Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 78
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Með hækkandi leigu-verði og minnk-andi framboði á húsnæði fyrir ungt fólk í startholum lífsins fjölgar þeim
sem dvelja í hreiðrinu fram eftir
aldri. Talið er að nærri helmingur
ungs fólks á aldrinum 18-30 ára í Evr-
ópu búi enn í foreldrahúsum. Hrafn-
hildur er 35 ára gömul, grunnskóla-
kennari sem býr í kjallaranum hjá
foreldrum sínum.
„Ég hef eiginlega alltaf búið
heima. Ég bjó einu sinni á Stúdenta-
görðum í smá stund en námslánin
nægðu ekki fyrir því svo ég flutti aft-
ur heim.“ Hrafnhildur Þórólfsdóttir
upplifir sig oft sem ungling í húsi for-
eldra sinna.
„Ég hringi í foreldra mína til að
láta vita hvort ég kem í mat, og pabbi
skutlar mér í vinnuna á hverjum
degi. Bankar á svefnherbergishurð-
ina og kallar: „Hrafnhildur mín, eig-
um við ekki að fara að koma?“ – ef
ég er ekki komin fram á morgnana.“
Hún segir heimilislífið þó ólíkt frá
því hún var unglingur: „Hver sér um
sinn þvott sjálfur og ég kaupi sjálf í
matinn, en fer ekki með debetkortið
hennar mömmu út í búð.“
Hrafnhildur er umsjónarkennari í
tíu ára bekk og er illfært að eiga fyr-
ir útborgun í íbúð eða vera á leigu-
markaði með sín laun. Hún reynir
að halda þeirri staðreynd að hún
býr hjá pabba og mömmu frá nem-
endum sínum.
„Fólk segir ég þurfi ekki að
skammast mín fyrir að búa svona
því það sé staða margra, en ég ræð
ekki við það og býð fólki ekki í heim-
sókn vegna þess. Það er skrýtið að
vera fullorðin en þurfa að spyrja
mömmu og pabba hvort ég megi
halda partí.“
Þuríður, móðir Hrafnhildar, segist
njóta þess að hafa Hrafnhildi heima.
„Þetta er meira eins og að búa með
félaga en dóttur sinni. Ég var vön að
búa í kommúnum þegar ég var ung,
enda af 68 kynslóðinni.“ Hún sé því
vön ýmsum búsetuformum. „Ég sé
nú ekkert að því að fólk búi með for-
eldrum sínum, ætti maður ekki bara
að búa með þeim sem maður vill?“
Hrafnhildur samsinnir móður
sinni og segir margar góðar hliðar
á sambúðinni.
„Það er dásamlegt að borða kvöld-
mat með fólki sem kann að meta það
sem ég elda. Þau tímabil sem ég bjó
ein nennti ég sjaldnast að elda fyrir
sjálfa mig.“
Hrafnhildur sér ekki fyrir sér að
hafa efni á eigin húsnæði í nánustu
framtíð.
„Það væri ekki nema ég flytti út á
land, gerðist kennari í Grímsey eða
á Dalvík eða eitthvað. Systir mín
er nýflutt úr kjallaranum með fjöl-
skylduna, en þurfti lán frá mömmu
og pabba til að kaupa sér íbúð. Þetta
er bara staðan á húsnæðismarkaðn-
um í dag.“
78 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016
H V Í T T S Ú K K U L A Ð I E G G
Fullorðin í foreldrahúsum
Skrýtið að spyrja foreldrana
hvort ég megi halda partí
Hrafnhildur og foreldrar hennar, Þuríður og Þórólfur. Þetta kvöldið er fjölskyldan
með kjúklingaleggi í matinn og sá Hrafnhildur um sósuna. „Er ekki gott merki þegar
mamma manns er farin að treysta manni fyrir sósugerðinni á heimilinu?“
Mynd | Rut
Þeir Sigurður, Brynjar og Árni mæta
snemma morguns í vinnuna á byggingar-
svæðið fyrir aftan JL-húsið á Hringbraut.
Þar munu þeir eyða deginum í að klæða
nýsteypta veggi fjölbýlishúss með gipsi,
en fyrst fá þeir sér kaffibolla.
Morgunstund
á Hringbrautinni
Hvað ef þú gætir búið í rúmgóðri
íbúð fyrir 50 þúsund á mánuði?
Hljómar of gott til að vera satt í
Reykjavík, en í Helsinki í Finnlandi
hefur fyrirkomulag, þar sem ungir
nemar búa ódýrt eða ókeypis í hús-
næði með eldri borgurum, gefið
frábæra raun. Í staðinn fyrir hús-
næðið vinna stúdentarnir 3-5 tíma
sjálfboðavinnu á viku fyrir eldri
nágranna sína.
Tilraunin er hluti af átaki borg-
arinnar til að sporna við húsnæðis-
vanda ungs fólks, sem oft hefur
ekki efni á að flytja að heiman
vegna sligandi leiguverðs.
Allir aðilar græða á fyrirkomu-
laginu. Unga fólkið losnar úr hús-
næðiskröggum og eldra fólkið
nýtur góðs af félagsskap þess, enda
sýna rannsóknir að samskipti við
ungt fólk geta komið í veg fyrir
þunglyndi og elliglöp eldra fólks.
Störfin sem nemendurnir taka
að sér fyrir eldri borgarana geta
verið allt frá því að koma við í
fiskbúð fyrir þá, að því að kenna
þeim að nota Skype. Vinasambönd
myndast milli stúdentanna og eldri
nágranna þeirra, en stúdentarnir
búa þó sjálfstætt í sínum íbúðum.
Nú hafa öldrunarheimili í Hol-
landi, Finnlandi, Frakklandi og
Bandaríkjunum prófað þetta. Gæti
hér verið komin lausnin á húsnæð-
isvanda unga fólksins?
Ungir í eldri borgara húsum
Hver segir að ólíkar kynslóðir
geti ekki búið saman?
Myndir þú vilja búa í sambýli
eldri borgara og stúdenta?
Steinunn H. Bjarnason,
vistkona á Grund.
Hrútur Teitsson,
fullorðinn í foreldrahúsum.
Já, að minnsta kosti væri ég
persónulega alveg til í það.
Væri örugglega fínt að elda
og slaka á með eldra fólkinu.
Já, mér litist bara vel á það.
Hér á Grund eru meira og
minna krakkar sem eru að
læra hjúkrun og aðstoða mig
og þau eru yndisleg.