Fréttatíminn - 18.03.2016, Síða 29
Gefðu sparnað
í fermingargjöf
Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst í útibúum Landsbankans. Kynntu þér sparnaðar-
leiðir fyrir fermingarbarnið á klassi.is.
Gjafakort Landsbankans er góð leið til að gefa sparnað í fermingar-
gjöf. Ef fermingarbarnið leggur 30.000 krónur eða meira í sparnað
hjá Landsbankanum greiðir bankinn 6.000 króna mótframlag. Þannig
getur gjafakortið lagt grunn að góðum fjárhag.
Erna Sóley Eyjólfsdóttir
Klassafélagi og karate–lærlingur
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
sem brotið var á börnum sem voru
í umsjá ríkisins.“ Stefanía telur
það betri kost fyrir barn að halda
áfram að búa við vondar aðstæður
sem það hefur þó lært að höndla
heldur en að flytja barn inn á
heimili sem er því óviðkomandi,
þar sem það gæti átt á hættu að
verða fyrir ofbeldi. „Ég er eigin
lega fegin að hafa ekki komist
inn á BUGL, ég var of þæg fyrir
úrræði á þessum tíma. Ég var
ekki í neyslu, ég var ekki að hanga
með neinum skrýtnum vinum,
ég skreið meðfram veggjum og
var þess vegna ekki talin þurfa
eitthvað úrræði hjá BUGL eða ein
hverju svoleiðis dóti. Ég er fegin að
það var ekki verið að skoða heilsu
mína og prófa allskonar lyf á mér
á meðan ég var unglingur eins og
gerðist síðar, mig hryllir við þeirri
tilhugsun. En það er svo auðvelt að
taka fram fyrir hendurnar á börn
um sem eru ekki orðin lögráða.“
Flutti að heiman 16 ára
„Ég flutti að heiman þegar ég
var 16 ára, af því að ég vildi ekki
vera byrði á móður minni lengur.
Maður er svo barnalegur á þessum
árum. En auðvitað er fjárhagsstað
an glötuð. 16 ára krakkar eiga ekki
að leika fullorðinshluti og þetta var
tímabil sem ég vil ekki tjá mig um,
þar sem vondir hlutir hentu mig.
Ég reyndi þó að halda áfram í skóla
með vinnu en átti erfitt með að
mæta. Ég fékk einhverja appel sínu
gula miða fyrir slaka mætingu, það
var auðvitað engin skilningur fyrir
aðstæðum mínum.“
Í skólanum er gert ráð fyrir því
að allir séu með stuðning og komi
úr einhverri millistéttarfjölskyldu
og stundi námið fyrir pabba og
mömmu. Ég vildi mennta mig fyrir
mig en gat það ekki fyrr en ég varð
18 ára þegar mér bauðst styrkur
frá Reykjavíkurborg. Þá loksins
gat ég stundað námið af kappi og
kláraði mín 4 ár í menntaskóla.
Kennararnir voru svo ánægðir
með mig og hrósuðu mér á göng
unum og sjálfstraust mitt jókst.
Umsjónarkennarinn minn sagðist
aldrei hafa séð annan eins við
snúning á nemanda. Ég fór úr því
að mæta illa og falla í öllum fögum
og í það að fá áttur og níur. Auð
vitað var alltaf þessi nemandi inn
í mér. Ég þurfti bara að fá tækifæri
og ég lærði að gefast aldrei upp,
halda áfram!“
Aðstoðar ekki námsmenn
Fyrir tveimur og hálfu ári var
Stefanía komin langleiðina með
fjarnám sitt í sálfræði við Há
skólann á Akureyri og vann ýmis
þjónustustörf með náminu. En
heilsa hennar versnaði og hún var
alltaf þreytt. Á endanum svaf hún
í fötunum með málningarfarðann
síðan kvöldið áður en það var gert
til þess að spara sér nokkrar mín
útur og geta sofið aðeins lengur
á morgnana. Einhver henni ná
kominn tók hana tali sagði henni
að þetta gæti ekki gengið svona,
hún yrði að finna bót á sínum
málum. Á meðan að hún gekk á
milli lækna og beið eftir úrskurði
um heilsufar sitt gekk hún líka á
milli stofnana, VR, Sjúkratrygg
inga og Féló og fékk pínulítið hér
og pínulítið þar upp í þessar 160
þúsund krónur sem Félagsþjónust
an reiknar skjólstæðingum sínum
í framfærslu. „Í reglugerðinni hjá
Félagsþjónustunni stendur skýrt
að stofnunin aðstoði ekki fólk sem
leggi stund á lánshæft nám. Það
skiptir engu máli hvaða sögu þú
hefur að baki eða hvort þú sért
í einum áfanga eins og ég var.
Það er svo greinilegt að kerfið er
andsnúið því að fátækt fólk skuli
almennt sækja sér menntun.“
Stefanía er með vefjagigt og er
óvinnufær, 28 ára gömul. Talið er
að sterk tengsl séu á milli langvar
andi andlegs álags og vefjagigtar.
Stefanía er líka slæm af mígreni
og þjáist af meltingartruflunum og
stríðir við fæðuóþol ýmislegt. Þeg
ar hún fór á örorkubætur fékk hún
loksins tóm til að stunda námið
áhyggjulaus. „Ég stunda auðvitað
ekkert svona „social economics“
líf og ég finn hvað ég er öðruvísi
þegar ég er í hópi með fólki. Ég get
ekki talað um utanlandsferðir eða
dót sem fólk er að kaupa sér.“ Stef
anía á erfitt með að sjá barneignir
og fjölskyldulíf fyrir sér. Allavega
ekki í bráð og hún horfir með
aðdáun á námsmenn sem eiga
börn og eru kannski líka að kaupa
sér húsnæði. „Ég skil ekki hvernig
sumt fólk gerir þetta, á fjölskyldu
og er í skóla og kaupir sér hús
næði og lítur bara út fyrir að vera
ánægt. En það hlýtur samt að
vera að fólk fái einhvern stuðning.
Allavega fyrir útborgun,“ hugsar
hún upphátt.
Það vantaði
oft mat á mínu
bernskuheimili
og maður bara
reddaði sér og
fór inn í skáp
og fann ritzkex,
það var kannski
dálítið sorglegur
kvöldmatur. Og ef
ég fann eitthvað
til þess að elda
þá eldaði ég mat
handa mér.
21. SEPT. - 1. OKT. 2016
LANDIÐ HELGA
JERÚSALEM
Hér er á ferðinni einstök sögu- og
menningarferð til Jerúsalem með
Sr. Hirti Magna Fríkirkjupresti.
NÁNAR Á UU.IS
Innifalið er flug, gisting, skattar, íslenskfararstjórn, taska og handfarangur.
VERÐ FRÁ
449.900 KR.
|29fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016