Læknablaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 7
LÆKNAblaðið 2016/102 215
R I T S T J Ó R N A R G R E I Nhttp://dx.doi.org/10.17992/lbl2016.05.77
Líffæraígræðsla er eina mögulega meðferð
við líffærabilun á lokastigi í hjarta, lungum
og lifur. Þó að sjúklingar með nýrnabilun
á lokastigi eigi kost á skilunarmeðferð er
nýraígræðsla kjörmeðferð, bætir lífsgæði
og lengir líf sjúklinganna en er að auki
ódýrari til lengri tíma en skilunarmeðferð.
Í þessu tölublaði Læknablaðsins er sagt
frá árangri af lungnaígræðslum í Ís-
lendinga frá upphafi. Þar kemur fram að
lifun lungnaþeganna er svipuð og hjá öðr-
um stærri þjóðum.1
Þessi góði árangur er ánægjulegur en
niðurstöðurnar verður þó að skoða með
þeim fyrirvara að um fáa sjúklinga er að
ræða (20 lungnaþegar) og eftirfylgnitími
stuttur fyrir um helming hópsins. Í grein-
inni endurspeglast fjölbreytileiki fylgi-
kvilla sem ígræðslulæknar verða að geta
greint og meðhöndlað, en þeir eru aðal-
lega af ónæmisfræðilegum toga oft ásamt
óvenjulegum sýkingum.1 Þá er mikilvægt
að bera kennsl á mögulega líffæraþega,
þekkja ábendingar og hefja uppvinnslu
eins fljótt og auðið er.
Allt eftirlit með líffæraþegum og
uppvinnsla fyrir ígræðslu er í höndum
sérfræðinga á Landspítala sem gjarna
hafa komið sér upp sérþekkingu á sviði
ígræðslumála í sérnámi sínu. Þessir sér-
fræðingar hafa síðan tekið að sér að fylgja
sjúklingum eftir, þó án sérstaks umboðs
eða að því fylgi stöðuhlutfall. Það er að
mínu mati helsta brotalömin í eftirliti með
líffæraþegum, því þessi þjónusta þarfnast
sérstakrar árvekni og einnig er mikilvægt
að ígræðslulæknar viðhaldi þekkingu
sinni og fái tíma til að sinna henni. Á síð-
ustu árum hefur verið komið upp sérstakri
ígræðslugöngudeild á Landspítalanum
við Hringbraut þar sem tveir hjúkrunar-
fræðingar starfa. Þar er nýrna-, lifrar- og
hjartaþegum sinnt ásamt lifandi nýrna-
gjöfum. Vegna staðsetningar lungnadeild-
ar er sérstök göngudeild fyrir lungnaþega
í Fossvogi þar sem einnig eru tveir hjúkr-
unarfræðingar starfandi. Það er verkefni
komandi ára að efla þessar göngudeildir
svo að hægt verði að tryggja að meðferð
ígræðslusjúklinga megi vera sem örugg-
ust og í samræmi við þekkingu á hverjum
tíma.
Undirbúningur, ígræðsluaðgerð og
meðferð líffæraþega er aðeins einn hlekk-
ur í því flókna ferli ígræðslulækninga
sem hefst með líffæragjöf. Það er einstakt
í læknisfræði að meðferð sé háð aðkomu
almennings, sem gefur úr sér líffæri til
ígræðslu, lifandi eða að sér liðnum. Ef
þessara líffæragjafa nyti ekki við, yrðu
ígræðslur aflagðar. Þetta er afar viðkvæmt
ferli og kallar á gott skipulag og regluverk
til að uppfylla lagalegar og siðferðilegar
skyldur.
Til þess að uppfylla þessi skilyrði þarf
nána samvinnu milli ígræðslusjúkrahúsa
og yfirvalda og líka við almenning. Á
Norðurlöndum gegnir Scandiatransplant
lykilhlutverki sem ígræðslustofnun er
lýtur stjórn allra 10 ígræðslusjúkrahúsa
á Norðurlöndum. Landspítalinn öðlaðist
þá viðurkenningu þegar ígræðslur nýrna
úr lifandi gjöfum hófust hér á landi í des-
ember 2003. Hvert Norðurlandanna á sér
einn fulltrúa í stjórn og hefur undirrituð
setið þar síðastliðin 6 ár. Allar meiriháttar
ákvarðanir eru bornar undir fulltrúaráð á
aðalfundi sem haldinn er einu sinni á ári,
en Íslendingar eiga þar einn fulltrúa. Hlut-
verk Scandiatransplant er fyrst og fremst
að halda utan um biðlista og sjá til þess að
dreifing líffæra sé sem best og í samræmi
við reglur sem settar hafa verið um forgang
fyrir hvert líffæri. Í þeim tilgangi er haldið
úti gagnabanka þar sem allir líffæraþegar
og -gjafar eru skráðir og er aðalverkefni
skrifstofu Scandiatransplant að viðhalda
þeim gagnagrunni. Þegar líffæri býðst til
ígræðslu er ígræðslusjúkrahúsunum skylt
að kanna í gagnagrunninum hvort senda
beri líffæri til annars sjúkrahúss, sem getur
verið í öðru landi, áður en ákveðið er að nota
líffærið til ígræðslu á eigin sjúkrahúsi. Slík-
ir flutningar líffæra milli Norðurlandanna
gerast í um 16-22% tilvika, eftir því hvaða
líffæri á í hlut.2 Ef líffæri nýtist ekki á Norð-
urlöndum er það boðið öðrum ígræðslu-
stofnunum í Evrópu. Gagnagrunnurinn
nýtist enn fremur til vísindastarfa og til að
gefa tölulegar upplýsingar um fjölda sjúk-
linga á biðlistum, líffæragjafir og fjölda
ígræðsluaðgerða, sem geta til að mynda
nýst yfirvöldum.2 Stjórn Scandiatransplant
fundar einnig einu sinni á ári með hópum
um ígræðslumál á vegum yfirvalda (Nord-
ic Transplant Committee) og hefur Embætti
landlæknis haft það hlutverk hérlendis frá
2014. Fjalla þessir hópar til að mynda um
málefni er varða lög og lagasetningar um
líffæragjafir en einnig leiðir til að fjölga líf-
færagjöfum.
Ígræðsla er kjörmeðferð við líffærabilun
og stundum eina meðferðarúrræðið. Eins
og hér hefur komið fram er ígræðsluferl-
ið margþætt. Íslendingar eru háðir góðu
samstarfi við ígræðslusjúkrahús á Norð-
urlöndum þar sem ígræðslur úr látnum
gjöfum eru eingöngu gerðar erlendis, en
einnig samstarfi við Scandiatransplant,
yfirvöld og ekki síst almenning. Helstu
annmarkar á starfsemi hér innanlands eru
takmörkuð tækifæri fyrir sérfræðinga til að
geta helgað sig ígræðslumálum. Mikilvægt
er að læknar framtíðarinnar hljóti áfram
menntun á sviði ígræðslulækninga og má
það ekki vera tilviljun háð hvort svo verði.
Slíkt gerist helst ef hlúð er að starfseminni
heima fyrir og áhugi hinna ungu vakinn.
Heimildir
1. Hansdóttir S, Harðardóttir H, Einarsson O, Hrafnkelsdóttir
SK, Guðmundsson G. Lungnaígræðslur á Íslendingum.
Læknablaðið 2016; 102: 233-8.
2. scandiatransplant.org - apríl 2016.
Margrét Birna
Andrésdóttir
klínískur dósent, sérfræðingur
í nýrnalækningum á
Landspítala
mband@landspitali.is
Organ transplantation - a complex process
Margret B Andresdottir
MD, PhD Associate Professor and Consultant in Nephrology
at Landspitali University Hospital, Iceland
Líffæraígræðslur – margþætt ferli
Niðurstöður gagnreyndra rannsókna
styrktar af klínískri reynslu
Nú einnig við segamyndun í
djúp bláæðum (DVT)
Rannsókn á sjúklingum með DVT, XALIA, sýnir að klínísk reynsla
endurspeglar niðurstöður skráningarrannsóknar á Xarelto1.
Rannsóknin XANTUS hafði sýnt fram á hið sama hjá sjúklingum
með gáttatif án lokusjúkdóms2.
XALIA er fyrsta rannsókn sinnar tegundar á NOACa við segamyndun
í djúpbláæðum. Hún er stór, framsýn áhorfsrannsókn þar sem fleiri
en 5.000 sjúklingum með DVT var fylgt eftir1,b.
Xarelto – til inntöku
Eitt lyf frá fyrsta degi3
a NOAC = novel oral anticoagulant
b Meðferð við segamyndun í djúpbláæðum (DVT) og segareki
í lungum (PE) og til að fyrirbyggja endurtekna segamyndun í
djúpbláæðum og segarek í lungum hjá fullorðnum
Heimildir:
1. Ageno W., Mantovani L., Haas S. et al;
www.thelancet.com/haematology Published online
December 7, 2015.
2. Camm A.J., Amarenco P., Haas S. et al;
European Heart Journal, doi:10.1093/eurheartj/ehv466
3. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto
L.IS.MKT.03.2016.0107