Læknablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 9
LÆKNAblaðið 2016/102 537
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Upp úr miðri 19. öld var heilbrigðisþjónusta í okkar fátæka
og afskekkta landi með nokkuð öðrum brag en nú þekkist.
Læknaskortur var mikill. Þrátt fyrir að fyrsti íslenski landlækn-
irinn, Bjarni Pálsson, skipaður 1760, hefði með miklum dugnaði
menntað íslenska lækna samhliða öðrum störfum var ástandið
tæpri öld síðar þannig að enginn stundaði læknanám á Íslandi
og fáir Íslendingar lögðu land undir fót til að nema læknisfræði
og enn færri sneru heim með gráðu í farteskinu. Þannig segir Vil-
mundur Jónsson í formála Læknatalsins hins fyrsta að þrátt fyrir
að „stjórnvöldin ívilnuðu að ýmsu leyti Íslendingum er leggja
vildu stund á læknanám ytra, varð eftirtekjan ekki meiri en svo
að einir 12 luku læknaprófi í Kaupmannahöfn fyrstu sex áratugi
aldarinnar, og af þeim ílentust fjórir ytra“.1 Nýendurreistu Alþingi
var ljóst að ekki yrði gerð bragarbót á þessum mikla læknaskorti
nema með endurreisn læknakennslu innanlands. Jón Thorstensen
þáverandi landlæknir sýndi innlendri læknakennslu lítinn áhuga.
Það urðu þó straumhvörf þegar Jón Hjaltalín (1807-1882) tók við
embætti landlæknis árið 1855. Hann beitti sér fyrir því að Alþingi
samþykkti bænaskrá til konungs um stofnun læknaskóla á Íslandi.
Þegar þeirri beiðni var hafnað gafst Jón Hjaltalín ekki upp og sótti
fast að taka upp eldri sið og fá leyfi til þess að landlæknir mætti
mennta unga sveina til læknaprófs. Árið 1862 fékkst leyfi konungs
og hófst þá uppbygging læknanáms með fjölbreyttu og metnað-
arfullu námi, þar sem kennd voru meðal annars líkskurðarfræði
(anatomie), lífseðlisfræði, sjúkdómafræði, handlæknisfræði, yfir-
setukvennafræði, chemie, heilbrigðisfræði, meðalaverkunarfræði
og fleiri greinar. Þetta metnaðarfulla starf Jóns Hjaltalíns sýndi
fram á getu Íslendinga til að mennta lækna og á næsta hálfa öðr-
um áratug lögðu 13 ungir menn stund á nám og útskrifuðust sem
kandídatar. Með þessu varð gerbreyting á stöðu mála miðað við
hina fyrstu 6 áratugi aldarinnar.1
Í ljósi þessa brautryðjendastarfs Jóns landlæknis Hjaltalín
var konungi ekki lengur stætt á að neita kröfum Íslendinga um
stofnun Læknaskóla. Árið 1876 var Læknaskóli Reykjavíkur því
stofnaður með konungsbréfi. Nú eru því 140 ár liðin frá stofnun
læknaskóla á Íslandi og eru fáar stofnanir sem hafa blómstrað
jafnlengi í okkar samfélagi og gefið af sér jafn ríkulegan ávöxt. Í
upphafi voru ráðnir þrír kennarar. Auk Jóns, sem veitti skólanum
forstöðu, voru ráðnir Jónas Þ. Jónassen (1840-1910) og Tómas Hall-
grímsson (1842-1893). Fyrstu árin var skólinn rekinn í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur við enda Aðalstrætis en flutti síðar í Þingholtin (í hús
er nú kallast Farsóttarhúsið).2 Metnaður var mikill en stundum
var erfitt að fá þann efnivið er til þurfti. Þannig var ávallt skortur
á líkum til líkskurðarkennslu og er fræg sagan af Þórði malakoff
Árnasyni, þekktum brennivínsberserk í borginni sem seldi lík sitt
Læknaskólanum með fyrirframgreiðslu og tórði svo árum saman
læknanemum og kennurum skólans til nokkurs ama. Er Þórður
malakoff loks dó árið 1897 var umtalað að læknanemar hafi tekið
svo „sleitilega og frómlega“ til verks að dómkirkjuprestur hafi flutt
líkræðu yfir nánast tómri kistunni.3 Á þeim 35 árum sem Lækna-
skólinn starfaði jókst kennarafjöldinn úr þremur í 8 og alls útskrif-
uðust 62 kandídatar frá skólanum.2 Læknaskóli Reykjavíkur var
síðan ein grunnstoð í stofnun Háskóla Íslands árið 1911 og hófst þá
nýr kafli í læknanámi á Íslandi.
Á þeim 140 árum sem liðin eru frá upphafi læknanáms á Íslandi
hefur mikið breyst. Á þessu afmælisári læknanáms er að hefjast
heildarendurskoðun á læknanámi til að bregðast við auknum kröf-
um um gæði náms og til að undirbúa nýja kynslóð lækna fyrir þær
fjölmörgu áskoranir sem við okkur blasa. Í nýlegri sjálfmatsskýrslu
deildarinnar voru greind þau atriði í náminu sem bæta má en jafn-
framt komu í ljós atriði sem læknadeild getur verið stolt af. Vel yfir
90% nemenda eru í heildina ánægðir með nám sitt. Íslenskir læknar
eiga greiða leið í sérnám til bestu sjúkrahúsa austan hafs og vestan.
Nemar okkar taka bandarískt stöðupróf í lok náms (Comprehensi-
ve Clinical Science Examination - CCSE) og ná frábærum árangri,
skora að meðaltali 80-82 stig en meðaltal bandarískra læknanema
á lokaári síns náms er 75 stig. Fjölbreytni kennarahópsins er mikil,
læknar og aðrir vísindamenn deildarinnar hafa menntað sig við
bestu stofnanir beggja vegna Atlantsála. Getur því deildin ver-
ið gífurlega stolt af sínum nemum og kennurum. Endurskoðun
á læknanámi mun leitast við að tengja enn betur saman grunn-
nám og klínískt nám, auka verulega á fjölbreytni kennsluaðferða,
auka möguleika á rannsóknarnámi, svo sem samtengdu lækna- og
doktorsnámi. Einnig verður hugað að því að mennta enn frekar
þá lækna sem samfélagið þarfnast, svo sem með aukinni áherslu á
heilsugæslu, persónumiðaða læknisfræði (personalized eða precision
medicine) og heilsu aldraða.
Í nútímasamfélagi gegna háskólar lykilhlutverki við menntun,
vísindi og nýsköpun. Um leið eru þeir undirstaða framfara. Í sam-
félaginu er rík og sívaxandi krafa um öfluga háskóla. Læknadeild
Háskóla Íslands tekur þetta fjölþætta hlutverk sitt mjög alvar-
lega. Á þessum tímamótum í læknanámi á Íslandi væri engin
betri afmælisgjöf en að stjórnvöld vöknuðu úr dvala og svöruðu
ákalli háskólayfirvalda og samfélags um stóraukin fjárframlög til
að tryggja komandi kynslóðum gæðamenntun sem mun tryggja
heilsu, hamingju og hagsæld til framtíðar.
16. desember næstkomandi verður þessara tímamóta minnst
með málþingi og móttöku í Háskóla Íslands og eru læknar, starfs-
menn deildarinnar og aðrir velunnarar hvattir til að mæta.
Heimildir
1. Jónsson V. Læknar á Íslandi (Inngangur) (önnur útgáfa). Læknafélag Íslands/
Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík 1952.
2. Ásmundsson P. Síðustu kennarar Læknaskólans í Reykjavík. Læknablaðið 2015; 101: 281-2.
3. Friðriksson G. Þórður malakoff. Lesbók Morgunblaðsins 1992 (11. apríl) 15. tölublað.
Læknaskóli í 140 ár
Magnús Karl Magnússon
prófessor og forseti
læknadeildar Háskóla Íslands
magnuskm@hi.is
Medical education in Iceland, 140th anniversary
Magnus K. Magnusson, MD.
Professor and Dean. Faculty of Medicine, University of Iceland
https://doi.org/10.17992/lbl.2016.12.109