Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 64
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Hágæða postulín
- með innblæstri frá náttúrunni
Verið velkomin í verslun RV og sjáið úrvalið af glæsilegum borðbúnaði frá REVOL.
Starfsfólk RV aðstoðar verðandi brúðhjón við að velja postulínsborðbúnaðinn á
gjafalistann.
24/7
RV.is
Opið virka daga frá 11:00 -19:00 og laugardaga 12 - 18
Í Ostaskóla Búrsins eru bara ostar
á námsskránni. Engar frímínútur og
heldur engin heimavinna. Afþreying
fyrir ostelskandi einstaklinga.
Ostaást?
Búrið er troðfullt af
ótrúlega girnilegu
ostagóðgæti og öðru
gúmmulaði.
Komin tími til að kíkja í Búrið?
Grandagarður 35 · 101 Reykjavík · Sími 551 8400 www.burid.is
Kate fór dálítið ólíka leið tengdamóður sinnar heitinnar, Díönu prinsessu, sem fór alla leið í rjómatertustíl-
num. Slörið var tæplega 8 metrar á lengd og kjólinn alsettur perlum og gimsteinum. Í dag er kjóllinn talinn
ómetanlegur og ferðast á milli landa sem sjálfstæður sýningargripur. Trúlofunarkjóll Díönu seldist fyrir
fimm árum á 192,000 pund, eða tæplega 35 milljónir króna miðað við gengið í dag.
Goðsagnir í formi
brúðarkjóla
Brúðarkjóllinn er stóra málið fyrir allflestar brúðir. Þennan dag er brúðurin stjarna – með
fullri virðingu fyrir brúðgumum. Brúðarkjóllinn getur orðið að goðsögn, eins og reyndin er
með þessa kjóla sem við völdum úr sem fremsta meðal jafningja.
Einn frægasti brúðar-
kjóll allra tíma er
kjóllinn sem Grace
Kelly klæddist þegar
hún gekk að eiga prins
Rainier af Mónakó. Það
tók tæplega fjörutíu
saumakonur meira en
sex vikur að handsauma
hverja perlu og blúndu á
kjólinn. Hann hefur elst
einstaklega vel og þegar
Kate Middleton giftist
Vilhjálmi Bretaprinsi
var kjóllinn hennar,
sem hannaður var hjá
tískuhúsi Alexander
McQueen, greinilega inn-
blásinn af Grace Kelly.
Einn frægasti brúðarkjóllinn í seinni tíma bíómyndasögu er án
efa kjóllinn sem Carrie Bradshaw úr Sex and the City klæddist
þegar hún ætlaði að giftast mr. Big í bíómyndinni um hinar fjórar
fræknu – en það fór ekki eins og ætlað var, eins og frægt er. Það
var Vivienne Westwood sem hannaði kjólinn sem varð, aðeins
klukkutímum eftir frumsýningu myndarinnar, uppseldur. Þrátt
fyrir að hafa sjálf látið framleiðendum myndarinnar kjólinn í
té var Westwood langt því frá uppnumin yfir henni og yfirgaf
raunar bíósalinn á frumsýningunni eftir aðeins tíu mínútur. Hún
sagðist hafa haldið að „konsept“ Sex and the city væri beitt og
ögrandi jaðartíska en það sem hún hefði séð væri ekki á nokkurn
máta áhugavert eða eftirminnilegt. Hananú.
12 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. mars–28. mars 2016
Brúðkaup AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is