Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.2016, Page 31

Læknablaðið - 01.03.2016, Page 31
LÆKNAblaðið 2016/102 139 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R og munu nokkrir sérfræðingar á Barna- spítalanum sækja námskeiðið. Ætlunin er að halda fleiri slík námskeið á næstu misserum sem er mikilvægt því góð hand- leiðsla er dýrmætur þáttur í sérnáminu. Í þessu sambandi vil ég benda á að gott sér- nám og vel skipulagt kennsluprógramm er ekki bara mikilvægt fyrir námslæknana heldur eykur það öryggi og gæði þjónust- unnar við sjúklinga spítalans.“ Samkvæmt nýju reglugerðinni um sérnám í læknisfræði er gerð krafa um 60 mánaða sérnámstíma og því þurfa sérnámslæknar Barnaspítalans að sækja seinni hluta sérnámsins erlendis. Þórður segir flesta fara í sérnám til Svíþjóðar og þá einkum til Stokkhólms og Lundar. „Af öðrum Norðurlöndum hafa Noregur og Danmörk orðið fyrir valinu. Á undanförn- um árum hafa nokkrir farið í sérnám til Bandaríkjanna. Þeir sem fara til Norður- landanna hafa fengið hluta af námstím- anum hér heima metinn, en í Bandaríkj- unum er það ekki raunin og þurfa þau að byrja á fyrsta ári eins og þau sem nýlokið hafa læknaprófi.“ Aðspurður um hlutfall karla og kvenna í sérnáminu segir Þórður það endurspegla hlutföllin í almenna læknanáminu. „Það eru heldur fleiri konur en karlar sem sækja í sérnám í barnalækningum. Ég held að hlutfallið sé svipað og það er orðið meðal ungra lækna í dag, þar sem konur eru í meirihluta.“ Staða barnalækninga mjög sterk Þórður segir barnalækningar vera mjög fjölbreytt og gefandi starf. „Við önnumst börn frá fæðingu til 18 ára aldurs og vandamálin eru margvísleg. Samskipti við foreldra eru að sjálfsögðu mikilvægur þáttur starfsins. Því er mikilvægt að barnalæknar sýni ávallt nærgætni í starfi, auk þess að hafa aðra eiginleika góðs læknis. Eins og aðrir læknar upplifum við barnalæknar oft sorg í okkar starfi, en jafnframt mikla gleði þegar vel gengur. Staða barnalækninga er mjög sterk í dag. Við höfum á allra síðustu árum fengið heim öfluga unga sérfræðinga í hinum ýmsu undirsérgreinum, þannig að það er ekki mannekla í stéttinni. Einnig eru margir í sérnámi í greininni sem ég vona að skili sér flestir heim aftur. Rétt er að taka fram að á Barnaspítala Hringsins höfum við gott húsnæði og búum við mjög góðan tækjakost – andstætt mörgum öðrum deildum. Framlag Kvenfélagsins Hringsins verður seint fullþakkað í þessu sambandi,“ segir Þórður Þórkelsson kennslustjóri sérnáms í barnalækningum að lokum. „Gott sérnám og vel skipulagt kennsluprógramm er ekki bara mikilvægt fyrir námslæknana heldur eykur það einnig öryggi og gæði þjónustunnar við sjúklinga spítalans,“ segir Þórður Þórkelsson kennslustjóri sérnáms í barnalækningum.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.