Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.2016, Side 18

Læknablaðið - 01.12.2016, Side 18
546 LÆKNAblaðið 2016/102 replacement). Aðgerðir á ósæðarboga voru yfirleitt gerðar í blóð- rásarstöðvun þar sem notuð var djúp (14,1-20°C) eða miðlungsdjúp (20,1-28°C) kæling og blóði að auki veitt sérstaklega til heilaæða (selective cerebral perfusion) til að varðveita heilastarfsemi.16,17 Tölfræði Gagnagrunnur var útbúinn í forritinu Microsoft Excel® (Microsoft, Redmond WA) og tölfræðiúrvinnsla gerð í forritinu RStudio®. Við samanburð hópa voru notuð t-próf og Fisher ś exact próf en log- -rank próf við samanburð á lifun sjúklinga. Fjölþátta aðhvarfs- greining var notuð til að meta lifun karla og kvenna óháð aldri, en það var gert með lifunarlíkani sem innihélt bæði kyn og aldur. Til að meta árlegan fjölda aðgerða var gerð Poisson-aðhvarfsgreining og reiknað gagnlíkindahlutfall (Odds ratio, OR) með 95% öryggis- bili (ÖB). Marktæki miðast við tvíhliða p-gildi <0,05. Heildarlifun var reiknuð með aðferð Kaplan-Meier. Dánardagur var skráður samkvæmt upplýsingum úr Sögukerfi Landspítala sem tengt er Dánarmeinaskrá Embættis landlæknis. Eftirlit miðaðist við 1. maí 2015 og var meðaleftirfylgdartími 5,7 ár (miðgildi 6,0 ár, bil: 0,01 – 15,0). ingu. Alls gengust 105 sjúklingar undir aðgerð við ósæðargúlp í rishluta ósæðar á tímabilinu og mynduðu þeir rannsóknarþýðið. Sjúklingum sem höfðu áverka á ósæð eða bráða ósæðarflysjun (acute aortic dissection) var sleppt en árangur þeirra aðgerða á Ís- landi hefur áður verið birtur í Læknablaðinu.12 Fyrir hvern sjúkling voru skráðar í rafrænan gagnagrunn rúmlega 100 breytur úr sjúkraskrám. Skráðir voru áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma, saga um útæðasjúkdóm og æðagúlpa, hvort um tvíblöðku-ósæðarloku var að ræða, ósæðarlokuþrengsl eða ósæðarlokuleka. Einnig voru skráðir bandvefssjúkdómar eins og Marfans eða Ehler Danlos-heilkenni og fjölskyldusaga um ósæðargúlp. EuroSCORE II var reiknað fyrir alla sjúklinga, en það er áhættulíkan til að meta dánarlíkur innan 30 daga eftir hjarta- skurðaðgerð.15 Einnig voru skráð einkenni sem leiddu til grein- ingar og mesta þvermál ósæðargúlps í cm. Upplýsingar um stærð fengust úr sjúkraskrám og byggðu á mælingum á tölvusneið- myndum eða hjartaómun. Í vafatilfellum voru myndrannsóknir skoðaðar að nýju. Úr aðgerðarlýsingum var skráð hvers konar aðgerð var gerð hverju sinni. Tími á hjarta- og lungnavél og æðatengingar voru skráðar, einnig tímalengd blóðrásarstöðvunar og hvort sérstakri heilavernd (cerebral protection) var beitt. Loks var skráð blæðing í brjóstholskera á fyrsta sólarhring eftir aðgerð ásamt notkun blóð- hluta í og eftir aðgerð. Fylgikvillar voru flokkaðir í alvarlega og minniháttar. Út- listun á skráðum fylgikvillum má sjá í töflu III. Upplýsingar um fylgikvilla miðuðust við skráningu í sjúkraskrám. Að auki voru blóðrannsóknir skoðaðar, einkum til að meta bráðan nýrnaskaða og hjartadrep. Bráður nýrnaskaði miðaðist við ≥50% hækkun á S-kreatíníni frá grunngildi sjúklings innan við viku frá aðgerð. Þau tilfelli þar sem nýrnaskaði var það alvarlegur að þörf var á skilunarmeðferð voru flokkuð með alvarlegum fylgikvillum. Hjartadrep í og eftir aðgerð (perioperative myocardial infarction) mið- aðist CKMB við hæstu mælingu eftir aðgerð >70 μg/L. Skurðaðgerðir Allar aðgerðirnar voru framkvæmdar í gegnum bringubeinsskurð með aðstoð hjarta- og lungnavélar. Slagæðatengingu fyrir hjarta- og lungnavél var komið fyrir í rishluta ósæðar, holhandar- og við- beinsslagæð eða náraslagæð. Aðgerðartækni fór eftir staðsetningu gúlps á ósæðinni og ástandi ósæðarloku (leki eða þrengsl) og var alls beitt 6 mismunandi tegundum aðgerða. Ef ósæðarlokan var heil og gúlpurinn náði ekki niður í ósæðarrót var einungis skipt um ósæðina ofan við lokuplanið. Í einu tilviki var í sömu aðgerð fyrst skipt um loku og síðan ósæð ofan við lokuplanið. Ef gúlpur- inn náði niður í ósæðarrót og skipta þurfti um ósæðarloku voru ýmist notaðar lífrænar eða ólífrænar lokur með samsettum æða- græðlingi (graft). Ef talið var mögulegt að gera við lokuna var það gert með lokusparandi aðgerð (David-aðgerð). Loks voru aðgerðir þar sem rishluta ósæðar var ekki skipt út, heldur hún sveipuð með ytra stoðneti (wrapping). Fjartenging (distal anastomosis) var oftast gerð á rishluta ósæðar. Í tilvikum þar sem ósæðarbogi var einnig víkkaður var gert við hann með viðgerð á neðri ósæðarboga (hem- iarch replacement) og í einu tilviki á öllum ósæðarboga (total arch R A N N S Ó K N Tafla I. Sjúklingatengdir þættir. Fjöldi sjúklinga og hlutfall (%) eða meðaltal með staðalfráviki. N=105. Fjöldi % Aldur 60,7 ± 13,9 Karlar 73 69,5 Tvíblöðku-ósæðarloka (n=102)* 52 51 Ósæðarlokuþrengsl 33 31,4 Ósæðarlokuleki 46 43,8 Marfans-heilkenni 5 4,8 Háþrýstingur 68 64,8 Sykursýki af gerð 2 3 2,9 Blóðfituröskun 31 29,5 Langvinnur nýrnasjúkdómur 8 7,6 Kransæðasjúkdómur 8 7,6 Áður gerð kransæðavíkkun 4 3,8 Áður gengist undir kransæðahjáveituaðgerð 1 0,95 Útæðasjúkdómur 4 3,8 Saga um ósæðargúlp í kviðarholi 2 1,9 Áður heilablóðfall 8 7,6 Langvinn lungnateppa 6 5,7 Aldrei reykt (n=101)** 33 32,7 Saga um reykingar (n=101)** 68 67,3 Fjölskyldusaga um ósæðargúlp í brjóst- eða kviðarholshluta ósæðar 10 9,5 Líkamsþyngdarstuðull (kg/m2) 28,1 ± 5 EuroSCORE II 4,5 ± 5,7 Upplýsingar um tvíblöðku-ósæðarloku vantaði fyrir þrjá sjúklinga* og upplýsingar um reykingar vantaði hjá fjórum sjúklingum**.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.