Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 52
Gott að taka skyndiákvörðun: Kauptu
flugmiða til London, keyrðu norður til
að vera á Akureyri, eða skrepptu í það
minnsta í sund í Hvera-
gerði! Páskar eru tækifæri
til að brjóta upp það hvers-
dagslega, nýttu tímann vel.
Gott að ná reggíi fyrir norðan:
Allir vita að Jesús elskaði reggí!
Reggíhljómsveitin Amaba Dama
verður fyrir norðan um
páskana og spilar á Akur-
eyri á skírdag og Dalvík á
föstudaginn langa.
Spurt er… Hvað táknar
að vorið sé komið?
Páskar
í æð
Gott að skíða: Bláfjöll eru opin
alla páskana frá klukkan 10–17.
Hlíðarfjall er opið, þar fara fram
Vetrarleikarnir og keppt verður í
„slopestyle“ og „free ride“. Á Ísa-
firði verður fjölbreytt dagskrá fyrir
alla fjölskylduna í fjallinu.
Sólin
Ugla Arnarsdóttir nemi
„Bara þegar sólin er byrjuð að skína
eftir veturinn og svoleiðis.“
Tjaldurinn
Haraldur Ingi Ingimundarson,
bílasölumaður hjá Heklu
„Þegar tjaldurinn kemur. Lóan er
svo vitlaus, greyið, hún kemur alltaf
þegar ennþá er kalt.“
Þurr gangSTéTT
Steinunn Eldflaug Harðardóttir
tónlistarkona
„Aðaltáknið fyrir mér er þegar
maður labbar úti, gangstéttin er
þurr og mölin á stéttinni brakar
undir skónum manns.“
PáSkahreTið
Svavar Steinarr Guðmundsson,
verkefnastj. íslenskudeildar HÍ
„Vorið er ekki komið fyrr en páska-
hretið er afstaðið.“