Læknablaðið - 01.12.2016, Side 34
562 LÆKNAblaðið 2016/102
„Hugrún er geðfræðslufélag nema í
heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands
og er byggt á sömu hugmyndafræði
og kynfræðslufélagið Ástráður sem
læknanemar hafa starfrækt um nokkurra
ára skeið,“ segir Steinn Halldórsson
læknanemi á 6. ári og formaður
Hugrúnar.
Steinn segir að fræðslan sé ætluð fram-
haldsskólanemum og fari fram með þeim
hætti að tveir fulltrúar Hugrúnar fara í
framhaldsskólana með fyrirlestur og um-
ræður um efnið í kjölfarið. „Við leggjum
aðaláhersluna á þennan hóp til að byrja
með en í stefnuyfirlýsingu Hugrúnar segir
að markmið félagsins sé að fræða ungt
fólk á Íslandi um geðsjúkdóma og geðheil-
brigði. Markmiðið er í rauninni tvíþætt;
að draga úr fordómum gagnvart geðsjúk-
dómum og geðfötluðum og að fræða um
geðrækt því margt ungt fólk sem glímir
við geðræn vandamál áttar sig ekki á því
og leitar sér því ekki viðeigandi aðstoðar.“
Fyrirlestrar og umræður í framhaldskólum
Steinn segir að í vetur fari fulltrúar Hug-
rúnar og fræði og ræði við nemendur
fyrsta bekkjar framhaldsskólanna. „Við
reynum að fara í alla framhaldsskólana
á Stór-Reykjavíkursvæðinu og einnig þá
sem eru í sveitarfélögunum í kring, eins
og Selfoss og Akranes. Við erum nýbúin
að fara austur á Egilsstaði og erum tilbúin
að fara hvert á land sem er ef skólarnir
taka þátt í kostnaði við ferðirnar. Fyr-
irkomulag heimsóknanna er með þeim
hætti að fyrirlesararnir fara í gegnum
ákveðið efni, ákveðna fræðslu en mik-
ilvægasti þátturinn felst í umræðunum
sem fylgja í kjölfarið og þar kemur mjög
skýrt í ljós hvað þörfin fyrir þessa fræðslu
er mikil. Krakkarnir spyrja mikið um
einkenni kvíða og þunglyndis og við
reynum að svara spurningum eins og: eru
allir sem finna fyrir depurð þunglyndir?
Eða eru allir sem eru stressaðir fyrir próf
með kvíðasjúkdóm? Tilgangurinn er að fá
þau til að velta fyrir sér að andleg líðan
getur verið góð eða slæm eftir atvikum
og stundum sjúkleg og stundum ekki, til
dæmis geta verið eðlilegar ástæður fyrir
tímabundinni depurð en það er ekki eðli-
legt að vera dapur langtímum saman og
finnast lífið alltaf ömurlegt. Megináhersla
okkar er á kvíða og þunglyndi en við kom-
um einnig inn á geðhvarfasýki, átröskun
og fíknisjúkdóma en þekking krakkanna á
þessum sjúkdómum er skiljanlega fremur
takmörkuð.“
Steinn segir reynsluna í haust af fyr-
irlestrunum og undirtektum krakkanna
vera mjög góða. „Það hefur eiginlega kom-
ið okkur á óvart hversu tilbúnir krakkarn-
ir eru til að tjá sig um persónuleg mál og
Ótvíræð þörf
fyrir fræðslu
Segir Steinn Halldórsson
formaður geðfræðslu-
félagsins Hugrúnar
„Teljum það ótvíræðan árangur
ef einhver áttar sig á því að vandi
hans er viðráðanlegur og hægt
að sækja sér hjálp,“ segir Steinn
Halldórsson formaður Hugrúnar.
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson