Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 18.03.2016, Side 52

Fréttatíminn - 18.03.2016, Side 52
Myndir | Rut Heimili & hönnun J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Bræðir þig laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Koparáhöld eru ekki bara snotur. Kopar hefur óviðjafnanlega leiðni, dreifir varma haganlega og dregur fram seiðandi bragð. De Buyer hefur búið til eldhúsamboð frá 1830 og þar á bæ vita menn að koparpottarnir þeirra eru pottþétt meistaraverk. Þess vegna lofa þeir lífstíðarábyrgð. Sverrir Þór Viðarsson innanhússarkitekt sýndi skemmtilega vöggu á HönnunarMars. „Ég hannaði vögguna fyrir son minn fyrir sex árum. Markmiðið var upphaflega að hanna klass- ískan hlut sem gæti verið í notkun innan fjölskyldunnar fyrir kom- andi kynslóðir. Ég breytti vögg- unni svo aðeins og bætti fyrir sýninguna nú á HönnunarMars,“ segir Sverrir Þór Viðarsson innan- hússarkitekt. Sverrir var einn hönnuða sem tóku þátt í HönnunarMars á dög- unum. Hann sýndi barnavöggu á sýningu í Epal. Vaggan er gerð úr eik og sprautulökkuðum MDF-plöt- um. Hún er á hjólum og að sögn hönnuðarins er auðvelt að setja hana saman og taka í sundur til að koma fyrir í geymslu. „Ég fékk mjög jákvæð og góð viðbrögð á sýningunni. Það voru til dæmis margar konur sem komu til mín og sögðust vilja óska þess að þær væru óléttar svo þær gætu keypt af mér vöggu,“ segir Sverrir. Hann segir að engin áform séu uppi um fjöldaframleiðslu á vögg- unni en áhugasamir geti þó haft samband við sig í gegnum net- fangið sverrirvidars@gmail.com. Sverrir er menntaður innan- hússarkitekt frá ISAD í Mílanó. Hann útskrifaðist árið 2008 og hefur síðan tekið að sér ýmis verk- efni á sviði arkitektúrs og hönn- unar. Sverrir kom nýverið að bygg- ingu leikskóla í Neskaupstað þar sem hann sá um allar innréttingar og vinnu sem sneri að innviðum hússins. Síðustu ár hefur hann hannað hillur og ýmsar lausnir fyrir heimili en vaggan er frum- raun hans í húsgagnasmíði. Hannaði vöggu fyrir son sinn Það voru til dæmis margar konur sem komu til mín og sögðust vilja óska þess að þær væru óléttar svo þær gætu keypt af mér vöggu. Vaggan er á hjólum og gerð úr eik og sprautulökkuðum MDF-plötum. Auðvelt er að setja hana saman og taka í sundur fyrir geymslu. Sverrir Þór Viðarsson innanhúss- arkitekt hannaði vöggu fyrir son sinn fyrir sex árum. Hann betrum- bætti hana á dögunum og sýndi á HönnunarMars. Postulína kynnti nýja leir- vasa til leiks á Hönnunar- Mars í ár, 9. Innblástur var sóttur í hugmyndir um hina nýuppgötvuðu níundu plánetu. Vasarnir tóna vel við hangandi blómapottana Draumur um vor sem hafa verið afar vinsælir frá því þeir fóru í framleiðslu árið 2014 en segja má að vasarnir séu sjálfstætt framhald pott- anna. Þeir eru nú komnir í sölu í Epal. Postulína er samstarfsverk- efni Guðbjargar Káradóttur leirkerasmiðs og Ólafar Jak- obínu Ernudóttur hönnuðar. Þær hafa vakið athygli innan lands sem utan með verkefni á borð við matarstellið Jöklu, snjóhálsmenin og jólatrén. Níunda plánetan komin í Epal 52 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.