Fréttatíminn - 19.02.2016, Side 36
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
BLEIKIR DAGAR
10% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM BLEIKUM VÖRUM TIL KONUDAGS!
MÚS OG PENNI
1.495
GJAFATASKA
AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR 2.990
50%
BLING HEYRNARTÓL
2.490
AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR 4.990
50%
14” FHD FARTÖLVA
89.900
P8LH
5
10
ÞÚSUND
AFSLÁTTU
R
VERÐ ÁÐU
R
99.900
ACERASPIRE14” FHD FARTÖLVA MEÐDUAL CORE ÖRGJÖRVA8GB MINNI, 500GB SSHD DISK OG WINDOWS 10
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Margar
stærðir
og gerðir
PVC mottur 50x80 cm1.590
66x120 cm kr 2.890
100x150 cm kr 5.590
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Breidd: 67 cm
Verð pr. lengdarmeter
1.595
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
1.890
3mm gúmmídúkur fínrifflaður
1.990pr.lm.
Gúmmímottur margar
gerðir og stærðir,
verðdæmi 66x99cm
2.190Gúmmí takkamottur
61x81cm 3.590
81x100cm 5.990
91x183cm 8.990
Fæst í apótekum og heilsubúðum
Góð melting styrkir ónæmiskerfið
Stjórnaðu bakteríu-
flórunni með OptiBac
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Víetnamskar
vorrúllur
Hrísgrjónapönnukökur
Salatblöð
Agúrka
Kóríander
Ferskar rækjur
Sojabaunasósa
Vermicelli (hrísgrjónanúðlur)
Aðferð: Rækjurnar soðnar og græn-
metið skorið niður. Núðlurnar soðnar
og svo skolaðar í köldu vatni. Dýfðu
pönnukökunum í volgt vatn en passaðu
að þær blotni ekki of mikið. Og þá er
hægt að byrja að rúlla öllu í kökurnar.
Sósan: Hægt er að nota hvaða sósu sem
er en chinsu sojabaunasósa er klass-
ískt meðlæti. Einnig er hægt að nota
hnetusósu, chilisósu eða ferskt chili og
kóríander, niðursneitt í fiskisósu.
Uppskriftin
Alvöru matur fyrir fjölskyldur í hverfinu
Duc Manh og Thuy Duong
reka saman eina alvöru víet-
namska veitingastaðinn á
Íslandi.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Við nefndum staðinn Víethouse
því við viljum að þetta sé eins og
heimili. Þetta á að vera eins og þú
sért að koma í heimsókn til okkar
og réttirnir á matseðlinum eru
allir uppáhaldsréttirnir okkar frá
Víetnam,“ segir Duc Manh Duong,
eigandi eina víetnamska veitinga
hússins á Íslandi, Viethouse í
Breiðholti. „Við ákváðum upphaf
lega að koma til Íslands því syst
kini mín voru öll flutt hingað. Ég
kom eiginlega til að spara peninga
fyrir þau, svo þau þyrftu ekki að
heimsækja mig til Víetnam,“ segir
Duc og hlær. „Við komum hingað
með dætur okkar tvær í desember
árið 2000 og fyrsti veturinn var
mjög erfiður. En svo kom sumarið
og þá ákváðum við að setjast hér
að.“
Varð ólétt og langaði í
víetnamskan mat
Þremur árum síðar var fjölskyldan
búin að koma sér vel fyrir í Breið
holtinu. „Þegar Thuy varð svo
ólétt að yngsta barninu okkar fór
hún að þrá víetnamskan mat sem
var ekki hægt að fá Íslandi. Hér
eru nokkrir austurlenskir staðir
en enginn þeirra eldar alvöru víet
namskan mat því það vilja allir
kínverskt eða taílenskt því það er
þekktasti maturinn. En Thuy lang
aði í víetnamskan mat og við hugs
uðum með okkur að alla hina 500
Víetnamana, sem hér búa, myndi
örugglega líka langa í alvöru mat,
og kannski fólkið í hverfinu okkar
líka. Svo okkur fór að langa til að
opna lítinn veitingastað því hér í
hverfinu var enginn veitingastaður
þar sem fjölskyldan gæti sest niður
saman. Þegar þessi staður losnaði
svo ákváðum við að slá til, “ segir
Duc, á meðan Thuy stússast í eld
húsinu.
„Öll börnin okkar eru góðir
kokkar og finnst gaman að elda.
Þetta er réttur sem er mjög týp
ískur í Víetnam og sem er einfalt
að gera heima,“ segir Duc þegar
Manh, 12 ára gamall sonur þeirra,
kemur færandi hendi með rétt sem
hann hefur eldað úr tómötum,
eggjum og hrísgrjónum. „Þetta er
til dæmis miklu hollara en brauð.
Við borðuðum allt of mikið brauð
eftir að við fluttum fyrst til Íslands
því við höfðum svo lítinn tíma
til að elda hollan mat. En núna
pössum við vel upp á að það sé
jafnvægi í öllu sem við borðum.
Víetnamar á Íslandi þurfa að passa
sérstaklega vel upp á Dvítamínið
til að verða ekki þunglyndir, eða
fá beinverki eða slæmar tennur.
Við erum ekki vön svona miklu
myrkri.“
Frægasta súpan er flensumeðal
„Þessi súpa er mjög vinsæl hjá
okkur en þetta er líka frægasti ví
etnamski rétturinn. Ef þú gúgglar
„besta súpa í heimi“ þá kemur
þessi pottþétt upp,“ segir Thuy
brosandi um leið og hún leggur
á borðið risastóra skál af Pho bo,
rjúkandi núðlusúpu sem ilmar
af engifer, kanil, anís og sítrónu
grasi. „Víetnamskur matur er mjög
hollur því hann er mjög ferskur
og það er alltaf mikið jafnvægi
milli korns, grænmetis og kjöts í
hverjum rétti. Alvöru víetnamskur
matur er aldrei hitaður upp, það er
allt eldað frá grunni úr eins fersku
hráefni og mögulegt er. Helstu
kryddin eru chili, hvítlaukur,
stjörnuanís og ferskt engifer sem
öll eru mjög góð fyrir líkamann,“
segir Duc. „Þessi súpa er góð hér á
veturna því soðinn hvítlaukur og
anís vinna saman gegn flensu.“
Duc Manh og Thuy Duong höfðu búið á Íslandi í tíu ár þegar þau létu
drauminn um ekta víetnamskan veitingastað verða að veruleika.
Þegar blaðamaður bað Thuy og Pho um eina uppá-
haldsuppskrift vildu þau deila þessum vorrúllum því
þær eru svo auðveldar í framkvæmd. Allir geti gert
góðar vorrúllur, börn hafi sérstaklega gaman af því að
útbúa þær og síðast en ekki síst séu þær meinhollar.
36 | fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016