Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 18.03.2016, Síða 72

Fréttatíminn - 18.03.2016, Síða 72
72 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016 lÍs en ku ALPARNIR s Faxafeni 8 // 108 Reykjavík Sími 534 2727 // www.alparnir.is www.alparnir.is Góð gæði Betra verð ✓ ✓ 25 - 50% afsl. af skíðavörum til páska. Skíðahjálmar og bakhlífar 30 - 50% afsl. Gönguskíðabúnaður 30% afsl. Svigskíðabúnaður 30 - 50% afsl. Fjallaskíðabúnaður 25% afsl. Skíðafatnaður 50% afsl. Snjóbrettabúnaður 40-50% afsl. Skíðapokar og skótöskur 30% afsl PÁSKASPRENGJA TAKMARKAÐ MAGN Uppistandarinn, textasmiðurinn og magadans- mærin Þórdís Nadia Semichat er stödd í lyftunni hans Spessa, ljósmyndara í gömlu Kassagerðinni á Laugarnesi. Á ferðalaginu upp fjórar hæðir hússins segir Þórdís frá áfallinu þegar hún fylgd- ist með andlega veikum aðstandanda hóta að kasta sér fram af svölum með barn í fanginu. „Á lokaárinu mínu við Listaháskólann upplifði ég mikla sorg og depurð. Einstaklingur sem er mér nákominn veiktist andlega. Í fyrstu fór hann að haga sér furðu- lega, með skrítnar samsæriskenn- ingar, en á skömmum tíma ágerðist það verulega,“ segir Nadia. Veikindi einstaklingsins höfðu djúpstæð áhrif á Nadiu en hún varði miklum tíma í að sannfæra hann um að leita sér hjálpar á geð- deild. „Það var barn í spilinu sem gerði þetta bæði flóknara og erfið- ara. Veikindin náðu hátindi þegar hann læsti sig og barnið sitt inni og ætlaði að kasta sér fram af svöl- unum með það í höndunum.“ Kallað var til lögreglu og hafði einstaklingurinn þær ranghug- myndir að lögreglan ætlaði sér að drepa sig og barnið. „Ég var á staðnum og tókst einhvern veginn að ná barninu af honum áður en sérsveitin kom,“ lýsir Nadía með grátstafinn í kverkunum. „Hann var handtekinn fyrir framan okkur með látum og barnaverndarnefnd blandaði sér í málið. Þetta var gríð- arlegt áfall sem kristallaðist þegar þáverandi kærastinn minn, sem ég var í fjarsambandi með, hætti með mér í gegnum tölvupóst. Mér leið eins og ég hefði misst þrjá einstak- linga á einum degi.“ Nadia segir námið hafa bjargað sér. „Ég var með svipuna á bakinu og ætlaði mér að útskrifast. Þegar maður upplifir slíka lægð er að- eins ein leið, upp.“ Nadia tók að semja uppistönd og fann sínar hæstu hæðir í því. „Uppistandið herðir mann gríðarlega og kennir manni að gefast ekki upp. Ég nota sögur úr eigin lífi og komst að því að hægt er að nýta erfiða reynslu í eitthvað jákvætt, uppbyggilegt og stundum fyndið.“ | sgk Lyftan #10 SpessiNotar harminn í uppistandið Þórdís Nadia notar erfiða reynslu sem efnivið í uppistand og segir harminn geta verið fyndinn líka. Í gæludýrabúð í Kópavogi hafa búið mörg mögnuð dýr, en samkvæmt eigendum búðarinnar Furðudýr og fylgifiskar stendur hunangspáf- inn Brandur upp úr. Hann var einn þeirra fugla sem geta lært orð og kunni að kalla nafn eiganda síns og að skamma. Hið síðarnefnda not- aði hann óspart og átti það jafnvel til að skamma börn eigandans, ef honum fannst ástæða til. Eitthvert skiptið var eigandinn með fugla í pössun, í búrum inni á skrifstofu sinni. Brandur flaug í það mál að opna hvert einasta búr með goggn- um svo þeir sluppu úr búrunum. Eftir á mátti svo heyra hann hrópa á sjálfan sig: Skamm! Mikið skamm! Brandur var að mestu laus inni í gæludýrabúðinni og fór jafnvel út í trén fyrir utan að leika sér, en aldrei lengra en það. Lengi vel svaf hann í rúmi hjónanna sem áttu hann, á milli þeirra, og goggaði í þau ef hon- um fannst þjarmað að sér í svefni. Svo vaknaði hann og settist á enni eigandans og beið þar spakur þar til hann vaknaði. Yfirleitt gladdi hann gesti búðarinnar, en honum var þó uppsigað við einn ungling sem þangað kom. Sá gerði þau mis- tök að koma inn í alhvítum fötum og skeit Brandur lárétt á hann. Svo virtist sem þetta brot Brands væri einsdæmi, en þegar sami ung- lingur hætti sér aftur í búðina tók Brandur sig til og endurtók hrekk- inn. Skemmst er frá því að segja að téður unglingur hefur ekki hætt sér aftur í gæludýrabúðina í Kópavogi. Líf mitt sem páfagaukur Skammandi og hrekkjandi Hunangspáfinn Brandur var magnaður fugl og eftirminnilegur eig- endum gæludýrabúðarinnar Furðudýr og fylgifiskar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.