Læknablaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 29
LÆKNAblaðið 2016/102 237
Einstöku sinnum þegar Læknafélag Ís-
lands ber á góma í samtölum við kollega
fæ ég að heyra þau sjónarmið að árgjöld til
félagsins séu nokkuð há miðað við önnur
félög. Þá láta menn einnig þá skoðun í ljós
að forréttindi ýmiss konar séu lítil ef mið-
að er við önnur stéttarfélög. Því er ekki úr
vegi að fjalla eilítið um það hvað félags-
menn LÍ greiða og í hvað sú upphæð fer.
Árgjöld til Læknafélags Íslands eru nú
kr. 94.500 og er upphæðin ákveðin á aðal-
fundi félagsins. Undanþegnir félagsgjaldi
eru meðlimir LÍ erlendis sem og læknar
eldri en 70 ára. Á árinu 2015 greiddu rúm-
lega 1100 félagsmenn gjald til félagsins;
nokkrir læknar greiða ekki fullt árgjald
af ýmsum ástæðum. Hluti árgjaldsins,
„tíundin“, rennur til svæðafélags eða að-
ildarfélags.
Félagsgjöld annarra stéttarfélaga eru
mjög mismunandi og stundum erfitt að
sjá hvað í þeim felst. Hjúkrunarfræðingar
greiða til dæmis tæplega 60.000 krónur
á ári í félagsgjöld og félagsmenn BHM
greiða hlutfall af launum sínum í árgjald
til síns stéttarfélags, ýmist ákveðið pró-
sentuhlutfall af heildarlaunum eða dag-
vinnulaunum. BSRB-félagar greiða líka
hlutfall launa sinna í stéttarfélagsgjald.
Sum stéttarfélög greiða styrki af ýmsu tagi
til félagsmanna og nokkrir læknar hafa
eðlilega spurt hvers vegna Læknafélagið
úthluti ekki slíkum styrkjum. Samanburð-
ur á stéttarfélagsgjöldum og réttindum í
hinum ýmsu félögum er hins vegar ekki
alltaf eins einfaldur og hann sýnist vera.
Sumar þessara styrkveitinga hafa líka
reynst mörgum stéttarfélögunum erfiður
ljár í þúfu og einhver félög hafa hreinlega
gefist upp á slíku styrkjafyrirkomulagi
eða að minnsta kosti reynt að einfalda
það. Ekki má heldur gleyma því að skatt
þarf að greiða af öllum slíkum styrkjum
nema mögulega líkamsræktarstyrkjum.
Einnig er vert að benda á það að upphæð
árgjaldsins nú er í raun lítil prósenta af
heildarlaunum lækna.
Rétt er að Læknafélagið hefur ekki farið
út í það að greiða styrki til augnaðgerða,
gleraugnakaupa, tannviðgerða eða lík-
amsræktar. Við eigum hins vegar öflugan
fjölskyldu og styrktarsjóð – FOSL, sem er
félagsmönnum góður bakhjarl ef eitthvað
bjátar á. Fjölskyldu- og styrktarsjóðurinn
hefur undanfarin ár greitt út myndarlegan
fæðingastyrk sem nú er 520.000 kr. krón-
ur fyrir barn. Hálfur styrkur er greiddur
aukalega ef báðir foreldrar eru læknar.
Sjóðurinn greiðir einnig styrki til útfara
sem og styrki til félagsmanna sem orðið
hafa fyrir tekjumissi vegna veikinda eða
annarra áfalla. Tekjur FOSL eru hins vegar
ekki af félagsgjöldum heldur koma í sjóð-
inn fjárframlög frá ríkinu sem nema 0,41%
af heildartekjum sjóðsfélaga. Sjálfstætt
starfandi læknar greiða sömuleiðis 0,41%
af reiknuðu endurgjaldi í fjölskyldu- og
styrktarsjóðinn.
Um orlofssjóðinn gildir að framlög fé-
lagsmanna í sjóðinn koma ekki frá félags-
gjöldum heldur greiðir ríkisvaldið 0,25%
af heildarlaunum hvers félagsmanns í
orlofssjóð. Um þetta er samið í kjarasamn-
ingum líkt og á við um önnur stéttarfélög.
Sama gildir um framlög til námsferða og
endurmenntunar og ákvæði um endur-
menntun má finna í kafla 8 í kjarasamn-
ingum lækna. Árgjöld félagsmanna renna
ekki til reksturs Fræðslustofnunar lækna
eða Læknadaga. Auðvitað ber Læknafé-
lagið einhvern kostnað af okkar metnað-
arfullu Læknadögum en þeir standa þó
undir sér að mestu leyti.
En í hvað fer þá árgjaldið? Áðurnefndir
1100 félagsmenn LÍ greiddu á árinu 2015
um 100 milljónir í félagsgjöld. Um 65% af
félagsgjöldum fóru í laun og launatengd
gjöld vegna skrifstofu félagsins. Stöðugildi
eru 7,4; formaður, framkvæmdastjóri,
lögfræðingur auk annars starfsfólks skrif-
stofu og Læknablaðsins. Hluti félagsgjalda
fer í erlend samskipti læknafélagsins.
Samstarf við norrænu læknasamtökin
er okkur mikilvægt og læknasamtökin
eru meðlimir í Alþjóðasamtökum lækna
(WMA), Evrópusamtökum lækna (CPME)
og Evrópsku sérfræðilæknasamtökunum
(UEMS). Kostnaði við þessi samskipti er
hins vegar mjög í hóf stillt.
Læknasamtökin gefa út Læknablaðið
sem nú hefur komið út óslitið í meira en
100 ár. Blaðið nýtur virðingar og hefur
meðal annars náð þeim áfanga að vera
í Index medicus. Um 18% af árgjöldum
Læknafélagsins renna til Læknablaðsins. Sú
umræða hefur oft komið upp hvort ekki
eigi að gefa blaðið eingöngu út rafrænt en
ritstjórn blaðsins hefur ekki talið slíkt vera
raunhæft Það myndi kosta læknafélagið
15-20 milljónir aukalega á ári að hætta að
gefa blaðið út á prenti þar sem auglýsingar
hafa skilað mun meiri tekjum en sem nem-
ur prentun og dreifingarkostnaði.
Síðast en ekki síst má nefna að drjúgur
hluti tíma framkvæmdastjóra og lög-
fræðings Læknafélaganna fer í samtöl
af ýmsu tagi vegna kjaramála og mættu
kollegar vera betur að sér í þeim málum
en raun ber vitni. Það er í raun ótrúlegt
hversu mörg mál lækna lenda sem próf-
mál, til dæmis hjá félagsdómi, vegna þess
að þau eru talin fordæmisgefandi. Allt
þetta kostar fé, jafnvel þótt málin vinnist.
Útlagður kostnaður Læknafélagsins á
árinu 2015 vegna lögfræðikostnaðar var
rúmlega 8 milljónir króna.
Að mínum dómi er árgjald félags-
manna LÍ ekki miklu hærra en í öðrum fé-
lögum. Ekki má gleyma því að Læknafélag
Íslands er í rauninni fámennt stéttarfélag
með öfluga starfsemi sem óhjákvæmilega
kostar sitt að reka.
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Þorbjörn Jónsson, formaður
Orri Þór Ormarsson, varaformaður
Björn Gunnarsson, gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Arna Guðmundsdóttir
Hildur Svavarsdóttir
Magnús Baldvinsson
Tinna Harper Arnardóttir
Þórarinn Ingólfsson
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna
LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Stjórn LÍ
Í hvað fer árgjaldið mitt?
Björn
Gunnarsson
svæfingalæknir á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Akranesi
bjorn.gunnarsson@hve.is