Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 16
26,1%
Efra-Breiðholt26+74A 19,1%Austurbær19+81A 19,1%Bakkar19+81A 16,9%Norðurmýri17+83A 16,5%Háaleiti17+83A 16,3%Vesturbær 10116+84A
13,8%
Laugaráshverfi14+86A 13,4%Árbær13+87A
6,9%
Selás7+93A 6,8%Rimahverfi7+93A 6,4%Laugarnes7+93A 6,3%Foldahverfi6+94A
13,3%
Seljahverfi13+87A 11,9%Hlíðar12+88A 10,6%Vesturbær 10711+89A 9,0%Heimar – Vogar9+91A
6,2%
Húsahverfi6+94A 5,8%Hamrahverfi6+94A 5,1%Víkurhverfi5+95A 4,7%Fossvogur5+95A
8,7%
Bústaðahverfi9+91A 7,7%Engjahverfi8+92A 7,4%Grafarholt-eystra8+92A 7,0%Ártúnsholt7+93A
4,4%
Borgarhverfi4+96A 4,2%Norðlingaholt4+96A 2,9%Grafarholt-vestra3+97A 2,3%Staðahverfi2+98A
Hlutfall erlendra ríkisborgara í hverfum Reykjavíkur
Breyting íbúa
í Efra-Breiðholti
og Austurbæ
Heimild: Hagstofa Íslands
30
25
20
15
10
5
0
1998 2015
<Austurbær <Efra-Breiðholt
Hlutfall erlendra ríkisborgara í Efra-Breiðholti fór yfir
hlutfallið í Austurbænum árið 2011. Ástæður þess eru
einkum tvenns konar. Annars vegar leituðu hlutfalls-
lega fleiri erlendir ríkisborgarar í ódýrara húsnæði í
úthverfunum eftir að innflutningur vinnuafls hófst fyr-
ir alvöru eftir aldamótin. Fyrir þann tíma höfðu flestir
erlendir ríkisborgarar búið í Austurbænum og gamla
Vesturbænum eða því sem kallað er 101-Reykjavík.
Þegar íbúðaverð tók að hækka í 101 í kjölfar mikillar
fjölgunar ferðamanna eftir Hrun fækkaði íbúum í 101
eftir því sem fleiri íbúðum var breytt í gistirými og þá
erlendum ríkisborgurum hraðar en íslenskum. Hlutfall
erlendra ríkisborgara í 101 hefur því hætt að vaxa og
heldur fallið á meðan það heldur áfram að rísa í Efra-
Breiðholti.
Umbreytingin í Efra-Breiðholti hefur verið hröð og
mikil. Frá árinu 1998 hefur íslenskum ríkisborgurum
í hverfinu fækkað um 2681, um 29%, á meðan er-
lendum ríkisborgurum hefur fjölgað um 2039 eða um
715%. Fyrir tæpum tuttugu árum voru 3 af hverjum
hundrað íbúum Efra-Breiðholts erlendir ríkisborgarar,
fyrir tíu árum var rúmlega tíundi hver íbúi hverfisins
erlendur ríkisborgari en nú er fjórði hver íbúi erlendur
ríkisborgari og rúmlega það.
Þróunin er önnur í 101. Þar voru erlendir ríkisborg-
arar fleiri á árum áður og fjölgaði hratt eftir aldamótin
en síðan var eins og þeir rækjust upp undir nýtt þak.
Það var hækkun íbúðaverðs í hverfinu og almenn
fækkun íbúa í kjölfar þess að íbúðum var breytt í gisti-
rými til að leigja ferðamönnum eða þá að íbúðarhús
voru rifin til að rýma fyrir hótelbyggingum. Frá árinu
2011 hefur íbúum í 101-Reykjavík fækkað um 319. Af
þeim sem fluttu voru 75 íslenskir ríkisborgarar en 244
erlendir. Með hækkandi íbúðaverði stefnir 101-Reykja-
vík í átt að meiri einsleitni. Efra-Breiðholt hefur tekið
við 101 sem fjölmenningarsamfélag landsins. <
Íslendingar flytja út, útlendingar inn
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt
fyrir sínar glæsi byggingar sem margar
eru á minjaskrá Unesco, forna menningu
og spa/heilsulindir. Þar hefur í árhundruði
blandast saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta
borg Póllands, saga hennar nær aftur til
ársins 997. Glæsilegur arkitektúr, forn
menning og tónlistar-hátíðir hafa gert
borgina að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki
á sinn líka. Gamli bærinn í Riga er virkilegt
augnayndi hvert sem litið er og setur
borgina á stall með fallegri borgum Evrópu.
Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti
Péturs og Dómkirkjan.
Flogið er tvisvar í viku frá maí til október.
SÍMI 588 8900 WWW.TRANSATLANTIC.IS
Verð frá 89.000.-
Fjölgun erlendra ríkisborgara á Íslandi: Vinnuþörf fremur en mannúðarástæður
Mismunur
Austur-Evrópa: 15,287 8,307 -6,980
þ.a. Pólland: 11,073 1,971 -9,102
þ.a. Eystrasaltslöndin: 2,509 763 -1,746
þ.a. Balkanlöndin: 239 3,083 2,844
þ.a. Önnur Austur-Evrópulönd: 1,474 2,490 1,016
Vestur-Evrópa: 5,351 7,292 1,941
þ.a. Norðurlöndin: 1,578 4,501 2,923
þ.a. Norð-Vestur-Evrópu: 2,459 1,856 -603
þ.a. Suður-Evrópa: 1,314 935 -379
Mið-Austurlönd og Norður-Afríka: 209 8,035 7,826
Afríka sunnan Sahara: 286 2,847 2,561
Asía (utan Mið-Austurlanda): 1,966 4,902 2,936
þ.a. Fillippseyjar: 543 346 -197
þ.a. Taíland: 518 782 264
þ.a. Kákasuslönd: 48 1,285 1,237
þ.a. Önnur Asíulönd: 849 2,490 1,641
Norður-Ameríka : 690 529 -161
Mið- og Suður-Ameríka: 309 1,443 1,134
Eyjaálfa: 65 127 62
Alls: 24,163 33,483 9,320
Fjöldi á
Íslandi
Fjöldi ef hlutfallið
væri eins og
á Norðurlöndum
Sérstaða íslensk samfélags kemur
glögglega í ljós þegar borin er
saman samsetning erlendra ríkis-
borgara á Íslandi og í Noregi, Dan-
mörku og Svíþjóð. Eins og sjá
má í töflunni hér til hliðar liggur
munurinn annars vegar í fjölda
fólks á Íslandi frá Póllandi, Eystra-
saltslöndunum og öðrum löndum
Austur-Evrópu, það er fólk sem
hefur verið flutt til landsins sem
vinnuafl, og hins vegar í því hversu
fátt fólk er hér frá Mið-Austur-
löndum, Afríku og Kákasuslöndum,
það er fólk frá stríðs- og hörmung-
arsvæðum sem hin Norðurlöndin
hafa veitt skjól. Þetta er fólk sem
fær landvist af mannúðarástæðum
en er ekki flutt til landsins sem
vinnuafl fyrir stærri fyrirtæki.
Í stutt máli segja að samsetning
erlendra ríkisborgara á Norður-
löndum sýni tiltölulega jafna
skiptingu milli hagsmuna atvinnu-
Aldurssamsetning
íbúa
< Íslenskir karlar < Útlenskir karlar
< Íslenskar konur < Útlenskar konur
Þegar borin er saman aldurskeila
íslenskra ríkisborgara og erlendra
er tvennt áberandi.
Annars vegar hversu mikil dæld
er í keilu íslenskra ríkisborgara á
aldrinum 25 til 50 ára. Dældin sýnir
að yngri fullorðnir fara frekar en
aðrir til náms í útlöndum en hún
sýnir líka viðvarandi landflótta
íslenskra ríkisborgara á umliðnum
árum. Hann hefur fyrst og fremst
dregið yngri fullorðna til útlanda.
Hins vegar sést á aldurskeilu
erlendra ríkisborgara að útlend-
ingar koma hingað fyrst og fremst
í gegnum skipulagðan innflutning
fyrirtækja á vinnuafli og þá einkum
í byggingariðnað, fiskvinnslu,
ferðaiðnað, landbúnað og önnur
láglaunastörf.
Saman sýna aldurskeilurnar
misgengi í stefnu stjórnvalda í
mennta- og atvinnumálum. Frá átt-
unda og níunda áratugnum hefur
verið lögð áhersla á að lengja
skólagöngu og fjölga menntuðum
en áherslur í atvinnumálum hafa
snúist um að efla sjávarútveg, land-
búnað og orkufrekan iðnað og
ferðamannaiðnað hin síðari ár. Allt
eru þetta krónískar láglaunagrein-
ar með lítið menntuðu starfsfólki.
Áhersla stjórnvalda á þessar
láglaunagreinar, samhliða aukinni
menntun íslenskra ríkisborgara,
hefur því skapað viðvarandi þörf
atvinnulífsins eftir fólki til að vinna
láglaunastörf. Þeirri þörf hefur
verið mætt með skipulögðum inn-
flutningi vinnuafls sem sættir sig
við lág laun, líkamlega erfið störf
og veik réttindi. <
Fyrst og fremst
vinnuafl til að vega
upp landflótta
Einelti og kvíði
Þóroddur Bjarnason, prófessor
í félagsfræði við Háskólann á Akur-
eyri, gerði rannsóknina Heilsa og lífs-
kjör skólanema sem framkvæmd var
fyrir Alþjóðaheilbrigðisstofnunina
árið 2006. Þar kom að börn sem eiga
erlenda foreldra eru tvöfalt líklegri
til að verða fyrir einelti í íslenskra
skólakerfinu. Þau voru líka þunglynd-
ari, með lakari sjálfsmynd og í verri
tengslum við skólafélagana. Tungu-
málið virtist gera útslagið, en börn
sem höfðu annan húðlit eða komu úr
meira framandi umhverfi voru ekki
meira útsett en hin.
Þá reyndust ungmennin mun
kvíðnari en jafnaldrar þeirra ef annað
foreldri þeirra var af erlendum upp-
runa. Þau sem áttu báða foreldra af
erlendum uppruna voru helmingi
kvíðnari en hin.
Nýlega var farið á staðinn og spurt
sömu spurninganna aftur og niður-
staðan er síst betri. Nemendur sem
fæddir eru erlendis, eiga foreldra af
erlendum uppruna eða búa á heimili
þar sem íslenska er ekki töluð, standa
verr að vígi í námi en aðrir nemendur
og þar vegur tungumálið þyngst.
Fimmtán ára nemendur af erlend-
um uppruna eru tvöfalt líklegri til að
finnast bekkjarfélagar óvingjarnleg-
ir og þrefalt líklegri til að verða fyrir
einelti. Þeir eru þrefalt líklegri til að
reykja sígarettur og tvöfalt líklegri til
að drekka áfengi. Þeir eru jafnframt
mun ólíklegri til að æfa með íþrótta-
félagi.
Flestum líður vel
„Flestum unglingum af erlendum
uppruna líður vel, en talsverður hóp-
ur upplifir sig óvelkominn í unglinga-
samfélaginu og er mun líklegri til að
leiðast út í áhættuhegðun,“ segir Þór-
oddur Bjarnason. „Það þarf að huga
vel að stöðu þess hóps, sérstaklega
þar sem við sjáum sterka tilhneigingu
til samþjöppunar fólks af erlendum
uppruna, til dæmis í efra Breiðholt-
inu, á Suðurnesjum og á Vestfjörðum.
Reynslan erlendis frá kennir okkur
að það er mikil ástæða til að hafa
áhyggjur af lokuðum samfélögum,
þar sem lífskjör eru lakari, tengsl við
umhverfið takmörkuð og fólk á erfitt
með að bæta stöðu sína. Það hefur
verið bent á það að þótt enskan dugi
ágætlega í daglegum samskiptum á
Íslandi komist innflytjendur ekki alla
leið inn í samfélagið nema að hafa ís-
lenskuna á valdi sínu. Þannig getur
takmörkuð kunnátta í íslensku orðið
hluti fátæktargildru sem erfitt er að
sleppa úr.“ <
HVErjir ViljA
EigiNlEgA flytjA
til ÍSlANdS?
lífsins og almennra mannréttinda-
og mannúðarsjónarmiða. Á Íslandi
vigta síðartöldu sjónarmiðin lítið
sem ekkert.
Og hafa aldrei gert. Það sést á
töflunni að fólk frá Mið- og Suður-
Ameríku er nokkuð fjölmennt á
Norðurlöndunum en fámennt á
Íslandi. Ástæða þess er að þegar
óáran gekk yfir álfuna veittu
Norðurlöndin flóttafólki frá Suður-
Ameríku skjól en Íslendingar ekki.
Þessi samanburður dregur fram
frumstæði íslensks samfélags. Þótt
umbúnaðurinn sé líkur opnum og
margbreytilegum lýðræðisríkjum
í nágrenni okkar þá er Ísland enn
einskonar verstöð, það sem kalla
mætti kompaní-town. Hér eru
ákvarðanir sjaldnast teknar út frá
almennum hagsmunum heldur út
frá þröngum hagsmunum þess sem
á verksmiðjuna sem drottnar yfir
samfélaginu. <
Erlendir ríkisborgar
eru betur menntaðir en
íslenskir ríkisborgarar
en þeir sinna frekar
störfum þar sem ekki er
gerð krafa um menntun
og hafa mun lægri laun.
16 | fréttAtÍMiNN | PÁSKAHELGiN 24. MARS–28. MARS 2016