Fréttatíminn - 18.03.2016, Síða 14
Er í fullum rétti
Rakel Sölvadóttir segir að Ágústa Fanney og Sara hafi verið reknar frá
fyrirtækinu vegna vanrækslu í starfi. „Það kom skýrt í ljós að þær voru
ekki starfi sínu vaxnar.“
Hún fullyrðir að þær hafi fengið tvær áminningar áður til brottrekst-
ursins kom. Hún segir deiluna einnig snúast um hvort þær hafi verið
starfsmenn reKode eða Skema. Dómsmálið snýr að amerísku félagi
sem er ekki að bjóða upp á þjónustu á Íslandi.“
Þær hafa stefnt Skema fyrir ítrekuð brot gegn sér. „reKode er sjálf-
stætt bandarískt fyrirtæki sem stofnað var til þess að bjóða upp á for-
ritunarkennslu barna. Þar sem um er að ræða málefni starfsmanna er
ekki hægt að ræða málsatvik nánar.“
Aðspurð hvort hún telji sig hafa komið starfsmönnum í slæma stöðu
með því að fá þá út og segja þeim upp síðar, svarar Rakel; „Ég er eins
mannleg og hugsast getur. Ég hef gert haug af mistökum en það á ekki
við í þessu máli. Ég leit á þær sem verktaka, þangað til þær voru komn-
ar með heimild til að vinna í Bandaríkjunum. Skema greiddi þeim fyrir
unna þjónustu og þjálfun en svo áttu þær að fá laun frá reKode. Það er
enginn áskrifandi að starfi sínu og við vorum að vinna í sprotafyrirtæki
en ekki ríkisstofnun. Það er stór munur á því umhverfi.“
Rakel segist einnig vera í fullum rétti til að selja inn á námskeið þar
sem börnum er kennt á Minecraft tölvuleikinn. Ágústa Fanney og Sara
telja það möguleg brot á notkunarreglum leiksins. „Það eru fjölmarg-
ir að kenna svona námskeið og við höfum verið í samskiptum við
Microsoft og Mojang, eiganda Minecraft, um kennslu sem fram fer hjá
Skema.“ -þt
4.-8. MAÍ 2016 UPPSTIGNINGARDAGUR
UNGVERJALAND
BUDAPEST
Budapest var valin önnur besta borg
heims af lesendum Condé Nast Traveler.
Ekki missa af einstöku tækifæri að
upplifa stórfenglegar byggingar,
iðandi mannlif og góðan mat.
NÁNAR Á UU.IS
Innifalið er flug, gisting, skattar, íslenskfararstjórn, taska og handfarangur.
VERÐ FRÁ
99.800 KR.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Aðalfundur VR
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf
og ákvörðun um innborgun í Varasjóð VR.
Dagskráin og allar nánari upplýsingar á vr.is.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta.
Þriðjudaginn 29. mars kl. 19:30
á Hilton Nordica
Hlíðasmára 3 . Sími 520 3090
www.bosch.is
Tækifæri
Bosch þvottavél og
þurrkari í hæsta
gæðaflokki á afar
hagstæðu
Tækifærisverði.
Opið virka daga frá
kl. 11 til 18
og á laugardögum frá
kl. 11 til 16.
BOSCH - Þurrkari
WTW 874B8SN
Gufuþétting, enginn barki.
Sjálfhreinsandi rakaþéttir. Sérkerfi: Ull,
blandaður þvottur, handklæði,
íþróttafatnaður, hraðkerfi 40 mín.,
skyrtur og fleira. Krumpuvörn í lok
þurrkunar. Stór LED-skjár. Lýsing í tromlu.
Með íslensku stjórnborði.
Tækifærisverð:
129.900 kr.
(Fullt verð: 169.900 kr.)
A
Orku-
flokkur
8
kg
BOSCH - Þvottavél
WAT 286B8SN
Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus,
hljóðlátur og sparneytinn mótor með
10 ára ábyrgð. i-Dos: Sjálfvirk skömmtun
fyrir fljótandi þvottaefni. Sérkerfi:
Dúnkerfi, dökkur þvottur, skyrtur,
blandaður þvottur, ull og fleira. Stór LED-
snertiskjár. Með íslensku stjórnborði.
Tækifærisverð:
119.900 kr.
(Fullt verð: 149.900 kr.)
8
kg
A
Orku-
flokkur
hvað ég kunni eftir að við fluttum
út þar sem að tæknisetrið opnaði
aldrei. Ekkert af þessu gat staðist
en Rakel hélt bara áfram með
ásakanir um það að ég væri búin
að brjóta samninginn og að það
væri riftunarákvæði. Hún sagðist
ekki ætla að standa við þriggja
mánaða uppsagnarfrestinn sem
við sömdum um og hún ætlaði
ekki heldur að greiða fyrir kostnað
á riftun íbúðarsamningsins. Hún
bar upp á mig að hafa brotið alvar-
lega gegn samningnum okkar og
rak mig með skömm. Þetta átti sér
engan aðdraganda og við fengum
aldrei viðvörun í starfi.“
Sara segist hafa átt sambæri-
legan fund með Rakel sem endaði
með uppsögn. „Ég stóð fyrir utan
dyrnar og heyrði allt sem fram fór,
Rakel þuldi upp sömu ræðuna og
bar upp á hana sömu brotin. Sara
brotnaði niður og skildi ekkert í
því hvernig við ættum að hafa get-
að klúðrað þjálfun sem fór fram á
Íslandi fyrir nokkrum mánuðum.
Við höfðum ekki einu sinni fengið
að spreyta okkur í því sem okkur
var kennt.
Ég ætlaði ekki heldur að trúa
þessu, og ég dreif mig inn á vinnu-
póstinn minn til að fletta upp
samningunum. Á meðan fund-
inum stóð hafði verið lokað á póst-
inn minn. Á þessari stundu ákvað
ég að þetta skyldi Rakel ekki kom-
ast upp með. Ég tók upp símann
minn og ýtti á hljóðupptöku, því
ég hugsaði að ég yrði að geta leyft
lögfræðingi að heyra hvernig farið
var með okkur. Því næst gekk ég
inn á fundinn hjá Rakel og Söru,
með hljóðupptökuna í gangi.“
Ágústa segir þetta hafa verið ör-
þrifaráð og hún hafi verið hikandi
þegar hún steig inn í herbergið
með upptökuna í gangi.
„Við báðum um tækifæri til
þess að laga þau atriði sem henni
fannst í ólagi en hún neitaði því og
sagði að þetta væri ákvörðun sem
væri búið að taka.“ Það kom fljótt
í ljós að það var ekkert á bak við
fullyrðingar hennar nema skýrsla
sem hún vildi meina að hún hefði
fengið senda frá starfsfólkinu á Ís-
landi. Seinna meir kom í ljós að sú
skýrsla var uppspuni. Þegar við
höfðum samband við þjálfarana
okkar vakti það strax sterk við-
brögð hjá þeim. Þeir höfðu aldrei
verið beðnir um mat á því hvernig
gekk. Þjálfararnir okkar voru ekki
sáttir við þessar ásakanir og sum
sögðust vera í sjokki við að heyra
þetta.“
„Á upptökunni heyrist glögglega
að Rakel gengst við því að hafa
samið við okkur. Hún dró einnig
öll brotin til baka um tíma og sagði
við okkur að við værum ekki að
fara frá henni með brot í starfi í
farteskinu. Það heyrist líka á hljóð-
upptöku. Þegar við höfnuðum
síðan mjög lélegu starfslokatilboði
sem hún gerði okkur að lokum
þá fór hún aftur að kalla okkur
brotlegar. Hún vissi náttúrulega
ekki af upptökunum. Rakel kom
með starfslokatilboðið til okkar
tveimur dögum síðar, eftir að við
grátbáðum hana að endurskoða
það sem hún var að gera. Við
áttum að undirrita það samdæg-
urs ella myndi tilboðið ekki gilda.
Við hringdum beint í lögfræðing
sem tók málið samstundis að sér
og sagði það strax ljóst að hér væri
um mörg brot að ræða af hálfu
vinnuveitandans. Rakel hélt því
síðar fram að við hefðum ekki haft
vinnuleyfi í Bandaríkjunum sem
var ekki rétt alls ekki rétt.“
Málið verður tekið fyrir í héraðs-
dómi Reykjavíkur í apríl.
þann 21. maí 2014 mæltum við
okkur mót heima hjá henni.“
Ágústa Fanney og Sara segjast
hafa skynjað skrítna spennu í loft-
inu á fundinum.
„Rakel ræddi við okkur Söru í
sitt hvoru lagi og byrjaði á mér.
Hún sagði mér að nú væri best að
leiðir myndu skiljast. Ég skildi ekki
hvað var í gangi. Þegar ég spurði
hana hvað hún ætti við, sagði hún
að ég væri frá og með þessum degi
ekki lengur að vinna hjá fyrirtæk-
inu. Ástæðan væri sú að hún hefði
fengið senda skýrslu frá Íslandi frá
starfsfólkinu sem sá um að þjálfa
okkur og að sú skýrsla hefði leitt í
ljós ég hefði verið með slæmt við-
horf og hefði ekki staðið mig nógu
vel. Ég vissi strax að þetta væri
ekki rétt, þjálfunin hafði gengið
mjög vel og ég hafði ekki haft eitt
einasta tækifæri til þess að sýna
Bjartsýnir starfsmenn íslenska útrásarfyrir-
tækisins. Nýkomnar til Seattle.
14 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016