Læknablaðið - 01.03.2016, Síða 43
LÆKNAblaðið 2016/102 151
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
CP REYKJAVÍK er frísklegt og skapandi þjónustu-
fyrirtæki sem skipuleggur viðburði, ferðir og ráðstefnur
fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini.
Hafðu samband og við gerum þér tilboð
í ógleymanlega upplifun
Suðurlandsbraut 6 - 108 Reykjavík - 510 3900 - www.cpreykjavik.is
VIÐ GERUM ATVINNULÍFIÐ
VIÐBURÐARÍKARA
hans. Það stríðir gegn eðli læknisstarfs-
ins og læknaeiðnum, að virða mannslíf,
mannúð og mannhelgi.10 Sjálfsvíg er alltaf
harmleikur. Maðurinn er aldrei eyland.
Sjálfsvíg er mikið áfall og sorg fyrir
aðstandendur sem upplifa það oft sem
höfnun og veldur þeim miklum sárindum
og jafnvel reiði.11 Skipulagt sjálfsvíg leiðir
einnig til þrautagöngu fyrir aðstandendur.
Að sjúklingurinn eigi skammt eftir ólifað
veldur sorg aðstandenda, það er óhjá-
kvæmilegt. Líknardráp veldur aðstand-
endum hins vegar enn meiri þjáningum
en ella. Aðstandendur eru fyrst og fremst
þolendur sem syrgjendur. Sjúklingurinn
hefur því siðferðilega skyldu til að taka
ákvörðun um sjálfsvíg sitt í góðri sátt við
ástvini sína. Sjálfsvíg upp á sitt einsdæmi
er eigingjarn verknaður. Þar sem líknar-
dráp er í eðli sínu sjálfsvíg, getur aðstand-
andi heilabilaðs eða meðvitundarlauss
sjúklings ekki óskað eftir líknardrápi.
Líknardráp slíkra einstaklinga væru í eðli
sínu líknarmorð. Þar sem beint líknardráp
er eingöngu löglegt í Hollandi er aðeins
þarlendis hægt að gera lífsskrá um líknar-
dráp fram í tímann, svo ef viðkomandi
væri orðinn heilabilaður eða meðvitundar-
skertur, haldinn banvænum sjúkdómi
og engin von væri um bata, væri hann
deyddur með beinu líknardrápi.
Lögleiðing líknardráps á Íslandi?
Ég hef áður bent á að frá sjónarhóli lækna
er ekki nauðsynlegt að lögleiða líknardráp
þar sem í langflestum tilfellum er hægt að
veita fullnægjandi líknarmeðferð.3 Í þeim
fáu undantekningartilfellum sem líknar-
dráp er siðferðilega réttlætanlegt, eins
og lýst er í dæmi um mann sem er fastur
í brennandi farartæki,12 getur dómari
fellt niður sekt samkvæmt almennum
hegningarlögum.4 Lögleiðing líknardráps
væri því út frá sjálfræðissjónarmiðum
einstaklinga. Lögfræðingar eru almennt
á móti því að leyfa líknardráp í einhverri
mynd þar sem það er andstætt þeirri
meginreglu refsiréttarins að refsivert er að
drepa annan mann, samanber 211 gr. al-
mennra hegningarlaga.13 Beint líknardráp
er manndráp hvernig sem á það er litið, og
kæmi því vart til greina að lögleiða það.
Einnig hefur verið bent á að sé líknardráp
leyft, geti það haft í för með sér ákveðinn
þrýsting á sjúklinga að óska eftir líknar-
drápi vegna byrði á aðstandendur og þjóð-
félagið.12 Aðstoð við sjálfsvíg er hins vegar
ekki beint manndráp eins manns á öðrum,
en er í dag refsivert skv. 213 gr. almennra
hegningarlaga.13 Læknastéttin er almennt
andvíg því að taka þátt í líknardrápi, þar
sem það er andstætt grundvallarsjónar-
miði læknastéttarinnar, það er að bæta
heilsu sjúklinga sinna, og á rætur sínar í
siðareglum Hippokratesar. Alþjóðasamtök
lækna hafa enn fremur endurtekið lýst sig
andsnúin líknardrápi.14 Ætti að leyfa að-
stoð við sjálfsvíg þyrfti sú aðstoð að vera
skilyrðum bundin við dauðvona sjúklinga,
líkt og í Hollandi og Bandaríkjunum. Ekki
yrði hjá því komist að læknir staðfesti að
svo sé. Einnig yrði það hlutverk lækna að
meta sjúklinginn með tilliti til þess hvort
ósk um aðstoð við sjálfsvíg væri upplýst,
ígrunduð og ekki væri til staðar geð-
sjúkdómur sem truflaði dómgreind hans
eða ákvörðunin tekin undir áhrifum lyfja.
Einnig þyrfti læknir að ræða við hann
um þær auknu þjáningar sem sjálfsvíg
gæti valdið ástvinum hans og möguleika
á fullnægjandi líknarmeðferð sem val-
kost. Framkvæmdin á líknardrápi ætti
þá líkt og í Sviss að fara fram utan heil-
brigðisstofnana, á sjálfseignastofnun sem
væri í umsjá áhugamanna um aðstoð við
sjálfsvíg. Annað myndi valda óöryggi og
vantrausti á heilbrigðiskerfið vegna ótta
við líknarmorð. Slík sjónarmið komu fram
á fundi Siðmenntar í febrúar 2015.15 Þó
svo að læknar kæmu ekki að sjálfri fram-
kvæmdinni þyrfti læknir að ávísa eitri
því sem sjúklingurinn yrði sjálfur að inn-
byrða. Yrði aðstoð við sjálfsvíg lögleidd,
væri því ekki hjá því komist að læknar
kæmu að því á einhvern hátt.
Heimildir
1. Skýrslu Siðmenntar má finna á heimasíðu félagsins,
sidmennt.is
2. Árnason V. Siðfræði lífs og dauða, 2. útg. Háskóli Íslands,
Siðfræðistofnun og Háskólaútgáfan 2003: 267-310.
3. Einarsson B. Að taka ákvörðun um líknarmeðferð.
Læknablaðið 2015; 101: 380-1.
4. Thormundsson J. Líknardráp. Úlfljótur 1976: 29: 135-170.
5. government.nl/opics/euthanasia - janúar 2016.
6. En.wikipedia.org/wiki/Euthanasia_in_the_United_States
- janúar 2016.
7. En.wikipedia.org/wiki/Euthanasia_ub_Switzerland -
janúar 2016.
8. Guðmundsdóttir A. Hvernig deyja læknar? Læknablaðið
2015; 101: 43.
9. Murray K. How doctors die. J Miss State Med Assoc 2013;
54: 67-9.
10. Bjarnason O. Euthanasia frá sjónarhóli læknis. Úlfljótur
1976; 29: 177.
11. Snijdewind MC, var Tol DG, Onwuteaka-Philipsen BD,
Willems DL. Complexities in euthanasia or physician-
assisted suicide as perceived by dutch physicians and
patients´ relativives. J Pain Symptom Manage 2014; 48:
1125-33.
12. Gylfason Th. Líknardráp. Réttlæti og ranglæti,
Heimskringla, Háskólaforlag Máls og menningar,
Reykjavík 1998: 138-44.
13. Almenn hegningarlög, 1940, nr.19 með síðari breytingum.
14. Alþjóðasamtök lækna (WMA), Declaration of Geneva
1948, Decl. of Helsinki 1964, Decl. of Sidney 1968 og Decl.
of Oslo 1970.
15. Fundur Siðmenntar um líknardauða 29.01.2015 á Hótel
Sögu.