Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 68

Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 68
Unnið í samstarfi við Luxor tækjaleigu Fólk leitar gjarnan til okkar með grófar hugmyndir og við útfærum þær með viðkomandi. Við tökum hugmyndina og látum hana verða að veruleika,“ segir Bragi Reynisson, framkvæmdastjóri Luxor tækja- leigu. Luxor hefur verið starfrækt frá árinu 2001 og starfsfólk fyrirtækisins býr yfir mikilli reynslu í tæknimálum, til að mynda frá framleiðslu sjónvarpsþátta á borð við Biggest Loser og The Voice. Luxor býður upp á ljósakerfi, sviðslausnir, hljóðkerfi, rauða dregla og ýmislegt annað til leigu sem tilheyrir veisluhaldi. „Við getum með einföldum hætti tekið hefð- bundinn sal og umbreytt honum. Látlaus salur eignast nýtt líf með tækjunum okkar, sérstak- lega LED-ljósunum sem breyta stemningunni. Þau fylgja því litaþema sem er í brúðkaupinu og svo þegar líður á kvöldið breytist litaþemað yfir í partí með einum smelli,“ segir Bragi. Hann segir að fagþekking síns fólks geti komið að góðum notum í brúðkaupsveislum. „Mínir menn geta komið á staðinn og séð alfarið um tæknimálin, þá eru þau í öruggum höndum. Hvort sem það eru ræðuhöld, myndbönd eða plötusnúðar. Það er algengt að einhverju sé tæknilega ábótavant í veislusölum og þá kemur fagþekking okkar sér vel. Flestir fá sér veisluþjón- ustu í brúðkaupum, það er alveg jafn sjálfsagt að leita eftir tækniþjónustu.“ Nánari upplýsingar má fá á heimasíðunni www.luxor.is. Tæknimálin í öruggum höndum Luxor tækjaleiga býður upp á ljósakerfi, sviðslausnir og hljóðkerfi fyrir brúðkaupsveislur Látlaus salur eignast nýtt líf með LED-ljós- unum sem Luxor hefur yfir að ráða. Bragi Reynisson, framkvæmdastjóri Luxor. Unnið í samstarfi við Más og blás Þegar kemur að því að skipu-leggja stóra daginn er vissara að huga að tónlistinni. Steinar Sigurðarson tónlistar- maður hefur mikla reynslu af því að troða upp í brúðkaupum og að skipuleggja tónlistaratriði. „Ég hef komist að því í gegnum tíðina að margir vita ekki hvert þeir eiga að leita þegar kemur að tónlist í veislum. Ég hef tekið þetta að mér, allt frá því að troða upp sjálfur með saxafóninn í að skipuleggja stór tón- listaratriði eða tónlist sem spiluð er undir borðhaldi,“ segir Steinar. Steinar segir ýmsa möguleika í boði varðandi tónlistarflutning í brúðkaupum. Hann hafi til að mynda sett saman brassband í New Orleans-stíl sem hafi marserað með fólk frá kirkju að veislu, hann hafi troðið upp með saxafóninn bæði með plötusnúðum og gítarleikurum og þannig mætti áfram telja. „Við höfum spilað hresst „happy“ lag í staðinn fyrir útgöngumarsinn og það heppnaðist ótrúlega vel. Presturinn og kirkjan ráða því ekki hvort eða hvernig þú spilar brúðarmarsinn eða útgöngumarsinn. Það er hægt að spila þetta á allt annan hátt eða spila önnur lög.“ Steinar segir að margir veigri sér við að leggja fram óskir sínar í þeirri trú að það sé ómögulegt, passi ekki eða sé illframkvæmanlegt. „Það þarf ekki að vera svo og yfirleitt er hægt að hanna hlutina í kringum viðburðinn. Fólk áttar sig oft ekki á þeim möguleikum sem í boði eru og þorir jafnvel ekki að spyrja.“ Þeir sem hafa skipulagt brúðkaup vita að ýmislegt getur gengið á í hamaganginum. Steinar segir að eitt og annað er snýr að tónlist og tækni- málum eigi það til að gleymast og þá sé gott að hafa fagmann í málinu. „Þegar pípulagnirnar bila þá ræð ég mér pípara, ég er ekki að fara í rörin sjálfur því þá eru töluverðar líkur á að það leki. Það sama gildir um tónlistina, fólk vill bara hafa þetta í lagi. Það vill ekki að það sé bara þögn þegar ræður eru búnar, tónlistin í borðhaldinu passi ekki eða það gleymist snúra til að tengja græjurnar,“ segir hann. Hægt er að hafa samband við Steinar í gegnum síðu hans á Facebook (Steinar Sig) og þar eru jafnframt nánari upplýsingar um hann. Steinar sér um tónlistina Tekur að sér að troða upp í brúðkaupum og skipuleggja tónlistaratriði Steinar Sigurðarson hefur góða reynslu af því að skemmta í brúðkaupum og að skipuleggja tónlistaratriði. Mynd | Hari Unnið í samstarfi við Hljóðver.is Þetta er tilvalið til að gera daginn skemmtilegan, að taka saman upp lag,“ segir Jónas Björgvinsson, upptökumaður og eigandi Hljóðvers.is. Jónas hefur mikla reynslu af því að taka á móti hópum í gæsunum og steggjunum. Vinsælt er að gæsin eða steggurinn syngi lag í hljóðverinu sem svo er spilað í brúðkaupinu, gjarnan undir myndasyrpu frá gæsuninni eða steggjununni. Hljóðver.is hefur verið rekið frá 2008 að Langholtsvegi 60 og þar hefur fjölbreytt tónlist verið tekin upp í gegnum tíðina. „Þetta er lítið og skemmtilegt hljóðver og hér er gott að vinna,“ segir Jónas sem hefur auk tónlistar fengist talsvert við aug- lýsingar og talsetningu. „Og síðan hefur þetta alltaf fylgt, að taka á móti hópum, eða gæsa- tímabilið eins og við köllum það. Gæsatímabilið hjá okkur er á vorin og sumrin en ekki á haustin eins og hjá flestum,“ segir hann í léttum tón. Aðspurður segir Jónas að vanalega hafi skipuleggjend- ur samband við hann og velji lag. Svo þegar hópurinn mætir í hljóðverið tekur um það bil hálftíma til klukku- tíma að hljóðrita sönginn. „Gæsin eða steggurinn syngur aðalröddina og stundum syngja vinirnir bakraddir, það getur komið skemmtilega út. Svo eru dæmi um það að báðir hóparnir, gæsin og steggurinn, komi í sitt hvoru lagi og brúðhjónin séu óafvitandi látin syngja dúett,“ segir Jónas. Hann segir athyglisvert að kon- urnar séu yfirleitt metnaðarfyllri og vilji gera hlutina vel. Strákarnir virðist hafa meiri ánægju af að pína stegginn, til að mynda með því að syngja rokkballöður sem viðkom- andi ráði alls ekki við. Gengur ekki fólki misvel að spjara sig í hljóðverinu? „Jú, auðvitað. Við höfum fengið alla flóruna, allt frá góðum söngvurum til fólks sem er algjör- lega laglaust. Það hefur auðvitað ákveðið skemmtanagildi líka. Svo er líka vissara að reyna að gera þetta fyrri part dags, svo allir séu ennþá hressir.“ Þegar gæsir og steggir hafa sungið hjá Jónasi hljóðblandar hann lagið og skilar af sér geisladiski með laginu og myndum frá upptökunum. Allar nánari upplýsingar má fá á heimasíðunni www.hljodver.is. Tekur á móti steggjum og gæsum Jónas Björgvinsson rekur Hljóðver.is þar sem vinsælt er að láta tilvonandi brúðhjón syngja lag sem svo er spilað í brúðkaupinu Jónas Björgvinsson. Það er oft lífleg stemning í hljóðverinu þegar gæsir og steggir kíkja í heimsókn. 16 | fréttatíminn | PáSkAHELGiN 24. MARS–28. MARS 2016 Kynningar | Brúðkaup AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.