Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 70
Unnið í samstarfi við Culina
Margir þekkja vörurnar frá Culina sem fást til dæmis í Búrinu og Frú Laugu en góður rómur
hefur verið gerður að sósunum,
kexinu og maukinu sem framleitt
er úr fyrsta flokks hráefni. Dóra
Svavarsdóttir matreiðslumeistari er
eigandi Culinu sem einnig er veislu-
þjónusta með áherslu á persónu-
lega matseðla sem sniðnir eru að
þörfum viðskiptavinarins. „Ég vil
semja matseðlana með fólki þannig
að hver matseðill verði svona dálítið
sérstakur,“ segir Dóra.
Sérhæfir sig í sérþörfum
Sérstaða veisluþjónustunnar er ef til
vill sú að mikið er lagt upp úr því að
koma til móts við þau sem þurfa af
einhverjum ástæðum að vera á sér-
fæði, til dæmis vegna ofnæmis eða
óþols. „Það er ekkert leiðinlegra en
þegar fólk sem þarf að huga að sér-
stöku mataræði getur ekki einu sinni
borðað matinn í eigin veislu, það er
alveg glatað,“ segir Dóra sem notar
sína miklu reynslu og þekkingu til
þess að sníða matseðlana að þörfum
hvers og eins án þess að það bitni
á bragði eða gæðum. Bæði græn-
metisætur og þau sem eru vegan
hafa líka verið stór hópur sem sækir
veisluþjónustu sína til Culinu.
Alltaf hægt að finna lausnir
Dóra gefur sér mikinn tíma til að
semja matseðilinn með kúnnanum,
sest niður með honum og ræðir
óskir og væntingar. „Það er alltaf
gott að fólk sé með einhverja hug-
mynd áður en það kemur til mín og
jafnvel verðhugmynd. Það er svo
auðvelt að smíða inn í rammann
eftir hugmyndum hvers og eins og
alltaf hægt að finna lausnir og gera
eitthvað skemmtilegt sem passar
inn í flesta fjárhagsramma. Mark-
miðið er alltaf að þetta verði fallegt
og gott og sanngjarnt fyrir alla,“
segir Dóra.
Sjá nánari upplýsingar á culina.is.
Hafið samband beint við Dóru:
dora@culina.is eða í síma 892 5320
Rómantískur
brúðarvöndur
Falleg blanda af hvítum
vorblómum, sígildur og
rómantískur.
4 árstíðir
Lágmúla 4
S. 566 8215
Framandi
brúðarvöndur
Leikur að þykkblöðung-
um og orkídeum, ný og
skemmtileg blanda.
4 árstíðir
Lágmúla 4
S. 566 8215
Frjálslegir,
rómantískir
og náttúrulegir
Persónulegir matseðlar
og pottþétt þjónusta
Veisluþjónusta Culinu leggur metnað sinn í að uppfylla óskir og væntingar viðskiptavina
Samansettur af
nellikum, hor-
tensíum, bónda-
rós, brúðar-
kollu, safari og
eryngium.
18 Rauðar Rósir
Hamraborg
S. 554 4818
Hefðbundin rómantík
Vöndurinn er vafinn með brúðarslöri, nellikum, ástareldi og hvítum
hortensíum.
18 Rauðar Rósir Hamraborg • S. 554 4818
Rómantískur og lukkulegur
Samkvæmt gömlum brúðkaupshefðum er það brúðinni til lukku
að hafa eitthvað blátt á brúðkaupsdaginn. Bláu hortensíurnar gera
þennan vönd einstaklega rómantískan og fallegan og færa brúðinni
vonandi lukku í komandi hjónabandi.
Garðheimar Stekkjarbakka 6 • S. 540 3300
Frjálslega formaðir
vendir eru að koma
sterkir inn. Þeir
bera með sér fersk-
an og óformlegan
andblæ. Líkt og
brúðurin hafi farið
út á engi og tínt
sér nokkur blóm
í vönd. Í þessum
vendi leika græn
lauf og greinar
mikilvægt hlut-
verk í fylgd með
uppáhaldsblómum
brúðarinnar.
Garðheimar
Stekkjarbakka 6
S. 540 3300
Ferskur og frjálslegurVilltur náttúruvöndur
Matseðlar af
öllum sortum
Þó að Culina sérhæfi sig í mat-
seðlum fyrir þau sem eru með
sérþarfir af einhverju tagi eru
engin takmörk fyrir því hvað er
í boði; matseðlarnir geta verið
af öllum sortum. Það eina sem
þeir eiga allir sameiginlegt er
að Culina leggur metnað sinn í
að elda alla rétti frá grunni og
notar engin óþörf aukaefni eða
rotvarnarefni.
„Það er ekkert leiðinlegra en þegar fólk sem þarf að huga að sérstöku mataræði
getur ekki einu sinni borðað matinn í eigin veislu, það er alveg glatað,“ segir Dóra.
Mynd | Hari
18 | FRéttatíminn | páSkaHeLgin 24. MarS–28. MarS 2016
Kynningar | Brúðkaup AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is