið nokkuð dramat- ískar. Um leið finnst mér staðfest að þetta er rétta kerfið, sem við búum við. Fjögurra ára kjörtímabil og lýð- ræðislegar kosningar. Ég sé ekki aðra leið sem ætti að vera betri. Varðandi traustið þá tel ég að það muni á end- anum haldast í hendur við hvernig gengur að draga fram lífið á Íslandi. Hvernig gengur að þétta samfélags- sáttmálann sem verður að vera til staðar. Þar vísa ég til þess sáttmála sem verður að vera í gangi og tryggir að mönnum ofbjóði ekki framganga ákveðinna afla, hópa eða hvernig komið er fram við þá sem standa höll- um fæti í sam félaginu. Sá sáttmáli er límið í okkar samfélagi.“ Flokkurinn þarf að aðlagast breyttum veruleika Hvert viltu fara með Sjálfstæðisflokk- inn á næstunni? Viltu færa hann til á litrófinu og þá í hvora áttina? „Ég tel að lykillinn að því að auka aft- ur fylgi sé ekki síst að ná að viðhalda þeirri miklu breidd sem flokkurinn hefur haft í gegnum tíðina. Hann hef- ur náð yfir ólík sjónarmið en þó búið við skýr grunngildi og stefnumál. Mér finnst mjög mikilvægt að viðhalda þessu og að ólíkar áherslur eigi ekki að skilja menn að sem eru sam- mála um grunngildin. En nákvæm- lega á þessum tímamótum, sem við stöndum á í dag, verandi að koma út úr efnahagshruninu, tel ég að Sjálf- stæðisflokkurinn þurfi að laga sig að breyttum veruleika með stefnumál- in. Við þurfum að slípa þau betur til þannig að við náum betur til þeirra sem ætla að byggja landið í fram- tíðinni. Við þurfum að fara að horfa til nýrra tækifæra sem spretta út frá grunnatvinnuvegunum. Við þurfum að teikna upp spennandi tækifæri fyrir framtíðina.“ Þú segir slípa til. Slípaðu aðeins fyrir mig. Hvaða málaflokka ertu að horfa á? Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðis flokksins segir flokkinn þurfa að aðlagast breyttum veruleika. Hann ræðir stjórnmálin innan flokks og utan í helgarviðtali DV. Hanna Birna þarf nýtt umboð frá landsfundi að mati formannsins. Bjarni var mjög nálægt því að hætta hálfum mánuði fyrir síðustu kosningar. Hann gerir það mál upp á einlægan hátt. Gengi Stjörnunnar hefur verið mikil vonbrigði fyrir gamla varnarjaxlinn. „Þennan dag var ég mjög nálægt því að hætta. Það sem var erfiðast fyrir mig í sam- tölum við stuðningsmenn og fjölskyldu var að ræða við mína nánustu fjöl- skyldu. Eggert Skúlason eggert@dv.is Breyttur veruleiki Bjarni Benediktsson segir að Sjálf- stæðisflokkurinn þurfi að aðlaga stefnumál sín breyttum veruleika. Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.