Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 19.02.2016, Side 41

Fréttatíminn - 19.02.2016, Side 41
BroskallarDívur Nytt - Klettabrauð - gerlaust súrdeigsbrauð Hrákonfekt með döðlum, gráfíkjum og pekanhnetum Bailey’ s terta Holtagarðar & Smáralind & Kringlan & Garðabær & Hringbraut Verið hjartanlega velkomin. Konudagur að hætti Jóa Fel Fullt af kökum og kruðeríi til að gleðja elskuna sína. Kaka ársins Pekanpæ Jarðarberjapæja Sörur Radíóamatörar TF3VB Anna, TF3GD Guðrún, TF3VD Vala og TF3JK Jóhanna stilla sér upp fyrir ljósmyndadagatal SYLRA. Kóngafólk meðal amatöra Anna segir áhugamálið vera bakter- íu í sinni fjölskyldu, maður hennar er radíóamatör og synir þeirra tveir líka. Í fjölskylduferðum um landið hafi þau því oft farið með loftnet og græjur með sér og stundað að ná sambandi frá ýmsum stöðum um allt land. „Drengirnir eru fullorðnir núna en þegar þeir voru litlir var aðalsportið í hringferðum að taka með okkur ferðagræjur til fjar- skipta og lesa mors af vegaskiltum.“ Áhugamálið segir hún sameina fólk af öllum aldri og stigum sam- félagsins. Dæmi eru meira að segja um að Íslendingar hafi náð sam- bandi við geimfara. „Það eru líka þess dæmi að fólk hafi óvænt náð sambandi við kónga og drottningar sem hafa þetta áhugamál.“ Dæmi um fræga radíó- amatöra eru til dæmis geimfar- inn Júrí Gagarín og konungur og drottning Jórdaníu. Jón Þóroddur er formaður Félags radíóamatöra. Hann segir áhugann á félaginu við stofnun þess 1946 hafa verið svo mikinn að 200 manns mættu á fyrsta fundinn. Hann segir áhuga ungs fólks hafa dalað síðan með meiri og útbreidd- ari tækni, en vonast til að endur- vekja áhuga ungs fólks á áhuga- málinu. Þrátt fyrir að aðstæður á Íslandi séu raunar alls ekki kjörnar fyrir radíóamatöra, vegna truflana í segulsviðinu frá norðurljósum, eru um 200 Íslendingar virkir radíó- amatörar. Spurt og svarað Hvernig fer venjulegt radíó- amatörspjall fram? Þegar komið er með loftnet í góð skilyrði er kallað fyrst út í bylgjurnar: „CQ, CQ“ til að láta vita af sér. Er samband næst við annan radíóamatör notar hann sérstök einkennisorð til að segja þeim sem er á línunni hversu sterkt radíómerkið er, hvar ama- törinn er staddur og hvernig loftnet hann notar. Eftir það er hægt að hefja frekara spjall. Hvernig verða nöfnin til? Einkennisnafn radíóamatörs ræðst fyrst og fremst af því hvaðan hann stundar fjarskiptin. Nafn Önnu Henriksdóttur er sem dæmi TF3VB. TF táknar Ísland, 3 er tala höfuðborgar- svæðisins og svo valdi hún sjálf síðustu stafina tvo, VB. Hvað er radíóamatör? Að vera radíóamatör er áhuga- mál sem snýst um að eiga sam- skipti með notkun fjarskipta og fjarskiptatækja. Um 6 milljónir manna um allan heim stunda áhugamálið, en hér á landi eru þeir í kringum 200. Sigurður Hrafnkell Sigurðs- son og Jón Þóroddur Jónsson radíóamatörar fyrir utan klúbbhús þeirra á Skeljanesi. |41fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.