Læknablaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 45
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
LÆKNAblaðið 2016/102 253
Keppt um
heiðursverðlaun
Jónasar
Magnússonar
Á nýafstöðnu Sameiginlegu vísindaþingi
Skurðlæknafélags Íslands, Svæfinga- og gjör-
gæslulæknafélags Íslands, Félags fæðinga- og
kvensjúkdómalækna og Fagdeilda skurðstofu-
og svæfingahjúkrunarfræðinga var haldin
keppni um besta vísindaerindi unglæknis eða
læknanema. Fimm erindi voru valin af þeim
40 sem send voru inn á þingið og kepptu þau
um Heiðursverðlaun Jónasar Magnússonar
prófessors. Sigur úr býtum bar Rósamunda
Þórarinsdóttir, læknanemi á 3ja ári, fyrir ver-
kefnið Árangur magahjáveituaðgerða á Íslandi
árin 2001-2015 en leiðbeinendur hennar voru
skurðlæknarnir Björn Geir Leifsson og Hjörtur
Frá vinstri: Einar Teitur Björnsson deildarlæknir á Landspítala, Hannes Halldórsson læknanemi á 4. ári,
sigurvegar inn Rósamunda Þórarinsdóttir læknanemi á 3. ári, Kristín María Guðjónsdóttir kandídat á Land-
spítala og Elva Dögg Brynjarsdóttir deildarlæknir á Sjúkrahúsi Akureyrar. Formaður dómnefndar var Einar
Stefán Björnsson prófessor.
Gíslason. Þetta er í fyrsta skipti sem
þriðja árs læknanemi vinnur þessi verð-
laun.
Þingið var mjög vel sótt og gekk vel í
alla staði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kostir sérnáms:
• Fjölbreytt starfsnám þar sem blandast heilsugæsla
í dreifbýli með bráða- og slysaþjónustu, vinna á
sjúkradeild og hjúkrunardeildum.
• Starfsnám undir virkri handleiðslu reyndra sér-
fræðinga og þátttaka í vaktþjónustu
• með lækni með sérfræðimenntun á bakvakt.
• Einstaklingsmiðuð námsáætlun.
• Hópkennsla og námsferðir með öðrum sérnámslækn-
um
• Þátttaka í vísindavinnu
• Nám samhliða starfi
• Náin samvinna við aðra lækna og annað starsfólk
starfsstöðvarinnar og við þá
• sérfræðilækna sem koma reglulega á stöðvarnar.
• Góðir tekjumöguleikar
• Húsnæði í boði
Hæfnikröfur
• Íslenskt lækningarleyfi
• Mjög góðir samskiptahæfileikar, fagmennska og
jákvæðni
• Frumkvæði, faglegur metnaður og geta til að starfa
sjálfstætt
Viltu verða sérfræðingur í heimilislækningum
og starfa á landsbyggðinni?
Laus er til umsóknar sérnámsstaða í heimilislækningum við Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki.
Námsstaðan veitist til 5 ára frá 1. september 2016. Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2016. Sérnámslæknir
vinnur að skipulagi námsins í samvinnu við mentor og/eða kennslustjóra sérnáms. Námið fer fram á
heilsugæslustöð, sjúkrahúsi og hjúkrunarheimili.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri lækninga og yfirlæknir.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Á Sauðárkróki búa um 2600 manns sem hafa atvinnu af sjávarútvegi, fjölbreyttum iðnaði, verslun og þjónustu. Skólar á
öllum stigum eru í héraðinu, samgöngur góðar, fjölbreytt menningarlíf og góð aðstaða til íþrótta og útivistar.
Skagafjörður með um 4200 íbúa er blómlegt landbúnaðarhérað, ríkt af sögulegum minjum og náttúrufegurð.
Nánari upplýsingar veitir
Þorsteinn M Þorsteinsson - thorsteinn.thorsteinsson@hsn.is – 455 4000
Örn Ragnarsson - orn.ragnarsson@hsn.is - 455 4000
Farið skal eftir reglum um notkun merkis settum í mörkunarleiðarvísi.
HEILBRIGÐISSTOFNUN
NORÐURLANDS
HSN
MERKI
PANTONE 337
PANTONE 7694
PANTONE
AVERY 777-029- MINT
AVERY 777-027- PASSION BLUE
AVERY BÍLAMERKINGAEFNI
CMYK - FJÓRLITUR
CYAN 40% / MAGENTA 0%
YELLOW 30% / BLACK 0%
CYAN 84% / MAGENTA 40%
YELLOW 0% / BLACK 62%
RGB - SKJÁLITUR
RED 165% / GREEN 211%
BLUE 188%
RED 38% / GREEN 67%
BLUE 105%
GRÁSKALI
BLACK 100%
BLACK 40%
SVARTHVÍTT
BLACK 45%
BLACK 0%
NEGATÍFT