Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 19.02.2016, Qupperneq 76

Fréttatíminn - 19.02.2016, Qupperneq 76
Unnið í samstarfi við Fullfrísk Dagmar Heiða Reynisdóttir hjúkrunarfræðingur kennir meðgöngu- og mömmu-leikfimi í Fullfrísk. Hún gerði lokaverkefni sitt í hjúkrunar- fræði í félagi við skólasystur um mikilvægi hreyfingar á meðgöngu og hefur kennt leikfimina síðan 2007. Hreyfing á meðgöngu hefur þannig orðið að miðpunkti í hennar lífi enda er heilbrigði barnshafandi kvenna henni hugleikið. „Í með- gönguleikfimina koma konur frá tólftu viku og allt að þeirri fertug- ustu. Sumar eru svo lengi hjá mér að þær eru komnar fram yfir settan dag,“ segir Dagmar. Góð áhrif á andlega heilsu Hjá Fullfrísk er lögð áhersla á hver og ein kona stjórni álaginu sjálf og hlusti á líkamann. „Þannig er hver og ein að gera æfingar við sitt hæfi. Ef konur eru með verki í baki eða grind þá vinnum við í kringum það og við breytum æfingunum eða skiptum þeim út. Annars er hreyfing ákaflega góð forvörn gegn stoð- kerfisverkjum og hefur mjög góð áhrif á andlega heilsu kvenna á og eftir meðgöngu,“ segir Dagmar og nefnir í því sambandi meðgöngu- og fæðingarþunglyndi. Hún á sjálf þrjú börn og var í leikfimi á öllum meðgöngunum og var byrjuð að kenna þegar hún gekk með tvö yngri börnin. „Ég var sjálf slæm í grindinni á mínum meðgöngum svo ég get leiðbeint út frá því.“ Konurnar halda hópinn Leikfimin er hinn besti félagsskapur og konurnar sem hana sækir halda gjarnan sambandi þegar námskeið- um lýkur, ekki síst þegar leiðir þeirra liggja aftur saman á mömmunám- skeiðum þar sem börnin eru tekin með í leikfimitímana. „Konurnar kynnast vel og þetta verður fastur liður hjá þeim á meðgöngunni. Það er ótrúlega góður andi í tímunum. Þetta eru samt mjög ólíkar konur, sumar eru vanar hreyfingu á meðan aðrar hafa ekki hreyft sig áður. Sú yngsta sem hefur komið til mín var 18 ára og sú elsta 45 ára!“ Frábær forvörn gegn fæðingarþunglyndi Meðgöngu- og mömmuleikfimi í Fullfrísk hefur góð áhrif á heilsu kvenna. Ef konur eru með verki í baki eða grind þá vinnum við í kringum það og við breytum æfingunum eða skiptum þeim út. 8 | fréttatíminn | HELgin 19. FEbRúAR–21. FEbRúAR 2016 Kynningar | Heilsa móður og barns AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is Stoðmjólk – hollur valkostur fyrir barnið þitt Stoðmjólk er framleidd með tilliti til næringarþarfa ungra barna. Unnið í samstarfi við MS Næring ungbarna er einstak-lega mikilvæg og skiptir miklu máli til að þau dafni vel. Fyrstu mánuðirnir eru tiltölulega einfaldir að þessu leyti, en fylgi barnið sinni vaxtarkúrfu og sé vært dugir móðurmjólk og/ eða rétt blönduð þurrmjólk því vel. Í kringum sex mánaða aldurinn fer barnið að kynnast nýjum fæðu- tegundum og smá saman byrjar það að borða fjölbreyttan mat með öðru heimilisfólki. Samfara þessu tímabili kynna margir foreldrar stútkönnu fyrir börnunum og þá er gott að gefa börnunum vatn og Stoðmjólk við þorsta og með mat. Stoðmjólk er unnin úr íslenskri kúamjólk og mælt er með notkun hennar í stað nýmjólkur fyrir börn frá sex mánaða til tveggja ára aldurs. Stoðmjólkin var þróuð af MS að beiðni og í samvinnu við sam- starfshóp um næringu ungbarna á vegum Manneldisráðs, Land- læknisembættisins, barnalækna við Landspítalann, félags barnahjúkr- unarfræðinga og félags heilsugæslu- hjúkrunarfræðinga. „Við framleiðslu hennar er tekið sérstakt tillit til næringarþarfa ungra barna og hún er líkari móður- mjólk að samsetningu en venjuleg kúamjólk. Stoðmjólk hefur lægra próteininnihald en kúamjólk en það, ásamt járnbætingu Stoð- mjólkur, hefur jákvæð áhrif á járnbúskap barna sem er viðkvæmur á þessu aldursskeiði,“ segir björn S. gunnarsson, vöruþróunarstjóri MS. „Enn fremur er bætt í Stoðmjólk C-vítamíni sem örvar járnupp- töku og sérstaða Stoð- mjólkurinnar umfram erlendar þurrmjólkur- blöndur er að hún er tilbúin til drykkjar og próteinsamsetningin í henni er æskilegri en í þurrmjólkurafurðum,“ bætir björn við. nýjustu rannsóknir hafa sýnt að íslenska Stoðmjólkin hefur haft jákvæð áhrif á járnbúskap í aldurs- hópnum 6 mánaða til tveggja ára og mælist hann nú mun betri en áður. Hún er seld í 500 ml fernu sem talin er hæfilegur dagskammtur af mjólk og mjólkurmat þegar barnið er farið að borða úr öllum fæðuflokkum. Stoð- mjólk hentar vel samhliða brjóstagjöf en mælt er með áframhaldandi brjóstagjöf svo lengi sem hugur stendur til hjá móður og barni. Í Fullfrísk hittast konur á alls kyns stigum meðgöngu og rækta líkama og sál. Sjá námskeið og tíma á fullfrisk.com. Dagmar Heiðar Reynisdóttir hefur kennt meðgönguleikfimi í 9 ár. All You Need Is Me frá True Organic of Sweden er lífrænt krem án allra aukaefna. Hentar vel m.a. á rauða barnabossa, þurrar kinnar og skrámur. Fæst í Lifandi Markaði Borgartúni 25 og Heimkaup.is. Bragðgóðir réttir, fullir af þarflegum næringarefnum. Hollusturettir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.