Fréttatíminn - 24.03.2016, Blaðsíða 56
Hawaii er ekki bara draumaheimur úr bíómynd-
unum; það er líka hægt að fara þangað.
Línan milli fjörs og feigðar
getur verið örfín.
Steggur í tjullpilsi eða gæs í glimm-
ergalla er algeng sjón í miðbænum
yfir sumarmánuðina. Það getur ver-
ið ótrúlega gaman að koma saman
og gera sér glaðan dag og sprella dá-
lítið með manneskjunni sem gengur
senn í hnappelduna. En aðgát skal
höfð í nærveru sálar og best er vit-
anlega að ganga hægt um gleðinnar
dyr. Hér eru nokkur atriði sem vert
er að hafa bak við eyrað þegar gæs-
un eða steggjun er í uppsiglingu.
■ Passið ykkur að skipuleggja ykk-
ur vel þannig að dagurinn rakni
ekki upp í einhverja markleysu.
Hópurinn verður að vera nokk-
uð sammála um hvað er gert
og það er gott að nota til dæmis
leynihópa á Facebook til þess að
henda hugmyndum á milli.
■ Ef gæsunin/steggjunin er tekin
upp á myndband skal passa að
sá sem klippir það sé meðvit-
aður um að löng steggja/gæsam-
yndbönd eru ekki skemmtileg.
Það er ekkert gaman við það að
horfa á 20 mínútur af einkahúm-
or vinahópa og slíkt getur verið
töluverður stuðbani í brúðkaup-
um. Hafið myndbandið 5 mín-
útur í mesta lagi og hafið snöggar
klippur af því markverðasta sem
gerðist yfir daginn.
■ Ekki láta gæs/stegg gera neitt
óviðeigandi eða eitthvað sem
henni/honum finnst mjög óþægi-
legt. Hlustið á viðkomandi ef
hann biður um vægð, dagurinn á
að snúast um gleði en ekki vand-
ræðalegheit.
■ Hlutir geta kostað nokkuð og
það er ekki víst að allir í hópnum
séu jafn tilbúnir eða færir um að
reiða fram háar upphæðir.
■ Ef halda á ódýra gæsun/steggjun
getur verið sniðugt að gera sem
mest úti í náttúrunni, fara í laut-
arferð, gönguferð, folf, strand-
blak eða annað sem ekkert kost-
ar. Nesti þarf ekki að vera dýrt og
svo er hægt að skipuleggja ýmsa
leiki sem allir hafa gaman af.
■ Passið ykkur að gera ekki lítið
úr öðrum – til dæmis er afar
ósmekklegt að nota Gay pride
sem einhvern grundvöll til að
gera lítið úr stegg eða gæs. Það
er um að gera að fara á Gay pride
til þess að sýna stuðning og hafa
gaman en ekki klæða stegginn í
g-streng og henda honum upp á
pall til þess að hlæja að honum á
kostnað göngunnar, það er bara
ekki smart.
■ Ef stutt er í brúðkaupið þegar
gæsun/steggjun á sér stað, pass-
ið ykkur á því að útjaska ekki
steggnum eða gæsinni þannig að
hætta sé á því að hann/hún liggi
kylliflöt daginn eftir. Það er alveg
hægt að gera ýmislegt skemmti-
legt sem ekki eyðileggur heilan
dag sem annars hefði mögulega
átt að fara í undirbúning.
Þið hafið heiminn í hendi ykkar
Brúðkaupsferðin á að snúast
um samveru brúðhjónanna
og skiptir kannski ekki höfuð-
máli hvert er farið. Þið gætuð
farið í tjaldútilegu og haft það
alveg eins gott og í lúxussvítu
í erlendri stórborg. En það er
þó ekki úr vegi að nýta brúð-
kaupsferðina og fara á framandi
slóðir, ef þið ætlið á annað borð
að fara út fyrir landsteinana.
Internetið geymir ógrynni upp-
lýsinga um alla heimsins staði
og það eru engin takmörk fyrir
því sem hægt er að gera sem
fyrir fáum árum var óaðgengi-
legt. Með tilkomu vefsíðna eins
og dohop.is og lastminute.com
er hægt að bóka ferðir með
stuttum fyrirvara hvert sem er.
Því ekki að fara til Bali, Hawaii
eða Jamaíka? Eða til Perú og
kanna Machu Picchu? Kannski
„road trip“ þvert yfir Bandarík-
in? Möguleikarnir eru óþrjót-
andi og ef ævintýraþráin er
sterk hafið þið heiminn í hendi
ykkar.
Machu Picchu er óröskuð og einstaklega vel
varðveitt Inkaborg í Perú.
Það sem má
og ekki má
4 | fréttatíminn | páskaHelgin 24. mars–28. mars 2016
Brúðkaup