Fréttatíminn - 19.02.2016, Blaðsíða 50
Nú er allt að breytast hjá
okkur og við ætlum að vera
duglegri að senda frá okkur
nýja bjóra. Við ætlum að
keyra þetta í gang.
Blæs til sóknar í Ölvisholti
Unnið í samstarfi við Ölvisholt
Brugghúsið Ölvisholt var stofnað árið 2007 og fyrsti bjór þess kom á markað árið eftir. Ölvisholt hefur
fyrir löngu skapað sér traustan sess
á sífellt stækkandi markaði fyrir
handverksbjóra hér á landi. Á næst-
unni er von á ýmsum nýjungum, að
sögn Elvars Þrastarsonar brugg-
meistara, en nýir eigendur komu að
rekstri Ölvisholts um áramótin.
„Nú er allt að breytast hjá okkur og
við ætlum að vera duglegri að senda
frá okkur nýja bjóra. Við ætlum að
keyra þetta í gang,“ segir Elvar sem
hefur bruggað í Ölvisholti í um þrjú ár.
Fyrsta skrefið er nýr Pale Ale-bjór
sem kynntur verður á bjórhátíðinni
á Kex Hostel í næstu viku. „Við
erum með hann á tönkunum núna
og byrjum að dæla honum á Kex.
Þetta er ljós bjór og mjög auð-
drekkanlegur. Hann verður svo í
boði á veitingastöðum í kjölfarið. Á
Facebook-síðu Ölvisholts er einmitt
í gangi keppni um nafnið á þessum
nýja bjór og auðvitað eru glæsileg
verðlaun fyrir rétta nafnið.“
Að sögn Elvars framleiðir
Ölvisholt alla jafna bjórana Skjálfta,
Móra, Lava, Freyju og Skaða, auk
Vatnajökuls sem eingöngu er seldur
á veitingastöðum í nágrenni við
Vatnajökul. Þá kom páskabjórinn
Barón í sölu á dögunum. „Þetta er
amerískt brúnöl, betrumbætt útgáfa
af þeim sem við gerðum í fyrra.“
Sífellt meiri áhugi er á handverks-
bjórum eins og þeim sem Ölvisholt
framleiðir. Það sést til að mynda á
því að nokkrir barir hafa sprottið
upp í miðborg Reykjavíkur sem
sérhæfa í sig í slíkum veigum og
margir hefðbundnir barir hafa upp-
fært úrval sitt. Elvar fagnar þessu
og segir að Ölvisholt ætli sér stóra
hluti á næstunni. „Við ætlum að
blása til sóknar,“ segir Elvar. Hægt er
að fá reglulegar fréttir af Ölvisholti
á samfélagsmiðlunum; Facebook,
Instagram og Snapchat (Olvisholt).
Nýir eigendur tóku við rekstri Ölvisholts um áramótin og bruggmeistar-
inn, Elvar Þrastarson, ætlar sér stóra hluti.
Elvar Þrastarson, bruggmeistari í Ölvisholti, ætlar að
senda frá sér fjölda af nýjum bjórum á næstunni.
Ljósmynd | Brewery Show
Vinsælt að gera eigin vín og bjór
Áman, elsta víngerðarverslun landsins, fluttist nýlega að Tangarhöfða 2.
Unnið í samstarfi við Ámuna
Áman ehf. er stærsta og elsta víngerðarverslun landsins með yfir þrjátíu ára sögu. Verslunin var nýverið flutt
að Tangarhöfða 2 í húsnæði sem er
rúmgott og hentar afar vel.
Áman flytur inn og selur vörur til
vín- og bjórgerðar. Auk verslunar-
innar að Tangarhöfða er hægt að
nálgast allar vörur Ámunnar í net-
verslun á www.aman.is.
Heimavíngerð nýtur mikilla vin-
sælda hér á landi, eins og í öðrum
löndum þar sem er há skattlagning
á vínum. Það er þó ekki bara af
efnahagsástæðum sem fólk gerir vín
heima hjá sér. Fyrir mörgum er vín-
gerð heillandi og skemmtilegt tóm-
stundagaman. Framboð af nýjum
tegundum og betri efnum eykst
stöðugt og með betri hjálparefnum
og tækjum er heimavín fyllilega
sambærilegt borðvínum frá hinum
frægu vínræktarlöndum. Flaska af
heimagerðu víni úr þrúgum kostar
undir 500 krónum, samanborið við
um eða yfir 2.000 krónur úr Vínbúð.
Sífellt fleiri brugga eigin bjór. Í
Ámunni er hægt að kaupa tilbúin
sett þar sem búið er að forvinna
efnið og þannig hægt að velja
ákveðnar tegundir, allt frá ljósum,
milli- eða alveg dökkum bjór. Þetta
eru góð efni sem gefa af sér góða
afurð ef natni og vandvirkni er höfð
að leiðarljósi. Þá er líka hægt að
kaupa alls konar tegundir af bjór-
geri, kornmalti og humlum til að
gera sína eigin uppskrift að bjór. Sá
hópur er kröfuharður og gera „besta
bjórinn“, að þeim finnst, en sú
bjórbruggun er vaxandi áhugamál
hjá fólki sem er ekki að hugsa um
tímann, einfaldleikann eða kostnað.
Stofnkostnaður er ekki mikill.
Hægt er að kaupa pakka með bjór-
gerðarefni inniföldu á innan við níu
þúsund krónur fyrir byrjendur og
áhaldapakki til víngerðar, þar sem
efni er ekki innifalið, kostar um
14.000 krónur. Hægt er að gera bjór
frá grunni á ódýran hátt, en ef á að
gera það af alvöru getur stofnkostn-
aður hlaupið á nokkrum tugum
þúsunda.
Allar nánari upplýsingar má fá hjá
Ámunni, Tangarhöfða 2, 110 Reykja-
vík, í síma 533-1020 eða á netfang-
inu aman@aman.is. Verslunin er
opin alla virka daga milli kl. 10–18.
Kristmann Þór Gunnarsson, sölumaður í Ámunni, leiðbein-
ir fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í vín- og bjórgerð.
Ljósmynd/Hari
50 | fréttatíminn | HELgIN 19. FEBRúAR–21. FEBRúAR 2016
Kynningar | Matur AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is