Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.03.2016, Qupperneq 8

Fréttatíminn - 24.03.2016, Qupperneq 8
Mynd | NordicPhotos/GettyImages Landsleikur Danmörk og Ísland mætast í vináttulandsleik í kvöld, fimmtudagskvöld Aldrei unnið Dani og ekki skorað gegn þeim í 15 ár Íslenska landsliðið í knatt- spyrnu, sem undirbýr sig nú af krafti fyrir lokakeppni EM í Frakklandi í sumar, mætir því danska í vináttulands- leik í Herning í Danmörku í kvöld, fimmtudagskvöld. Óhætt er að segja að íslenska landsliðið hafi ekki flegið feitan gölt í viðureignum sínum við Dani í gegnum tíðina en í 22 landsleikjum þjóðanna á milli hafa Danir unnið átján sinnum og fjórum sinnum hefur orðið jafntefli. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is „Þetta er góð spurning. Við höfum alltaf verið í vandræðum með danska liðið. Ég held að við höfum verið þjakaðir af minnimáttar- kennd og hugsað of mikið um 14-2 tapið,“ segir Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðs- ins, en hann var síðasti leikmaður íslenska landsliðsins sem skoraði gegn Dönum, þann 2. september árið 2000, í 2-1 tapi á Laugardals- velli. Tapið sem hann vísar til er háðulegasta útreið íslensks lands- liðs í sögunni, 14-2 tap í Danmörku 23. ágúst 1967. Ekki tekur Eyjólfur of sterkt til orða þegar hann segir að íslenska liðið hafi verið í vandræðum með það danska í gegnum tíðina. Frá fyrsta leik þjóðanna á Melavellin- um árið 1946, sem endaði með 3-0 tapi, hefur gengi Íslands gegn Dön- um verið ömurlegt. Sex síðustu leikir gegn Dönum hafa tapast með markatölunni 1-16. Sá sem skoraði mark síðast gegn Dönum á undan Eyjólfi var Matthías Hallgrímsson á því herrans ári 1974. „Við höfum farið í leikina gegn Dönum með það fyrir augum að tapa ekki of stórt í stað þess að hugsa um hvernig við getum unn- ið þá. Slíkt hugarfar leiðir aldrei til góðs,“ segir Eyjólfur sem hefur þó full trú á að íslenska landsliðið geti dregið á land fyrsta sigurinn á Dönum í kvöld. „Þessi lið eru svipuð að getu og fyrir mér er þetta spurning um dagsform. Íslenska liðið hefur ekki verið sannfærandi í vináttulands- leikjum að undanförnu enda eru þeir öðruvísi og oft notaðir til að prófa nýja hluti. Staðreyndin er samt sú að 80% leikmanna íslenska liðsins voru í U-21 árs liðinu sem vann Danmörku, 3-1, í úrslitakeppni EM 2011, þannig að það er ekkert sem hindrar þá í að trúa á sigur. Við þurfum að hafa trúna og vita hvernig á að spila gegn þeim. Þá vinnum við þennan leik,“ segir Eyjólfur. Þú færð pottþétt starf Í verk- og tækninámi bjóða ölmörg fyrirtæki upp á vinnustaðanám þar sem þú öðlast dýrmæta starfsreynslu. Að námi loknu standa þér til boða ótal spennandi og vel launuð störf, þú hlýtur alþjóðlega viðurkennd starfsréttindi og auk þess góðan grunn að ölbreyttu framhaldsnámi. Fleiri en 160 fyrirtæki í iðnaði hafa lýst yr vilja til að ea vinnustaðanám. Kynntu þér málið á www.si.is. Samtök iðnaðarins 2016 | 591 0100 Eyjólfur Sverrisson hefur trú á því að Ísland geti loksins brotið ísinn gegn Dönum. 530 Mínúturnar sem Ísland hefur spilað gegn Dönum frá síðasta marki. 13 Mörk sem Ísland hefur skorað gegn Dönum í 22 landsleikjum. 71 Mark sem Danmörk hefur skorað gegn Íslandi í 22 landsleikjum. Gylfi Sigurðsson, besti leikmaður Íslands, sést hér í leiknum gegn Dönum árið 2011 sem íslenska U-21 árs landsliðið vann, 3-1. „Samfylkingin þarf ekki formann sem telur sig vita allt best og að hann sé með lausnir á vandamálum sam- félagsins sjálfur.“ „Helsti vandi Samfylkingarinnar í dag er að alltof mikið púður hefur farið í að gagnrýna aðra flokka. Meirihluti Íslendinga eru jafnað- armenn og það vantar fókus á að tala fyrir jafnaðarstefnunni. Hún er lausnin á öllum stærstu vanda- málum samfélagsins, eins og hús- næðismálum og heilbrigðismálum,“ segir Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi. Hann er 27 ára tómstunda- og félagsmála- fræðingur og hyggst bjóða sig fram til formanns Samfylkingar á kom- andi landsfundi. Guðmundur Ari telur það vera frumskyldu formanns og forystu Samfylkingar að virkja kraft félags- manna og tryggja að þeir eigi sem stærstan þátt í stefnunni og þeim málum sem barist er fyrir. „Eitt stærsta vandamál stjórnmálanna í dag er að fólki finnst stjórnmál leið- inleg,“ segir í framboðstilkynningu Guðmundar Ara. „En það þýðir ekki að það þurfi að vera candyfloss-vél á öllum fundum heldur að hinn almenni félagsmaður finni fyrir því að hlustað sé á hann og að hann hafi áhrif á framtíðaruppbyggingu samfélagsins sem hann býr í.“ Aðspurður um frammistöðu Árna Páls Árnasonar, núverandi formanns, segir Guðmundur Ari; „Hann hefur staðið sig vel í að sópa fylgi frá stjórnarflokkunum en ekki nægilega vel í að ná í fylgi fyrir Samfylkinguna. Hann hefur verið of fastur í átökunum.“ | þt Stjórnmál Guðmundur Ari, 27 ára, býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar Vill hjálpa Samfylkingunni að finna gleði á ný Guðmundur Ari Sigurjónsson vill verða nýr for- maður Samfylkingarinnar. Það er ekki bara Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem berst fyrir ís- lensku krónunni með vörunum en eltir aðrar myntir með veskinu. Útgerðarmenn hafa verið miklir talsmenn þess að halda í íslensku krónuna en samt gera HB Grandi, Samherji, Þorbjörn, Vinnslustöð- in, Vísir, Rammi og HG Gunnvör upp í evrum og Eskja, Huginn, Ís- félagið og Síldarvinnslan gera upp í dollurum. Morgunblaðið er að þremur fjórðu í eigu stærstu kvótafyrir- tækja landsins og hefur barist hart fyrir krónunni. Hluti af fyrirtækj- unum sem talin voru upp hér að ofan eiga saman um 64 prósent af Morgunblaðinu. | gse Talsmenn krónu kjósa með fótunum Kröfuhafar á Tortóla Orðaskipti á þingi í fyrrahaust hafa fengið nýja vídd eftir að í ljós kom að eiginkona forsætisráðherra á eignarhaldsfélag á Tortóla. Í umræðum á þingi í nóvember síðastliðnum, um breytingar á skattalögum sem felldu niður skatta af vaxtatekjum af skulda- bréfum kröfuhafa, var Frosti Sig- urjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, spurður að því hvort breytingin væri til þess að gefa einhverju Tortóla-liði grið. Frosti sagði að nefndarmenn hefðu spurt starfsmenn fjármála- ráðuneytisins að þessu og fengið þau svör að ekki væru miklar líkur á því. „Þegar upp er staðið þá var ekki tilefni til þess að leggja stein í götu þessara slitabúa við að gefa út skuldabréfin vegna þess að það væri einhver möguleiki á því að 0,1% þessara kröfuhafa væri á Tor- tóla-eyju,“ sagði Frosti, „heldur er reynt að liðka fyrir því að þeir geti fengið þessi bréf og þau geti gengið kaupum og sölum.“ Sem kunnugt er á eiginkona Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar félag á Tortóla sem var kröfuhafi í bú bankanna. Miðað við orða- skiptin á þingi grunaði marga að ein af lagabreytingum í tengslum við slit bankanna kæmu slíkum félögum sérstaklega vel. | gse 8 | fréttatÍMinn | páskaHelgin 24. Mars–28. Mars 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.