Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 36
Kæra, áhyggjufulla móðir. Ég byrjaði að svara þér í síðustu viku og vona innilega að það hafi komið að einhverju gagni fyrir þig og barnaflokkinn þinn. Þau talast ekki við Í síðasta pistli benti ég á að í deilum og átökum systkina leynast margir þræðir sem enda auðveld- lega í óleysanlegum hnútum og valda jafnvel vinslitum systkina á fullorðinsárum. Þá brotnar stór- fjölskyldan varanlega því að eitt systkinið talar ekki við annað og það þriðja skipar sér „í lið“ með öðru hvoru hinna eða reynir að læðast á milli og halda öllum góð- um. Foreldrarnir lifa í sársauka og skilja ekki hvað hefur gerst – en rótin liggur í gamalli öfund og gremju sem hófst í bernsku og aldrei var unnið úr. Enn flóknari geta systkinasamskiptin svo orðið þegar stjúpbörn eiga í hlut. „Systkini rífast alltaf“ Foreldrar og aðrir fullorðnir í fjöl- skyldu eiga aldrei að samþykkja rifrildi og átök milli systkina enda stórvarasöm fullyrðing að öll systkini rífist. Við berum full- orðinsábyrgð og eigum að skakka leikinn áður en illa fer. Við eigum að stöðva slagsmál og rifrildi milli systkina og leysa úr átökum um leikföng, fatnað og önnur dýrmæti sem hvert barn verður að eiga í friði. Við eigum að ræða af ein- lægni um systkinaátök og minna á kærleikann sem þau bera til hvers annars. Útskýrum að yngri börn- um þarf að sýna þolinmæðina sem þau eldri fengu sjálf á sama aldri. Rifjið upp sögurnar hvernig þið og aðrir leyfðuð þeim stundum að „ráða“ til að forðast sorgartárin. Kennum eldri börnum að yngri börn hafi ekki þroska til að stöðva sig í reiði eða gráti og að sá skuli vægja er vitið hefur meira. Hárnákvæmt réttlæti Bæði börn og ungmenni þurfa síðan öll að finna að fullt réttlæti ríki í kröfum og hrósi og gjöfum og tíma. Gerið samkomulag um verkaskiptingu, haldið fjölskyldu- fundi og endurmetið árangurinn. Biddu eldri börnin að rifja upp hvað þau gerðu á sínum tíma til að yngri börnin fái sömu kröfur á sig. Öll börnin ykkar þurfa athygli. Ef lesið er fyrir yngsta barnið á kvöldin, þarf að setjast hjá hverju og einu hinna og spjalla við þau. Skiptið líka liði þann- ig að hvert barn fái teljan- lega einkaathygli þannig að annað foreldrið skreppi með yngri drenginn í bíó á barnamynd en hitt foreldrið bjóði unglings- stúlkunum upp á táningabíó. Svo skalt þú eða pabbinn skreppa með fullorðna syninum á völlinn eða í spjall á veitingastað. Gættu þess líka að gjafir og önnur efnisleg gæði séu alltaf sambærileg og talið um það í fjöl- skyldunni. Kaupið jólagjafir fyrir sama verð fyrir hvert barn, hafið pakkana jafnmarga fyrir hvert og eitt og yngstu börnin munu líka reikna stærðarumfang pakkans sem gæði. Passið að hvert barn fái hjól á sama aldursári, sams konar fermingargjöf og veislu eða sambærilegan stuðning í fram- haldsskóla Er nóg ást fyrir öll börnin? Til viðbótar þurfa foreldrar að taka fullt mark á umkvörtunum barna og „klögumálum“ sem eru í reynd hjálparkall frá barni eða ungmenni. Unglingsstúlkurnar segja að ör- verpið þurfi aldrei að gera neitt en það þýðir einfaldlega „þið elskið hann meira en okkur.“ Þegar elsti sonur þinn rífst við yngri systur sínar og segist alltaf hafa þurft að gera allt, þýðir það trúlega „þið tókuð mömmu frá mér.“ Þegar hann bætir í og fullyrðir að yngri drengnum sé hlíft við því sem hann þurfti að þola, er hann trú- legast að tjá ótta sinn um að stjúp- pabbanum hafi aldrei þótt eins vænt um hann og yngri drenginn sem er „alvörusonur“ hans. Öll systkinaátökin snúast sem sagt um ást foreldranna og ótt- ann um að ekki sé „nóg“ til af ást handa öllum. Óttinn verður svo að tilfinningu um að vera ekki „nóg“ sjálf – eins og þau eru. Ekki nógu góð og skemmtileg eða nógu dugleg og hlýðin eða stjúpbarnið fái ekki „nóg“ rými og athygli eða systurnar „græði“ á kostnað bræðranna eða öfugt. Þess vegna þarf hver dagur að bera með sér samskipti, snertingu og nálægð þar sem hvert barn fær staðfestingu á ást foreldra sinna óháð aldri og að það sé meira en nóg til af ást handa öllum. Uppeldisáhöldin Magga Pála gefur foreldrum ráð um uppeldi stúlkna og drengja milli 0 og 10 ára. Sendið Möggu Pálu ykkar vandmál á netfangið. maggapala@frettatiminn.is Að gera upp á milli barna Markmið sjóðsins er að auka almenna þekkingu á íslenskri náttúru svo að umgengni okkar og nýting á verðmætum hennar geti í ríkari mæli einkennst af virðingu og skynsemi. Samhliða er leitast við að bæta tengsl Íslendinga við náttúru landsins og efla með því gott hugarfar, mannlíf og atvinnustarfsemi í sátt við umhverfið. Markmiði þessu verði náð með því að styrkja verkefni sem fást við sköpun og miðlun þekkingar um náttúruna í víðum skilningi. Farvegurinn getur verið í gegnum listir, hvers kyns fræði og vísindi. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar. Skilafrestur er 15. apríl. Heildarúthlutun á þessu ári nemur allt að 25 milljónum króna. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar má fá á vefsíðu sjóðsins: www.natturuverndarsjodur.is. Umsóknir sendist sjóðnum í Pósthólf 10, 550 Sauðárkróki. Rekstrarvörur til fjáröflunar – safnaðu peningum með sölu á fjáröflunarvörum frá RV RV 1015 Er æfingaferð, keppnisferð, útskriftarferð eða önnur kostnaðarsöm verkefni framundan? Síðustu 30 árin hafa félagar í íþróttafélögum, kórum og öðrum félagasamtökum aflað sér fjár á einfaldan hátt með sölu á WC pappír, eldhúsrúllum, þvottadufti og öðrum fjáröflunarvörum frá RV. Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Rekstrarvörur - vinna með þér Rekstrarvörur – fyrir þig og þinn vinnustað 24/7 RV.is FÓ TB O LT I BA DM IN TO N SU N D HA N DB O LT I KÖ RF UB O LT I 36 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.