Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 18.03.2016, Qupperneq 29

Fréttatíminn - 18.03.2016, Qupperneq 29
Gefðu sparnað í fermingargjöf Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst í útibúum Landsbankans. Kynntu þér sparnaðar- leiðir fyrir fermingarbarnið á klassi.is. Gjafakort Landsbankans er góð leið til að gefa sparnað í fermingar- gjöf. Ef fermingarbarnið leggur 30.000 krónur eða meira í sparnað hjá Landsbankanum greiðir bankinn 6.000 króna mótframlag. Þannig getur gjafakortið lagt grunn að góðum fjárhag. Erna Sóley Eyjólfsdóttir Klassafélagi og karate–lærlingur J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn sem brotið var á börnum sem voru í umsjá ríkisins.“ Stefanía telur það betri kost fyrir barn að halda áfram að búa við vondar aðstæður sem það hefur þó lært að höndla heldur en að flytja barn inn á heimili sem er því óviðkomandi, þar sem það gæti átt á hættu að verða fyrir ofbeldi. „Ég er eigin­ lega fegin að hafa ekki komist inn á BUGL, ég var of þæg fyrir úrræði á þessum tíma. Ég var ekki í neyslu, ég var ekki að hanga með neinum skrýtnum vinum, ég skreið meðfram veggjum og var þess vegna ekki talin þurfa eitthvað úrræði hjá BUGL eða ein­ hverju svoleiðis dóti. Ég er fegin að það var ekki verið að skoða heilsu mína og prófa allskonar lyf á mér á meðan ég var unglingur eins og gerðist síðar, mig hryllir við þeirri tilhugsun. En það er svo auðvelt að taka fram fyrir hendurnar á börn­ um sem eru ekki orðin lögráða.“ Flutti að heiman 16 ára „Ég flutti að heiman þegar ég var 16 ára, af því að ég vildi ekki vera byrði á móður minni lengur. Maður er svo barnalegur á þessum árum. En auðvitað er fjárhagsstað­ an glötuð. 16 ára krakkar eiga ekki að leika fullorðinshluti og þetta var tímabil sem ég vil ekki tjá mig um, þar sem vondir hlutir hentu mig. Ég reyndi þó að halda áfram í skóla með vinnu en átti erfitt með að mæta. Ég fékk einhverja appel sínu­ gula miða fyrir slaka mætingu, það var auðvitað engin skilningur fyrir aðstæðum mínum.“ Í skólanum er gert ráð fyrir því að allir séu með stuðning og komi úr einhverri millistéttarfjölskyldu og stundi námið fyrir pabba og mömmu. Ég vildi mennta mig fyrir mig en gat það ekki fyrr en ég varð 18 ára þegar mér bauðst styrkur frá Reykjavíkurborg. Þá loksins gat ég stundað námið af kappi og kláraði mín 4 ár í menntaskóla. Kennararnir voru svo ánægðir með mig og hrósuðu mér á göng­ unum og sjálfstraust mitt jókst. Umsjónarkennarinn minn sagðist aldrei hafa séð annan eins við­ snúning á nemanda. Ég fór úr því að mæta illa og falla í öllum fögum og í það að fá áttur og níur. Auð­ vitað var alltaf þessi nemandi inn í mér. Ég þurfti bara að fá tækifæri og ég lærði að gefast aldrei upp, halda áfram!“ Aðstoðar ekki námsmenn Fyrir tveimur og hálfu ári var Stefanía komin langleiðina með fjarnám sitt í sálfræði við Há­ skólann á Akureyri og vann ýmis þjónustustörf með náminu. En heilsa hennar versnaði og hún var alltaf þreytt. Á endanum svaf hún í fötunum með málningarfarðann síðan kvöldið áður en það var gert til þess að spara sér nokkrar mín­ útur og geta sofið aðeins lengur á morgnana. Einhver henni ná­ kominn tók hana tali sagði henni að þetta gæti ekki gengið svona, hún yrði að finna bót á sínum málum. Á meðan að hún gekk á milli lækna og beið eftir úrskurði um heilsufar sitt gekk hún líka á milli stofnana, VR, Sjúkratrygg­ inga og Féló og fékk pínulítið hér og pínulítið þar upp í þessar 160 þúsund krónur sem Félagsþjónust­ an reiknar skjólstæðingum sínum í framfærslu. „Í reglugerðinni hjá Félagsþjónustunni stendur skýrt að stofnunin aðstoði ekki fólk sem leggi stund á lánshæft nám. Það skiptir engu máli hvaða sögu þú hefur að baki eða hvort þú sért í einum áfanga eins og ég var. Það er svo greinilegt að kerfið er andsnúið því að fátækt fólk skuli almennt sækja sér menntun.“ Stefanía er með vefjagigt og er óvinnufær, 28 ára gömul. Talið er að sterk tengsl séu á milli langvar­ andi andlegs álags og vefjagigtar. Stefanía er líka slæm af mígreni og þjáist af meltingartruflunum og stríðir við fæðuóþol ýmislegt. Þeg­ ar hún fór á örorkubætur fékk hún loksins tóm til að stunda námið áhyggjulaus. „Ég stunda auðvitað ekkert svona „social economics“ líf og ég finn hvað ég er öðruvísi þegar ég er í hópi með fólki. Ég get ekki talað um utanlandsferðir eða dót sem fólk er að kaupa sér.“ Stef­ anía á erfitt með að sjá barneignir og fjölskyldulíf fyrir sér. Allavega ekki í bráð og hún horfir með aðdáun á námsmenn sem eiga börn og eru kannski líka að kaupa sér húsnæði. „Ég skil ekki hvernig sumt fólk gerir þetta, á fjölskyldu og er í skóla og kaupir sér hús­ næði og lítur bara út fyrir að vera ánægt. En það hlýtur samt að vera að fólk fái einhvern stuðning. Allavega fyrir útborgun,“ hugsar hún upphátt. Það vantaði oft mat á mínu bernskuheimili og maður bara reddaði sér og fór inn í skáp og fann ritzkex, það var kannski dálítið sorglegur kvöldmatur. Og ef ég fann eitthvað til þess að elda þá eldaði ég mat handa mér. 21. SEPT. - 1. OKT. 2016 LANDIÐ HELGA JERÚSALEM Hér er á ferðinni einstök sögu- og menningarferð til Jerúsalem með Sr. Hirti Magna Fríkirkjupresti. NÁNAR Á UU.IS Innifalið er flug, gisting, skattar, íslenskfararstjórn, taska og handfarangur. VERÐ FRÁ 449.900 KR. |29fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.