Læknablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 39
10 ára fresti. Þeir sem greinast með kirtilæxli verða í reglu-
bundnu eftirliti (kirtilæxlaskrá) samkvæmt alþjóðlegum,
gagnreyndum leiðbeiningum.
Augljóst er að það er ódýrara að gera eina FIT-rannsókn
en eina ristilspeglun. Leit að blóði í hægðum með FIT gæti
þó virst dýrari kostur þegar allt er reiknað með. Að minnsta
kosti hefur ekki verið sýnt fram á að leit að blóði í hægðum
sé ódýrari aðferð en það að fara beint í ristilspeglun til þess
að skima eftir sepum og krabbameini í ristli og endaþarmi.
Mikilvægt er að læknar taki þátt í ákvörðunum um
læknisfræðileg málefni og gefi stjórnmálamönnum ráð til
þess að þeir geti tekið réttar ákvarðanir.
Leit að blóði í hægðum er dýr aðferð sem mun skapa
mikið óöryggi hjá þátttakendum. Ristilspeglunarskimun er
forvarnaraðgerð og árangursríkari skimunaraðferð sem gef-
ur skýr svör og veitir þátttakendum meira öryggi.
Ristilspeglun er sú skimunaraðferð sem beitt hefur verið
í áratugi og hefð er fyrir á Íslandi. Ólíklegt er að sú staða
hennar muni breytast þó að farið verði af stað með skimun
með leit að blóði í hægðum.
Ristilspeglunarskimun mun geta leitt til lækkunar á
nýgengi og fækkað verulega krabbameinum í ristli og
endaþarmi hjá öldruðu fólki. Þjóðin eldist og því gæti orðið
verulegur fjárhagslegur ávinningur af ristilspeglunarskim-
un í framtíðinni. (Sjá ítarlegri grein á nolta.is.)
LÆKNAblaðið 2016/102 567
Frá Öldungadeild
Næsti fundur Öldungadeildar verður haldinn miðvikudaginn
7. desember, en þá flytur Ari Jóhannesson læknir erindi sitt:
„Svo mæla seglin hvítu“ - Hugleiðingar um lækningar og
skáldskap.
Borið hefur á að læknar skipti um netföng, t.d. þegar þeir
komast á eftirlaun. Þeim berast þá ekki tilkynningar frá LÍ
eða Öldungadeildinni. Vinsamlega sendið virk netföng ykkar
til mbein@simnet.is eða komið þeim til skrifstofu LÍ merkt
Öldungadeild.
Fundir Öldungadeildar eru haldnir fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar kl. 16, en á undan fundi um kl. 15.30 er boðið upp á
kaffi og vínarbrauð. Þá er skemmtilegt að hitta gamla kollega
og rifja upp gömlu góðu dagana.