Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 4
Lögregla hefur lagt hald á um 1400 grömm af kókaíni og fjórar milljónir í reiðufé vegna málsins. Mynd frá Keflavíkurflugvelli. Fíkniefni Fjögur burðardýr á vegum sama fíkniefnainnflytjanda Nígerískur ríkisborgari skipulagði smyglið Lögreglan og tollverðir á Keflavíkurflugvelli hand- tóku fjóra einstaklinga á skömmum tíma fyrir innflutning á kókaíni. Öll virðast þau hafa komið hingað til lands á vegum sama manns og verið lofað greiðslu fyrir viðvikið. Atli Þór Fanndal ritstjorn@frettatiminn.is Alls er um að ræða tæplega 1400 grömm af kókaíni sem lögregla lagði hald á, á tveggja mánaðar tímabili í lok síðasta árs. Þá hefur lögreglan fjórar milljónir króna í peningum. Þar af tæplega 20 þús- und evrur. Nígerískur ríkisborgari, Christian Sunday, var handtekinn í nóvem- berlok vegna málsins. Lögregla telur ljóst að fíkniefnin hafi verið ætluð í sölu og dreifingu á Íslandi. Christian er með ítalskt dvalarleyfi. „Hann er hvergi skráður til vinnu hér á landi og er ekki í hælismeð- ferð,“ segir í skýrslu lögreglu. Sam- kvæmt heimildum Fréttatímans er Christian farinn af landi brott. Tollverðir höfðu afskipti af ungri konu við komu hennar frá Berlín í byrjun október. Við leit fundust tvær pakkningar með fíkniefnum innanklæða. Við nánari skoðun kom í ljós að konan var með pakkn- ingu af fíkniefnum í leggöngum. [Hún] „fjarlægði þá pakkningu og afhenti lögreglu,“ segir í lögreglu- skýrslu vegna málsins. Tæplega sex hundruð grömm af kókaíni voru handlögð í málinu. Í samtali við toll- gæslu viðurkenndi konan að hafa komið hingað til áður. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að konan kom einnig hingað til lands í lok ágúst. Í lok október hafði lögregla af- skipti af tveimur mönnum sem komu frá Brussel og höfðu fíkni- efni innvortis. Við yfirheyrslu kom fram að þeir hefðu komið hingað til lands í þeim tilgangi að flytja fíkni- efni. Samtals voru mennirnir með tæplega 500 grömm af fíkniefnum innvortis. Við yfirheyrslu lögreglu kom fram að þeim hafi verið lofað um 500 evrum, um 70 þúsund krónum, að launum fyrir viðvikið. Mönnunum hafði verið gert að fara á gistiheimili í Skipholti. Þar áttu þeir að skila af sér fíkniefnunum og vera fluttir á annað gistiheimili áður en þeir færu úr landi. Rúmum mánuði síðar var svo kona handtekin við komu frá Brus- sel með fíkniefni innvortis. Í það skiptið fundust um 300 grömm af kókaíni. Við vitnaleiðslur kom fram að konan hefði átt að fá 750 evrur, rúmlega 100 þúsund krónur, að launum fyrir flutning fíkniefnanna. Við rannsókn málsins varð ljóst að öll voru burðardýrin á vegum sama aðila. Við handtöku og húsleit var, eins og áður, segir gert upp- tækt talsvert magn fjármuna. Þá var leitað í bifreið sem maðurinn hafði til afnota. Í bílnum „fannst töluvert magn fjármuna, samtals 551.899 íslenskar krónur og 5 evrur.“ Bílinn sem um ræðir var skráður á ís- lenska konu sem virðist ekki talin tengjast málinu með beinum hætti. Í samtali við Fréttatímann sagðist konan vinna að því að afskrá bílinn af sínu nafni. Hann væri ekki henn- ar eign. Hún sagðist þekkja til hins grunaða en að hún ætti bílinn ekki og vissi ekkert um málið og hefði ekkert vitað fyrr en lögregla kallaði hana til skýrslutöku vegna bílsins. Af magni fíkniefna, tíðni inn- flutnings og þess fjár sem lögregla gerði upptækt virðist Christian hafa verið nokkuð virkur við sölu og inn- flutning fíkniefna á meðan á dvöl hans stóð. Í skýrslu lögreglu kemur fram að sýni sem sent var til rann- sóknar hafi styrkur kókaíns reynst 35 prósent. Lögregla fékkst ekki til að tjá sig um málið þegar þess var leitað. Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Göngugleði í svissnesku Ölpunum Fararstjóri: Aðalsteinn Jónsson Komdu með í þægilega gönguferð um glæsilega fjallasali svissnesku Alpanna, þar sem hæsti tindurinn, sjálfur Matterhorn, trónir yfir. Við göngum yfir grösug engi, gegnum forna lerkiskóga, að fjallavötnum og sjáum fjölda huggulegra fjallaþorpa. Einn gististaður og dagsferðir í frábærum félagsskap! Verð: 249.200 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! 30. júlí - 6. ágúst Því fer fjarri að Evrópa standi nú frammi fyrir nýjum raunveruleika í kjölfar hryðjuverka í Belgíu og Frakklandi síðustu misserin. Þegar horft er yfir lengra tímabil sést að dauðsföll vegna hryðjuverka voru miklum mun algengari í Evrópu á áttunda og níunda áratugnum og fram eftir þeim tíunda. Hryðjuverkum fækkaði í kjölfar friðarsamn- inga við Írska lýðveldisherinn og frelsishreyfingar Baska á Spáni undir lok síðustu aldar. Hryðjuverkin að undanförnu benda til aukinnar hættu frá því var á allra síðustu árum en ekki þegar horft er eilítið lengra aftur. | gse Damian ásamt tíkinni Amy, sem er eiganda sínum afar dýrmæt. Dýravernd Engin viðbragðsáætlun í einangrunarstöðinni Ætluðu að senda fótbrotinn hund úr landi Tvítugur strákur stóð frammi fyrir því að senda átti hundinn hans úr landi eftir að það uppgötvaðist í einangrunarstöðinni í Höfnum að hann væri fót- brotinn. Matvælastofnun vildi senda lítinn hvolp úr landi eftir að hann fót- brotnaði, að því er virðist í einangr- unarstöðinni í Höfnum eða á leið þangað frá flugvellinum. Ekki er vit- að hvernig tíkin tvíbrotnaði á fæti. Hundurinn hafði þó verið skoðaður af dýralækni frá Matvælastofnun við komuna til landsins og reynst við fulla heilsu Eigandinn, Damian Davíð, er tvítugur en tíkin hans, Amy, er sjö mánaða fiðrildahundur. Eftir að fótbrotið uppgötvaðis og tæpri viku eftir að hundurinn kom í stöðina, var Damian boðaður á fund með dýralæknum frá Matvælastofn- un og sagt að hundurinn þyrfti að fara úr landi með næsta flugi. Vegna sóttvarna mátti ekki fara með hund- inn á dýraspítala og ekki var talið að aðstaðan í stöðinni væri nógu góð til að hægt væri að framkvæma að- gerðina. „Fyrst fór ég bara að gráta, en leitaði síðan Dýraverndarsam- bandsins,“ segir Damian David. „Ég gat ekki látið tíkina vera fótbrotna í stöðinni og heldur ekki hugsað mér að senda hana úr landi.“ Eigandi hundsins leitaði til Hall- gerðar Hauksdóttur, formanns Dýra- verndarsambandsins, en hún fór með honum á fundinn. Eftir hörð skoðanaskipti ákváðu fulltrúar Mat- vælastofnunar að bakka og leyfa eig- andanum að kalla til dýralækni til að gera aðgerð á hundinum og hætta við að senda hann úr landi. Hallgerður Hauksdóttir segir í samtali við Fréttatímann að það sé vont mál að eina stofnunin sem hafi lögformlega stöðu til að tala fyrir dýravernd í landinu hafi vikið þeim sjónarmiðum til hliðar fyrir sótt- varnarhlutanum sem stofnunin ber einnig ábyrgð á. Eigandi hundsins hafði varið nær 700 þúsundum í að flytja inn hundinn og greiða fyrir dvölina í einangrunarstöðinni. Hann þarf nú að greiða 360 þúsund króna læknis- reikning því stöðin er ekki með nein- ar tryggingar og Matvælastofnun tekur enga ábyrgð á málinu. Hann stóð fyrir söfnun á Facebook til að greiða reikninginn og hefur safnað 230 þúsund krónum. „En henni líð- ur vel, það er það sem skiptir máli og ég fæ hana aftur til mín miðvikudag- inn eftir viku,“ segir Damian. | þká Færri hafa dáið í hryðjuverkum á síðustu árum Mannfall í hryðjuverkjum í Evrópu frá 1970 Skatturinn segir að sjálf- boðaliðar eigi að greiða skatta og fyrirtækin sem nota þjónustu þeirra. Búist er við hundruðum sjálf- boðaliða til landsins í sumar til að starfa við landbúnað og ferðaþjónustu en fjöldi Íslendinga óskar eftir sjálfboðaliðum á sér- stakri síðu, workaway.info, sem Fréttatíminn hefur áður fjallað um. Verkalýðshreyfingin telur þetta fela í sér óásættanleg undirboð en málið er umdeilt. ASÍ óskaði eftir áliti ríkisskattstjóra á því hvort slík vinna væri skattskyld, þar sem umbunin væri einungis í formi hlunninda. Í álitinu segir að í slík- um tilfellum eigi einstaklingurinn að telja fæði og húsnæði fram sem tekjur. Fyrirtæki sem þiggi slíka vinnu, eigi að telja hana fram sem skattskylda gjöf og miða við laun sem séu ekki lægri en lágmarks- laun í landinu. Í frétt Fréttatímans af málinu var meðal annars rætt við kræk- lingabónda sem hafði fengið til sín 30 til 40 sjálfboðaliða síðan hann hóf að nota síðuna. | þká Skattar Ríkisskattstjóri brýnir klærnar Sjálfboðaliðar greiði skatt af fæði og húsnæði Kræklingabóndi á Vesturlandi hefur fengið til sín 30-40 sjálfboðaliða. 1970 2016 450 400 350 300 250 200 150 100 50 0 1970–1979 1990–19991980–1989 2000–2009 2010– 4 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. Mars–28. Mars 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.