Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 83
|3fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016
Crossfit
Ef þér finnst þetta erfitt
þá er það af því
það á að
vera erfitt.
Meiri átök. Meiri Hleðsla. Meiri árangur.
Hver sem íþróttin er, markmiðið er alltaf að verða betri.
Hleðsla er íþróttadrykkur úr náttúrulegum íslenskum
hágæðapróteinum sem byggir upp vöðvana.
Meiri átök. Meiri Hleðsla. Meiri árangur. hledsla.is
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/M
SA
7
90
53
0
3/
16
Katrín Tanja DavÍÐsdÓttir, afrekskona í Crossfit
Hraustasta kona heims 2015
1. Aukin matarlyst
Þú brennir mikið
af kaloríum á góðri
Crossfit æfingu og
mátt því búast við
aukinni matarlyst.
En þá er mikilvægt
að halda sig við holla
fæðu og forðast að
borða of mikið af kol-
vetnaríkri fæðu.
2. Harðsperrur
Margar Crossfit æfingar
eru ólíkar hefðbund-
inni hreyfingu eins og
hlaupum eða hjólreið-
um, svo þú mátt búast
við miklum harðsperr-
um til að byrja með. Til
að koma í veg fyrir of
miklar harðsperrur er
nauðsynlegt að teygja
vel eftir æfingu og nota
rúllur og bolta til að
teygja og nudda vöðva.
3. Nýir vinir
Crossfit samfélagið
er vinalegt og opið og
fljótlega áttu eftir að
eignast nýja vini sem
þú hittir á æfingum.
Það góða við alla
þessa nýju vini er fé-
lagsskapur á æfingum
og það eykur líkur á
að maður mæti vel á
æfingar.
4. Stigið út fyrir
þægindahringinn
Þú átt eftir að læra
fullt af nýjum æf-
ingum og gera hluti
sem þú hefur aldrei
gert áður. Gerðu ráð
fyrir að sumt af þessu
muni vera óþægilegt í
fyrstu en það er hluti
af ferlinu og áður en
þú veist er þetta ekk-
ert mál.
5. Þú ert ekki best/ur
Það er mikilvægt að
átta sig á því að þegar
maður er byrjandi þá
líður manni eins og
allir hinir séu miklu
betri. Þá er best að
hugsa um að maður
sé að keppa við sjálfan
sig en ekki hina, auk
þess sem markmiðið
er að klára æfinguna
ekki til að sigra í ein-
hverri keppni.
una. Þetta er orðið hluti af rútínunni
hjá mér. Þú labbar inn, ferð í föt og þér
er sagt hvað þú átt að gera. Þú æfir,
teygir og svo er sturta. Þetta rúmast
í hádegismatnum hjá velflestum,“
segir Ómar sem sjálfur æfir í CrossFit
Reykjavík.
Ómar segir jafnframt að góður andi
sé meðal þeirra sem æfa Crossfit.
„Þetta er samfélag. Maður hittir fólk
daglega sem verður vinir og kunningj-
ar manns. Æfingarnar eru líka settar
þannig að allir vinna að sama marki.
Þegar einn klárar hvetur hann hina
áfram. Það verður eitthvað sérstakt
„kemestrí“ þarna sem ég hef ekki upp-
lifað áður.“
Það er stundum grínast með fólk í
crossfit og sumir vilja meina að þetta
sé eins og sértrúarsöfnuður...
„Já, það er hárrétt, þetta er eins
og sértrúarsöfnuður. En svona söfn-
uður, sem lætur fólk taka upp bætta
lífshætti getur ekki verið annað en já-
kvæður.“
Ómar kveðst aðspurður hafa próf-
að að keppa í Crossfit einu sinni eða
tvisvar. „Og svo hef ég tekið þátt í
Open sem er haldið árlega. Það er
gaman að staðsetja sig og mæla pers-
ónulegan árangur en ég hef ekki
metnað fyrir því að keppa í Crossfit.
Það er ágætt að láta Annie Mist og
Katrínu Tönju um það.“ | hdm
Ómar R. Valdimarsson æfir
Crossfit 5-6 sinnum í viku.
Hann segir að æfingarnar
séu orðnar hluti af rútín-
unni hjá sér.
Mynd | Rut
5 atriði sem breytast þegar þú byrjar í Crossfit