Fréttatíminn - 18.03.2016, Page 18
Mynd | Ingimar Karl
Þrátt fyrir að hafa greitt
borginni leigu af sinni eigi
lóð í meira en áratug fá íbúar
fjölbýlishússins ekki bættan
skaðann nema að hluta til.
Ingimar Karl Helgason
ritstjorn@frettatiminn.is
Reykjavíkurborg innheimti
lóðaleigu af íbúum 39 íbúa við
Sóleyjarrima í Grafarvogi í heilan
áratug, enda þótt íbúarnir væru
sjálfir eigendur lóðarinnar. Borgin
hyggst aðeins endurgreiða íbú-
unum leiguna fjögur ár aftur í
tímann. Húsfélagsformaður segir
þá afgreiðslu borgarinnar vera
steypu. Hann undrast jafnframt að
borgin hafi ekki brugðist við fyrir
tíu árum þegar henni hafi verið
bent á sambærilegt mál í sömu
götu. Borgin bendir á Sýslumann-
inn í Reykjavík.
„Ég hafði aðeins nasasjón af
þessu og fékk þetta svo endan-
lega staðfest hjá þjóðskrá, sem
sér um alla skráningu á lóðum og
löndum í landinu. Þá var ég bara
að spyrja um Sóleyjarrima 1-7 því
ég var formaður í því húsfélagi og
málið skylt. Ég fékk það endanlega
staðfest að lóðin væri eign okkar
íbúanna. Punktur,“ segir Baldur
Magnússon, íbúi í Sóleyjarrima 5.
Málið snýst um leigugreiðslur
fyrir lóðir, en Reykjavíkurborg
innheimti leigu fyrir lóðir enda
þótt þær væru í eigu íbúa í fjöl-
býlishúsum sem þarna standa.
Í heilan áratug greiddu íbúar í
Sóleyjarrima lóðaleigu til Reykja-
víkurborgar, af lóðum sem þeir
áttu sjálfir.
Málið snerist í huga Baldurs
fyrst um íbúðirnar í Sóleyjarrima
1-7, en hann leiddi hugann að nær-
liggjandi húsum neðar í götunni.
Sóleyjarrimi 9 og 11 eru tvö fjöl-
býlishús þar næst fyrir neðan.
„Þá fór ég að hugsa um hvern-
ig er nú með hin húsin. Og það
kemur í ljós að þetta er allt saman
á eignarlóð.“
– Veistu til þess að Reykjavíkur-
borg hafi innheimt lóðaleigu þar?
„Jájá, það er svo.“
Blaðamaður spurðist fyrir um
málið hjá Reykjavíkurborg. Í skrif-
legu svari kemur fram að málið
snerti 39 eignir. „Í ljós kom að
fyrir mistök var lögð á lóðarleiga
á fasteignir við Sóleyjarrima 9 og
11 sem eru undir eignarlóðum.
Líklega liggja mistökin hjá emb-
ætti sýslumannsins í Reykjavík.
Þeir sem eiga lóðina hefðu átt að
gera athugasemdir við þessa villu
í skráningu. Reykjavíkurborg var
ekki aðili málsins þegar eignar-
skipti verða á þessum lóðum.“
Ætla má að borginni hafi orðið
kunnugt um mistökin í kjölfar þess
að Baldur skrifaði henni síðasta
haust og spurðist fyrir um málið.
Það sýna tölvupóstsamskipti.
Fjögur ár endurgreidd
Í svari Reykjavíkurborgar við fyrir-
spurn blaðamanns er staðfest að
lóðarleigan hafi verið innheimt
„frá því að eignirnar voru tækar til
álagningar eða frá árinu 2005.“
Um þetta hafi verið tilkynnt
bréflega og fólkinu endurgreitt
fjögur ár aftur í tímann, eða frá 2.
október 2011. Einnig er þar upp-
lýst að eigendunum 39 hafi verið
endurgreiddar 904.623 krónur í
heildina, fyrir árin fjögur.
„Þetta var leiðrétt samanber að
lóðarleigusamningar sem lóðar-
leiga byggir á eru einkaréttarlegir
samningar. Kröfur samkvæmt
slíkum samningum fyrnast á
fjórum árum samkvæmt 3. gr. laga
nr. 150/2007 um fyrningu kröfu-
réttinda.
Það gilda því ekki lög um of-
tekna skatta og gjöld um þessar
kröfur og báru endurgreiðslurnar
því ekki vexti,“ segir í svari borgar-
innar við fyrirspurn blaðamanns.
Og enn fremur: „Fjármálaskrif-
stofa Reykjavíkurborgar hefur
afgreitt málið eins og henni er
heimilt að gera.“
Enginn samningur – algjör steypa
Baldur Magnússon fékk að vita
þetta í haust og kemur fram í
áðurnefndum tölvupóstsamskipt-
um að borgin hyggist gera upp
með greiðslu ef engin skuld sé á
fasteignagjöldum. Baldur segist í
framhaldinu hafa spurst fyrir um
hvernig borgin hyggðist afgreiða
málið gagnvart íbúum.
„Þar kemur þessi fjögurra ára
regla. Það er heimfært upp á
samningsrétt, sem er bara tóm
steypa. Það er enginn samningur.
Það var ekkert verið að rifta eða
segja upp einhverjum samningi
sem ekki er til.“ Þannig hafi án
samnings verið innheimt leiga af
lóðum sem íbúarnir áttu sjálfir í
heilan áratug, en óskiljanlegt sé að
endurgreiða aðeins hluta.
Blaðamaður hefur ekki fengið
frekari svör frá borginni um þessa
afgreiðslu umfram það sem að
ofan greinir.
Þannig má ætla að íbúar í
húsum 9 og 11 hafi á árunum
2005-2011 greitt um eina og hálfa
milljón króna í leigu til Reykjavík-
urborgar, sem ekki stendur til að
endurgreiða, þrátt fyrir að borgin
hafi tekið þessa innheimtu upp
hjá sjálfri sér. Auk þess má spyrja
hvort borgin hefði ekki átt að vita
betur?
Baldur Magnússon telur að
þetta hefði aldrei þurft að eiga sér
stað. Tilfellið sé að í tilviki íbúa
í Sóleyjarrima 1-7 hafi borginni
verið bent á þetta strax fyrir um
áratug, að íbúar ættu lóðina og
borgin ætti því ekkert tilkall til
leigu. Samt sem áður hafi íbúar í
næstu húsum, 9 og 11, áfram verið
rukkaðir eins og ekkert hefði í
skorist.
„Borgin hafði ekkert gert í hinu,
þótt þeir hafi vitað að þeir þyrftu
að bakka með þetta gagnvart
íbúum á 1-7. Þetta var strax árið
2005,“ segir Baldur. Og hann bætir
við: „Þetta eru engin vinnubrögð.
Þetta er bara slugs. Þarna er bara
kerfið allt of sjálfvirkt. Það er eng-
inn að spá í þetta. Þú færð þessi
fasteignagjöld þarna inn og bara
borgar reikningana. Og treystir
svona apparötum best.“
Grafarvogur Eigendur fjölbýlishúss gjalda fyrir mistök sýslumanns
Borgin rukkaði eigendur
lóðarinnar um leigu
Fjölbýlishúsin við Sóleyjarima.
Baldur Magnússon húsfélagsformaður segir afgreiðslu
borgarinnar vera steypu. Hann undrast jafnframt að
borgin hafi ekki brugðist við fyrir tíu árum.
Fararstjóri: Guðrún Sigurðardóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Við kynnumst ólýsanlegri náttúrufegurð í spennandi
gönguferð um tvær af fallegustu gönguleiðunum við
Miðjarðarhafið, Portofino skagann og Cinque Terre
ströndina á Ítalíu. Göngurnar eru við allra hæfi og
einungis gengið með dagpoka.
Verð: 244.400 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Portofino & Cinque Terre
Au
ka
bro
ttf
ör
11. - 18. júní
18 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016