Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 30
Safnaverðlaunin eru viðurkenning, veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. ÓSKAÐ ER EFTIR ÁBENDINGUM frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum um safn eða einstök verkefni á starfssviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Söfnum er jafnframt heimilt að senda inn kynningar á eigin verkefnum. Til greina koma sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi svo sem rannsóknir og varðveisla. Valnefnd tilnefnir þrjú söfn eða verkefni sem tilkynnt verða á Alþjóðlega safnadeginum á Íslandi, 18. maí og hlýtur eitt þeirra viðurkenninguna. Safna­ verð launin verða veitt í tíunda sinn 13. júlí 2016 á Bessastöðum. Ábendingum skal skilað í síðasta lagi 17. apríl 2016 Sendist: Safnaverdlaun@icom.is eða Safnaverðlaunin 2016 – Íslandsdeild ICOM – pósthólf 1513 – 121 Reykjavík Íslandsdeild alþjóðaráðs safna – ICOM og FÍSOS – Félag íslenskra safna og safnmanna standa saman að verðlaununum. ÍSLENSKU SAFNaVERÐLAUNIN 2012 ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNIN 2016 Heil og sæl, kæra Inga og takk innilega fyrir bæði bréf og góða spurningu. Margir foreldrar eru í sömu sporum og standa ráðþrota gagnvart tölvunotkun og ekki síst með tilkomu spjaldtölva og snjall- síma – hugtök sem við þekktum ekki fyrir nokkrum árum. Vandi bæði foreldra og barna Fyrst vil ég nefna að börn og ung- menni eru ekki ein um að lenda í vandræðum með ofnotkun. Nýlegar rannsóknir benda til að fullorðnir opni snjallsímann sinn 1.500 sinnum á viku og talan fer hækkandi. Mikill meirihluti fólks kíkir á símann sinn um leið og það vaknar og heldur áfram á rúm- stokknum. Tíminn við sjónvarp og tölvu og snjalltækin, svonefndur skjátími, er allt of mikill hjá okkur öllum – svo einfalt er það. Þess vegna þarf yfirleitt heimilisátak til að hjálpa barni frá skjánum þar sem allir á heimilinu setja sér mörk; slökkva á síma og sjónvarpi og tölvum og skapa sér samveru án truflunar frá tækjunum. Er ástæða til að hafa áhyggjur Einfalda svarið er bæði já og nei. Auðvitað skiptir máli hvernig barnið notar tækin og gæðaefni sem hentar aldri barnsins, getur haft jákvæð áhrif. Eins eru félags- leg samskipti á netinu oft jákvæð og uppbyggileg og eins leikir sem hafa eitthvert gildi fyrir barnið. Þetta gildir þó aðeins ef skjátím- inn er stuttur í senn og aðrar tóm- stundir séu „skjálausar“. Þar má nefna lestur, hreyfingu og sam- veru með fjölskyldu og félögum. Hins vegar skaltu endilega fylgjast með hegðun og líðan barnsins eftir sjónvarps- og tölvunotkun. Óvirk og leið börn eða þá pirruð og uppstökk eru dæmi um að skjá- veran sé ekki að gera þeim gott. Þá verða foreldrar að grípa inn í – hiklaust. Hæfilegur skjátími Sérfræðingar mæla með að börn undir tveggja ára séu hvorki að horfa á sjónvarp eða snjalltæki eða tölvur. Sem sagt, alls ekki. Fyrir tveggja til fimm ára börn er klukkustund talin hámark og fimm til átján ára aðeins tvær klukkustundir. Þetta er samt aðeins viðmiðun – en æ fleiri rannsóknir birtast núna um mögulega skaðsemi bæði tækjanna sjálfra og líka þráðlausu netanna að ógleymdri birtunni og ljóstifinu á skjánum. Kíktu endilega á netið (í stutta stund) og skoðaðu hvað þar er að finna og þú munt án efa verða undrandi. Of mikil tölvunotkun getur ýtt undir athyglisröskun, svefntrufl- anir, einmanaleika og ofþyngd vegna hreyfingarleysis. Meira að segja pirringur, reiði og árásar- girni að ónefndri vanlíðan og til- hneigingu hvað varðar þunglyndi hefur verið tengt við of mikla tölvunotkun. Skoðaðu líka tölvu- fíkn og hvað er best að gera til að hamla gegn slíkri þróun. Skömmtun á sælgæti og skjá-veru Best er að líta á skjágleðina sömu augum og sælgætisát. Nánast öll börn kjósa sætindi fremur en mat og ef þau væru einráð, væri sæl- gæti í hvert mál á hverju heimili. Foreldrar skammta sælgætið af sinni fullorðinsvisku og passa sig líka sjálfir því ekki virkar að þeir sitji með súkkulaði á kvöldin en rétti barninu útskorna gulrót! Það þarf líka að skammta tölvur og sjónvarp og snjalltæki fyrir börn og fullorðna af fullkominni ákveðni og gera svo eitthvað upp- byggilegt saman, öll fjölskyldan. Búið ykkur til dagskrá á heim- ilinu, ræðið saman um reglurnar og spáið í viðurlög með börn- unum. Svo skuluð þið spá í að taka skjáfrí og það virðist sem að lágmarki fimm daga skjáfrí skipti miklu máli fyrir þroska og líðan barna. Magga Pála Uppeldisáhöldin Sendið Möggu Pálu spurningar á maggapala@frettatiminn.is og hún mun svara í næstu blöðum. „Tölvuvera“ eða samvera Sæl vertu Magga Pála! Ég á 8 ára dóttur sem er alltaf í tölvunni. Hún byrjar í I-padinum á meðan hún borðar morgunverðinn og það fyrsta sem hún vill gera þegar hún kemur heim úr skólanum er að fara í tölvuna eða I-pad- inn. Við höfum reynt að setja reglur um skjátíma en það veldur bara vansæld og henni leiðist. Er ástæða til að óttast að hún þrói með sér tölvufíkn eða er bara gott að stelpur hafi áhuga á tækni? Sumt af því sem hún gerir í tölvunum eru skapandi verkefni, ekki bara leikir og afþreying. Gaman væri að fá þína sýn á þetta. Bestu kveðjur, Inga. 30 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. Mars–28. Mars 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.