Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Side 27
Helgarblað 28.–31. ágúst 2015 Bílar og viðhald - Kynningarblað 3 Nýir bílar á betra verði Persónuleg þjónusta hjá Sparibíl B ílasalan Sparibíll hefur frá árinu 2003 boðið upp á ódýrari nýja og notaða bíla en gengur og gerist hjá bíla- umboðunum. Að sögn Vikt- ors Urbancic, eiganda Sparibíls, hef- ur markmiðið alltaf verið að halda yfirbyggingunni eins lítilli og hægt er til þess að halda verðinu lágu. „Eftir að markaðurinn opnaðist með inn- göngu í EES gátum við boðið nýja bíla á betra verði en þekkst hef- ur hér á landi. Við erum í rauninni ekki að gera neitt öðruvísi en Elko eða Max-raftæki sem eru að selja alls konar vörumerki í einni búð. Við erum einfaldlega að gera það sama með bílana, sem er kannski aðeins stærra heimilistæki en t.d. ísskápur,“ útskýrir Viktor. Á Fiskislóð Fljótlega eftir að að fyrirtækið var opnað á Skúlagötunni fyrir rúmum tíu árum varð ljóst að húsakynn- in voru of lítil. Viðskiptin fóru mjög hratt af stað, en þarna var nánast ekkert pláss til að afhenda bíla. „Við höfðum ekki einu sinni bílastæði,“ segir Viktor og hlær. Því var fljótlega tekin ákvörðun um að flytja í stærra hús, með bílastæðum, og varð Fiski- slóð 16 úti á Granda fyrir valinu. „Þetta snýst einfaldlega um það að koma bílnum til kúnnans með sem minnstum tilkostnaði og þar af leið- andi á sem lægsta verði. Við höfum einnig verið að kaupa bíla af stór- um bílaheildsölum sem eru líka með litla yfirbyggingu. Einn af mínum birgjum, sem selur um 15 þúsund bíla á ári, er í álíka stóru húsi og ég er með og sjö til átta sem vinna í fyr- irtækinu. Þessi hópur selur fleiri bíla en öll umboðin á Íslandi til samans.” Sparibíll hefur líka haft milligöngu um breytingar á bílum, t.d. varðandi leðuráklæði og fleira. Þess má geta að Sparibíll hefur sérhæft sig sérstak- lega í sölu ódýrra sendibíla, en þeir eru með nokkra slíka á lager. Viktor segir að fyrirtækið hafi þróast út í það að vera með dýrari fólksbíla á sölu, án þess þó að hafa lagt upp með það. „Það er bara vegna þess að þar er verðmunurinn í krónum meiri. Við myndum gjarnan vilja selja fleiri ódýrari bíla, en þar er munurinn kannski „aðeins“ hundrað þúsund krónur.“ Full ábyrgð Viktor segir að Íslendingar séu enn að venjast því að kaupa bíla af öðr- um aðilum en umboðunum. „Fólk er oft hrætt um að bílarnir frá okkur séu ekki í ábyrgð, en þeir eru vissulega í jafn mikilli ábyrgð þó svo að annar aðili en umboðið selji þeim bílinn,“ útskýrir Viktor, en það er tveggja ára verksmiðjuábyrgð á öllum nýjum bíl- um og svo er boðið upp á framlengda ábyrgð. „Við erum jafnframt í góðri samvinnu við umboðin, en það felst í þeirra starfi að þjónusta þau vöru- merki sem þau hafa umboð fyrir, með varahluti og annað.“ Allir greiðslu- skilmálar hjá Sparibíl eru eins og er að vænta hjá bílaumboðunum; bíla- lán, uppítaka og svo er einnig boðið upp á langtímaleigu á atvinnubílum. Það er því í rauninni enginn munur á því að kaupa bílinn af Sparibíl. „Fyrir utan að verðið er lægra og þjónustan persónulegri,“ segir Viktor. n Sendibíll Sparibíll hefur sérhæft sig í sölu ódýrra sendibíla, t.d. Renault Trafic.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.