Læknablaðið - 01.12.2016, Side 45
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
tíma, hópfundi, hugleiðingar, öndunaræf-
ingar, fræðslu og heimavinnu. Þetta voru
mislöng inngrip sem stóðu allt frá einum
degi upp í 9 mánaða prógrömm.
Sam Colin sagði frá könnun sinni á
literatúrnum á þeim rannsóknum er hann
yfirfór og lúta að kulnun í starfi hjá lækn-
um og leiðum til að bæta þann vanda. Þær
úrlausnir sem helst skiluðu árangri var
núvitundarþjálfun (mindfulness), streituúr-
vinnsla, samskiptaþjálfun, umræðuhópar,
bætt vinnuaðstaða og breytingar á vakta-
fyrirkomulagi. Með þessum mismunandi
leiðum tókst að draga úr kulnun um
4-14%.
Kanadamenn hafa rannsakað hvernig
draga má úr kulnun lækna og minnka
starfsmannaveltuna með því að setja í
gang prógrömm á spítölum með það að
markmiði að bæta líðan og heilsu lækna.
Þar er mest áhersla lögð á að bæta sam-
skiptin, bjóða upp á hollan góðan mat
og aðstöðu til líkamsræktar. Einfaldar
aðgerðir sem þessar skila sér strax í betri
líðan og heilsu og læknarnir eru glaðari
og ánægðari.
Samkenndarþjálfun yfirlækna hefur
líka verið rannsökuð og skilar strax auk-
inni ánægju og líðan lækna á gólfinu.
Ein athyglisverð lausn sem var rann-
sökuð voru afleysingar fyrir lækna til
að auka sveigjanleika í starfi þannig að
þeir gætu tekið að sér önnur störf, svo
sem kennslu, nefndarvinnu, rannsóknir
og álitsgjafir. Fengju þeir greitt fyrir þau
án þess að bæta þeim ofan á fasta starfið.
Þetta jók starfsánægju og bætti jafnvægi
milli vinnu og einkalífs.
Eitt erindið fjallaði um viðbótarnám
læknanema í Lifestyle medicine tengt nær-
ingu, hreyfingu, þyngd og fleiru til að
hafa jákvæð áhrif á þeirra eigin heilsu og
lífsánægju.
Aukinn áhugi er á að bjóða læknum
með kulnun ráðgjöf og fræðslu. Rann-
sóknir sýna að slíkt hefur dregið úr
streitu, bætt starfsánægju, aukið afköst,
jafnvægi í einkalífi og tengsl við vini og
ættingja.
Rannsóknir staðfesta að aukið skrifræði
og skráningarskylda hjá læknum eykur
spennu og vanlíðan og leiðir til kulnunar.
Á móti hefur dregið úr þeim tíma sem
læknarnir eiga með sjúklingum og nú
er víða svo komið að tveir þriðju hlutar
vinnutímans fara í skriffinnsku. Úr þessu
má bæta með nánu samstarfi við hjúkr-
unarfræðinga sem létta þessa byrði.
Rannsóknir staðfesta að öll skapandi
vinna: skriftir, tónlist og myndræn tján-
ing, bætir starfsánægju.
Ein er sú lausn sem við félagarnir telj-
um að geti gagnast okkur hér á hjaranum:
Að setja á fót litla stuðningshópa. Á Mayo
Clinic2 var gerð 6 mánaða tilraun með
reglulega fundi lítils hóps lækna þar sem
rætt var um ýmis mál tengd kulnun og
starfsánægju, síðan var farið út að borða
eftir fundina. Þetta hafði klárlega jákvæð
áhrif á líðan læknanna.
Þá var rætt um svipaða úrlausn og
margir heimilislæknar og geðlæknar
þekkja úr sínu framhaldsnámi, svokallaðir
Balint-hópar (balint.co.uk). Í svona hópa-
vinnu eru ræddar og skoðaðar í kjölinn
ýmsar tilfinningar sem kvikna í samskipt-
um lækna við sjúklinga.
Í þessari grein höfum við reynt að vekja
læknasamfélagið til umhugsunar um
þá vá sem við stöndum frammi fyrir og
hvernig má afstýra henni. Ef við grípum
ekki strax í taumana er veruleg hætta á
að við fljótum sofandi að feigðarósi, sem
er versti kosturinn og örugglega ekki sá
sem við ætluðum okkur þegar við ung og
lífsglöð lögðum í þá vegferð að starfa sem
læknar.
Slóðin á fylgirit með ágripum erinda frá þinginu er:
https://download.ama-assn.org/resources/doc/physician-health/
16-0180-abstracts-booklet.pdf?cb=14753266803tretrive=yes
1. Forbes MP. Systematic review of mental health wellbeing programs
for medical students and physicians. Royal Melbourne Hospital.
2. West CP. Randomized controlled trial evaluating the effect of
COMPASS (Collegues Meeting to Promote and Sustain Satisfaction),
small group session on physician well-being, meaning and satis-
faction.
LÆKNAblaðið 2016/102 573
Óskað er eftir ágripum um rannsóknir og verkefni sem æskilegt
er að tengist þema dagsins.
Ágrip geta fjallað um nýsköpun í bráðaþjónustu innan sem utan sjúkrahúsa,
umhverfi og öryggi sjúklinga eða verkferla.
Sérstaklega er óskað eftir kynningum um rannsóknarniðurstöður
og verða slík ágrip ritrýnd og birt í fylgiriti Læknablaðsins.
Nánari upplýsingar veita:
Dagný Halla Tómasdóttir dagnyht@landspitali.is s. 861 6269
Þórdís K. Þorsteinsdóttir thordith@landspitali.is s. 543 8218
Upplýsingar um uppsetningu og skil ágripa á:
bradadagurinn.lsh.is
BRÁÐA
DAGURINN
Nýsköpun í bráðaþjónustu
3. mars 2017 - Hótel Natura
Skilafrestur ágripa vegna Bráðadagsins 2017 er 20. janúar 2017
við fyrir þig Mynd
: Ó
m
ar
K
ris
tm
an
ns
so
n