Fréttatíminn - 24.03.2016, Síða 48
Welcome to mývatnssveit i
Relax - Enjoy - Experience
www.jardbodin.is · phone +354 464 4411 · info@jardbodin.is
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Það gerðist með stuttu millibili að við pabbi blóðguðum hvort annað. Hann kýldi mig svo ég fékk smá skurð í vörina.
Nokkrum dögum síðar gerði ég
hið sama, ekki að ég hafi ætlað
að hefna mín,“ segir hlæjandi
Kristín Magnúsdóttir. Hún hefur
sópað að sér titlum í kata og
kumite, undirgreinum karate.
Pabbi hennar, Magnús Eyjólfs-
son, hefur þjálfað hana til sigurs
frá sjö ára aldri.
„Krakkar mega byrja að stunda
karate sex ára og þá fór ég að
suða í henni, hvort hún vildi ekki
kíkja á æfingar,“ segir Magnús og
Kristín tekur undir. „Ég var svo
feimin sem barn og þorði ekki á
æfingar. Ég sagði pabba að um
leið og ég yrði sjö ára kæmi ég á
æfingu.“
Kristín var sett í að æfa með
eldri krökkum og er venjan í ka-
rate að nemendur kalli kennar-
ann Sensei. „Ég kallaði pabba
alltaf Sensei og í mörg ár vissu
hinir nemendurnir ekki að hann
væri pabbi minn.“
Feðginin segja samstarfið
ganga vel þó stundum sé erfitt að
skilja á milli hlutverka. „Ég lærði
snemma að skilja pabbahlutverkið
eftir heima en það er áskorun enn
þann dag í dag,“ segir Magnús.
Kristín sammælst pabba sínum og
segir gremjuna stundum ná sér.
„Hann er alltaf að pikka, pota og
benda á það sem ég er að gera.
Það getur verið pirrandi, komandi
frá pabba, en á sama tíma verð ég
betri í íþróttinni.“
Feðginin verja miklum tíma
saman, þau mæta á æfingar, fara í
keppnisferðir með landsliðinu og
vinna saman sem smiðir. „Í fyrra
fór ég sex keppnisferðir. Þá finnst
mér gott að hafa pabba með því
hann kemur hausnum á mér í lag
fyrir keppni. Einbeiting skiptir
öllu máli í íþróttinni því hún er
ekki síður andleg,“ segir Kristín.
Magnús á erfitt með að leyna
stoltinu og segir dóttur sína
miklum hæfileikum gædd. „Hún
er smiður, afreksíþróttakona og
gríðarlega hæfileikaríkur teikn-
ari, það þurfa allir að sjá verkin
hennar.“
Kýlir pabba
á kjaftinn
Landsliðsþjálfarinn Magnús Eyjólfsson þjálfar
dóttur sína, Kristínu, í karate. Þau slást alveg þar
til blæðir og gera sitt besta til að skilja á milli
hlutverks fjölskyldu og íþróttarinnar, þar sem
pabbi kallast Sensei.
„Hann er alltaf að pikka, pota og benda
á það sem ég er að gera. Það getur verið
pirrandi, komandi frá pabba.“
Mynd | Hari
Fréttatíminn minnist læðunnar
Snoppu, sem á dögunum var
svæfð eftir 17 ára viðburðaríka
ævi. Oft komst Snoppa í hann
krappan á lífsleiðinni. Sem kett-
lingur týndist Snoppa og var
leitað að henni hátt og lágt. Eftir
mikla leit gafst fjölskyldan upp
og ákvað að leita betur daginn
eftir. Um nóttina sótti að frúnni
á heimilinu þorsti. Hún fer að
kæliskápnum að ná sér í eitt-
hvað að drekka. Þegar hún opnar
skápinn stekkur Snoppa í and-
litið á henni. Öðru sinni heyrðist
á baðherbergi heimilisins mikið
skvamp, eins og vatn rynni í bað-
herberginu. Þegar húsfreyja at-
hugaði málið fann hún Snoppu
ofan í klósettskálinni þar sem
hún barðist fyrir lífi sínu.
Snoppa dró fram það ljúfasta
í eigendum sínum og verður
hennar sárt saknað. | sgþ
Líf mitt
sem köttur
Úr kæliskáp
í klósettskál
Snoppa átti viðburðaríka
og langa kattarævi.
48 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. Mars–28. Mars 2016