Fréttatíminn - 18.03.2016, Qupperneq 69
Ég | hef aldrei séð Friends-þættina
svo ég horfi á þá fyrir svefninn þessa
dagana. Ég er kominn á sjöttu seríu
þar sem Ross og Emily eru að gifta
sig, það er allt að gerast. Ég var líka
að klára Ófærð, smá seinn, sá alla
þættina á þremur dögum eftir að hún
kláraðist á RÚV.
Ég er búinn að vera veikur undan-
farið svo ég hef varið miklum tíma
með Netflix. Uppáhaldsþættirnir mín-
ir er Parks and Recreation, ógeðslega
fyndin samsetning af fólki á einum
vinnustað. Daredevil
er líka á Netflix, þeir
eru áhugaverðir. Ekkert
ruglaðir þættir, en
fínir.
Hvað bíómyndir varðar þá tók ég
klassískt Harry Potter maraþon um
daginn, annars hef ég ekki séð myndir
sem eru þess virði að minnast á.“
| 69fréttatíminn | HElgiN 18. maRs–20. maRs 2016
Sófakartaflan
Pétur Kiernan – 12:00 stjarna
Veikur heima með Netflix
Kvöldinu eytt með
Jimmy Fallon
SkjárEinn Föstudaginn 18. mars,
klukkan 22.30 The Tonight Show, í
umsjón Jimmy Fallon, er sýndur á
SkjáEinum alla virka daga. Í þætt-
inum er gert grín að líðandi stundu,
frægt fólk kemur í heimsókn og
oft eru gestir Fallon jafnvel úr
dýraríkinu. Sérstaklega gott þegar
maður vill hugsa sem minnst við
sjónvarpið.
99% ósýnileg
Podcast Þáttur vikunnar er 99%
Invisible. Hann fjallar um þá hluti
sem móta umhverfið okkar og
hversdagsleikann en við pælum
ekki í hvers vegna. Hvernig varð
spádómakakan til? Lófalestur?
Vinsælasti þátturinn fjallar um
áhugaverða fyrirbærið the Gruen
effect. Hvernig verslunarmiðstöð er
hönnuð til þess að rugla neytand-
ann í ríminu svo hann gleymi sínu
upphaflega markmiði og leiðist inn
í aðrar búðir.
Óvissan í landleysinu
DR2 Indefra med Anders Agger – Hanstholm Asylcenter, föstudaginn 18. mars,
klukkan 18.30 Í flóttamannamiðstöðinni í Hanstholm í Danmörku bíður fólk
úr mismunandi hlutum heims eftir dómnum: Fæ ég landvistarleyfi eða brott-
vísun frá Danmörku? Sjónvarpsmaðurinn Anders Agger dvelur í miðstöðinni
og rannsakar hvernig er að lifa í óvissunni.
Hverju breyta
þrettán mínútur?
Bíó Paradís. Nafnið Georg Elser
klingir kannski engum bjöllum, en
hefði honum tekist að ráða Hitler
af dögum, eins og hann reyndi 8.
nóvember árið 1939, hefði hann
líklega komist í sögubækurnar. Ef
aðeins hann hefði haft þrettán mín-
útur í viðbót. Myndin er úr smiðju
Oliver Hirschbiegel, leikstjóra hinna
margverðlaunu bíómyndar um síð-
ustu daga Hitlers, Der Untergang.
Myndin var opnunarmynd Þýskra
kvikmyndadaga í Bíó Paradís.
TÓNLIST ANDREW LLOYD WEBBER TEXTI TIM RICE
JC
S LO
G
O
A
N
D
A
R
T
W
O
R
K
©
&
™
TH
E R
EA
LLY
U
SEFU
L G
R
O
U
P LTD
.
JESÚS
EYÞÓR INGI
JÚDAS
ÞÓR BREIÐFJÖRÐ
MARÍA MAGDALENA
RAGGA GRÖNDAL
PONTÍUS PÍLATUS
BJÖRN JÖRUNDUR
KAÍAFAS
JÓHANN SIGURÐARSON
HERÓDES
ÓLAFUR EGILSSON
SÍMON PÉTUR
MAGNI
SKÍRDAG, 24. MARS Í ELDBORG
ÖRFÁ SÆTI LAUS
MIÐASALA Á TIX.IS OG HARPA.IS OG Í MIÐASÖLU HÖRPU
„Takk fyrir flottustu
sýningu sem ég hef séð.“
„Ég er ennþá að jafna mig eftir
þessa stórkostlegu tónleika.“
„Þetta var stórkostlegt.
Gæsahúð, tár og allur pakkinn.“
„Frábær sýning,
er ennþá með gæsahúð!!“
„Bestu tónleikar sem við
hjónin höfum farið á.“