Fréttatíminn - 24.03.2016, Síða 46
Laugavegur 61 ︲ Kringlan ︲ Smáralind ︲ Sími 552 4910
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
jonogoskar.is
Fallegar
fermingargjafir
Bára í Icecold skartgripalínunni fæst
í tveimur lengdum og fjórum litum,
einnig með litlum demanti.
Frá 6.900 kr.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Fatlað fólk er aldrei sýnt í auglýsingum nema sem einhverskonar hræðslu-áróður eða til vorkunnar sem er fáránlegt því það eru hluti af samfélaginu.
Mig langar að sýna fram á að það sé
auðvelt að búa til kúl auglýsingar
sem eru líka fjölbreyttar,“ segir
Helga Dögg Ólafsdóttir, nemi á loka-
ári í grafískri hönnun.
Hún vinnur að auglýsingaher-
ferð og fyrirlestri sem snýr að því
að benda á fordóma gegn fötlun í
auglýsingabransanum. Helga fékk
Sögu Sig ljósmyndara til að mynda
og fólk með ýmsar skerðingar til
að sitja fyrir. Verkefnið er útskrift-
arverkefni hennar í Listaháskóla
Íslands. Helga Dögg er ekki fötluð
sjálf og var því óviss um hvernig
hún gæti nálgast verkefnið. „Ég
komst í samband við Evu Þórdísi,
sem er kennari í fötlunarfræðum
og sjálf með skerðingu. Við ákváð-
um að ég myndi nálgast verkefnið
af minni upplifun sem ófötluð
kona með mikil forréttindi.“
Helga segir grafíska hönnuði hafa
stóran vettvang sem þeir geti nýtt til
að þróa samfélagsmynd.
„Rétt eins karlmenn þurfa að gefa
eftir af sínum forréttindum til að
koma á jafnrétti þarf ég að reyna að
sjá til þess að fólk með skerðingar fái
þann stað í samfélaginu sem það á
rétt á.“ Auglýsingabransinn fannst
henni góður staður til að byrja:
„Auglýsingar eru sterkt tól til að
skapa þekkingu, og eru of sjaldan
nýttar í þeim tilgangi.“
Sköpum rými fyrir
margbreytileika
Helga Dögg Ólafsdóttir vill að auglýsingar
sýni alla hópa samfélagsins
Helga Dögg segir mikilvægt
að auglýsingar gefi raun-
sæja mynd af samfélaginu.
Mynd | Saga Sig
Mynd|Rut
Helga segist hafa lært mikið af
ferlinu og því að verja tíma með Evu
og Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur
sem taka þátt í verkefninu. Sérstak-
lega tók hún eftir hversu lítið sam-
félagið gerir ráð fyrir þeim. „Sem
dæmi var sjaldnast hjólastólaað-
gengi, hvort við fórum á kaffihús eða
í ljósmyndastúdíó.“
Helga segir hönnuði verða að vera
meðvitaða um að sýna fjölbreytta
mynd af samfélaginu í vinnu sinni.
„Vinnuheiti verkefnisins er „Þrátt
fyrir…“ því það er alltaf talað um
að fólk með skerðingar geri hlutina
„þrátt fyrir“ fötlun.“ Viðhorfið að
fólk með skerðingar sé „takmarkað“
geri því oft erfiðara fyrir en fötlunin.
„Auglýsingar gefa okkur mynd af
samfélaginu sem við viljum búa í og
fólk með skerðingar er hluti af því.
Fatlað fólk þarf ekki að aðlagast um-
hverfinu betur – umhverfið þarf að
aðlagast fötluðu fólki og skapa rými
fyrir margbreytileika.“
Rísandi stjarna í fyrirsætubransanum
Jillian Mercado stelur senunni hjá Beyoncé
„Ég ólst upp í Sanok í Póllandi en það er
lítil borg sem er umlukin háum og fallegum
fjöllum og ám,“ segir Pawel Lewicki. „Þegar
ég var unglingur flutti fjölskylda mín til
Kraká því foreldrar mínir erfðu hús lang-
ömmu og langafa míns og þar býr fjölskylda
mín í dag. Systir mín sér um foreldra mína
sem eru orðin fullorðnir og heyrnarlausir.“
„Ég kom fyrst til Íslands árið 1998 til
að heimsækja frænda minn sem hafði þá
búið hér í þrjátíu ár. Mér fannst landið svo
skemmtilegt og fallegt að ég ákvað að finna
mér vinnu, enda orðinn þreyttur á að fara
úr einni illa launaðri vinnu í aðra í Póllandi.
Það var svo mikið stress. Ári síðar fékk ég
vinnu í Odda og hef verið hér síðan, í 16 ár.
Þetta er góður vinnustaður og mér líður
vel á Íslandi,“ segir Pawel sem er giftur og
fimm ára son. „Það er pottþétt ekki veðrið
sem heillar mig við Ísland, frekar fólkið.
Hér eru allir mjög vinalegir.“
„Frá Póllandi er ekkert eitt sem ég sakna,
bara landsins sjálfs. Við förum þangað á
hverju sumri, það er svo gott að vera í Pól-
landi á sumrin,“ segir Pawel sem hvetur
Íslendinga til að ferðast um Pólland. „Ekki
endilega í borgirnar, þó margar séu fal-
legar, heldur í sveitina, pólska sveitin er svo
falleg. Best er að leigja bíl og keyra bara út
um allt.“ | hh
Fyrirsætan Jillian Mercado er stjarna í auglýsingum fyrir fatalínu Diesel og Nordstrom og nú situr hún
fyrir á myndum af nýjustu fatalínu Beyoncé sem er til sölu er á heimasíðu söngkonunnar. Velgengni fyrir-
sætunnar, sem er með skerðingu vegna sjaldgæfs vöðvarýrnunarsjúkdóms, er vonandi merki um að aug-
lýsingabransinn sé að opna augun fyrir því að neytendur vilji sjá meiri fjölbreytni í fyrirsætuvali.
Mynd af Beyoncé.com
Innflytjandinn
Pólska sveitin er svo falleg
Pawel Lewicki hefur unnið í prentsmiðju Odda í 16 ár og líkar það vel.Mynd | Hari
46 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. Mars–28. Mars 2016